Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Page 8
8
Götuhernaðurinn 2012
Gaurarnir hjá oryrki.is teknir tali
Að tilefni opnunar Þekkingar-
miðstöðvar Sjálfsbjargar
voru strákarnir hjá oryrki.is
fengnir til að gera kynninga-
og auglýsingamyndbönd fyrir
miðstöðina ásamt því að
gera ýmis kennslumyndbönd
fyrir hjálpartæki og beitingu
þeirra. Fyrir þá sem þekkja
ekki til strákanna halda þeir
uppi vefsíðunni www.oryrki.
is þar sem þeir setja inn
stutt myndbrot (sketcha),
myndir, tónlist og aðra
geysigóða afþreyingu. Aðal
þema verkefnisins er að gera
grín að samfélaginu og þeim
sjálfum, oft er farið í mjög
svartan húmor en þeir segja
að það sé eina leiðin til að
fanga athygli fólks og einnig
segja þeir að ekkert sé eins
skemmtilegt og að sjokkera
eins og að stuða fólk.
Ég spurði strákana aðeins út í
starfsemi þeirra í sumar.
Happdrætti Sjálfsbjargar
Við vorum beðnir um að gera
auglýsingu fyrir happdrætti Sjálfs-
bjargar sem var núna í júní. Við
vildum vera aðeins öðruvísi í þetta
skiptið og fengum hann Magnús
Elvar Jónsson sem er nemandi í
Listaháskóla Íslands til að aðstoða
okkur en hann er þaulreyndur
2012 - Á toppnum
2012 - Úr Reykjavíkurmaraþon „sketchinum“
P-merki á Esjunni,
gert með þyrlunni
úr þyrlufluginu
2012 - Þyrluferð upp á Esjuna
ljósmyndari. Hugmyndin
var að gera stop-motion
myndband sem er svona
best útskýrt sem myndband
gert með ótal ljósmyndum.
Við prentuðum út ótal
happdrættismiða og límdum
á heilan vegg á skrifstofunni
okkar ásamt því að vefja hann
Egil Kaktus í happdrættismiða
líka, svo rifum við alltaf meira
og meira af honum þangað
til allt var farið af honum
og af veggnum svo fór hann
og hjálpaði Andra í skó.
Þessar myndir tókum við
svo og settum þetta saman
í myndband. Hugmyndin
bakvið þetta er semsagt að
Sjálfsbjörg er búið að vinna mjög
mikilvægt starf í þágu
hreyfihamlaðra og við
vorum semsagt að benda
á NPA (Notendastýrð
Persónuleg Aðstoð) í
þessu myndbandi.
Reykjavíkur-
maraþon 2012
Andri ákvað að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu aftur eins
og í fyrra og var safnað núna
fyrir Þekkingarmiðstöð Sjálfs-
bjargar. Strákarnir allir gerðu svo
auglýsingamyndband fyrir hlaupið
til að kynna Andra og var gerður
mjög jákvæður sketch þar sem
því neikvæða í samfélaginu í garð
hreyfihamlaðra var breytt í eitthvað
jákvætt og var það sýnt mjög
myndrænt í þessu myndbandi. Var
svo fjallað um myndbandið í öllum
helstu netfréttamiðlunum á landinu
og vakti það mikla kátínu. Hlaupið
gekk svo mjög vel og var Andri
nokkrum mínútum frá því að bæta
sig frá árinu áður.
Allt annað
Við gerðum margt annað í sumar
eins og kennslumyndbönd fyrir
ýmis hjálpartæki sem koma á
vef Þekkingarmiðstöðvarinnar á
næstunni, þyrluferð upp á Esjuna
sem var tekið upp og svo auðvitað
margir aðrir grínsketchar sem verða
á heimasíðunni okkar. Við viljum
annars bara þakka öllum fyrir
frábært sumar og vonandi finnst
ykkur þetta jafnt skemmtilegt og
okkur fannst að gera þetta efni.
Endilega kíkið svo á vefinn okkar,
þar sjáiði alla sketchana okkar og
komist inn á Facebook síðuna
okkar og margt fleira.