Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Blaðsíða 3
3
Öryrkjar, fólk án fullra
mannréttinda
Þuríður Harpa SigurðardóttirKLIFUR
Málgagn Sjálfsbjargar
Útgefandi: Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra.
Hátúni 12, 105 Reykjavík
Sími: 5500 300 - Fax: 5500 301
mottaka@sjalfsbjorg.is
Útgáfunefnd: Aðalbjörg Gunnarsdóttir,
Andri Valgeirsson og
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Ritstjóri: Hilmar Karlsson
hkarls@simnet.is
Ábyrgðarmaður: Tryggvi Friðjónsson
tryggvi@sbh.is
Hönnun og umbrot og prentun:
Nýprent ehf. - nyprent@nyprent.is
Auglýsingar: Markaðsráð ehf.
Forsíðumynd og myndir frá hjólastóla-
handbolta tók Eyjólfur Garðarsson.
Aðrar myndir; ýmsir
E F N I S Y F I R L I T
2 Jólahappdrætti Sjálfsbjargar
3 Öryrkjar, fólk án fullra mannréttinda
4 Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar
8 Götuhernaður
9 Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu
10 Sjálfsbjörg á Akureyri
11 Nýr formaður í Bolungarvík
11 Sudoku
12 Hjólastólahandbolti
14 Acces Iceland aðgengismerkjakerfið
15 Aðgengi og upplifun fatlaðs fólks
af foreldrahlutverkinu
17 Staðgöngumæðrun
19 Halaleikhópurinn 20 ára
21 Þing Sjálfsbjargar lsf.
22 Pistill; Grétar Pétur Geirsson
23 Helgi Sveinsson, spjótkastari
26 Frá sambandsstjórn Sjálfsbjargar
27 Krossgáta
Fyrir ári síðan var ég splunkunýr formaður Sjálfsbjargar
félags fatlaðra í Skagafirði. Starfsemi á vegum félagsins hafði
legið niðri um hríð. Ég var beðin um að endurvekja það og
varð ég við beiðninni þrátt fyrir að þekkja afskaplega lítið til
starfa Sjálfsbjargar, yfir höfuð. Mér fannst þetta mikil áskorun
og finnst það enn ári síðar, ég hef á þessum tíma sem liðinn
er skrapað saman þekkingu í þekkingarskjóðu mína, á málefnum
Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra og aðildarfélaga. Hver
baráttumálin eru? Fyrir hvað stöndum við? Hverju hafa þessi
stóru hagsmunasamtök áorkað og svo framvegis. Ég veit nú
að Sjálfsbjörg hefur skipt sköpum fyrir marga einstaklinga á
liðnum áratugum. Sem betur fer eigum við í dag öflug félög
um land allt sem mynda aðhald og þrýsting á sveitarstjórnir,
borgarstjórn og ríkisstjórn. Við verðum að vera vakandi og
minna þetta ágæta ráðafólk okkar á að öryrkjar eru líka
fólk sem þarf að lifa á nákvæmlega sama hátt og aðrir
þegnar þjóðfélagsins.
Þegar ég þurfti að takast á við breyttar aðstæður í lífi mínu
komu ýmsir hlutir ansi flatt upp á mig. Fyrir rúmum fimm árum
var ég gangandi þegn samfélagsins, slys varð til þess að ég
lamaðist og í dag fer ég allra minna ferða í hjólastól. Það sem
kom mér mest á óvart var lélegt aðgengi og hvað það gerði mig
miklu hamlaðri en ég í raun var. Aðgengismál hafa verið og eru
aðal baráttumál Sjálfsbjargar og þrátt fyrir áratuga baráttu fyrir
bættu aðgengi erum við enn að glíma við að ekkert aðgengi er
að; ýmsum opinberum fyrirtækjum, verslunum, skemmtistöðum,
ferðamannastöðum, bókasöfnum o.fl. ofl.
Í dag er búið að samþykkja nýja byggingarreglugerð. Í henni er
ákveðin réttlæting til handa okkur hreyfihömluðu fólki, réttlæting
sem snýst um þau sjálfsögðu mannréttindi að allir eigi rétt á að
komast hindrunarlaust um í samfélaginu.
-Ég skora á
sveitarfélög
og ráðamenna
landsins að taka
til hendinni í
aðgengismálum og
útrýma þröskuldum
milli okkar sem
erum hreyfihömluð
og þeirra sem eru
það ekki.