Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Side 10
10
Reksturinn góður
en félagsstarfið
mætti vera meira
Herdís Ingvadóttir, formaður Sjálfsbjargar
á Akureyri og nágrenni
„Stærsti hluti starfseminnar í dag er rekstur
endurhæfingarstöðvarinnar Bjargs og
hefur Sjálfsbjörg rekið stöðina frá árinu
1970. Í endurhæfingarstöðinni starfa nú
fjórtán sjúkraþjálfarar og tveir iðjuþjálfar.
Byrjað var smátt í litlu húsnæði, en árið
1981 var flutt í rúmgóða nýbyggingu við
Bugðusíðu 1, þar sem stöðin er enn
þann dag í dag. Þó að Sjálfsbjörg reki
endurhæfingarstöðina þá er hún fyrir alla
og erum við eina endurhæfingastöðin hér
noraðanlands, sem er með séraðstöðu
fyrir börn. Mikil aðsókn hefur verið í
stöðina og reksturinn gengur vel. Stöðin
er vel búin tækjum. Við fengum arf fyrir
tveimur árum síðan og þá var keyptur
standstóll, sem er sá fullkomnasti á
landinu, í honum getur mikið hreyfihamlað
fólk þjálfað sig.“ Herdís segir aðalfélaga
vera um 100 talsins en félagsstarfið
mætti vera meira. „Við erum að vísu
með spilavist á veturna og jólaball, sem
er mjög vel sótt og á haustin er árlegt
haustferðalag sem er mjög vinsælt. Í
ár var farið til Þeistareykja og í fyrra
í Skagafjörð og Siglufjörð og er mikil
ánægja með þessar ferðir, einnig er farin
ein leikhúsferð á vetri en félagsmálin
sér Ívar Herbertsson um en hann er
varaformaður félagsins. Aðalfundir eru
frekar illa sóttir, það er af sem áður var
þegar baráttuhugurinn var sem mestur í
félaginu og félagarnir byggðu heilt hús
í sjálfboðavinnu. Með slíka hugsjón þarf
ekki að undra að félagsstarfið hafi verið
með miklum blóma áður fyrr. Þetta
var dugnaðarfólk á góðum aldri sem
stofnaði félagið og hélt miklu lífi í því
lengi. Þetta hugafar er því miður ekki
til staðar í dag.“ Fólk lagði mikið á sig
við fjáraflanir og annað til að koma
starfsemi Sjálfsbjargar af stað og þeim
atvinnurekstri sem síðar varð raunin.
Svo aðstoðaði félagið fatlað fólk í
Sjálfsbjörg á Akureyri og nágrenni er eitt
elsta Sjálfsbjargarfélagið, stofnað á Hótel KEA
miðvikudaginn 8. október 1958. Félagið hefur
alla tíð verið öflugur málsvari fatlaðra og
rekur endurhæfingarstöðina Bjarg. Um árabil
var félagið einnig í fararbroddi framleiðslu
plastefnis fyrir raflagnir, framleiðslu fiskikassa og
síðar plastpoka, og rak í því sambandi um tíma
vinnustað fyrir fatlaða. Herdís Ingvadóttir hefur
verið formaður félagsins frá árinu 2000.
„Ég er búin að vera formaður lengi og hef haft mikið til sama
fólkið með mér í stjórn, gott fólk sem vinnur vel saman og hef ég
alltaf átt gott samstarf við meðstjórnendur mína.“
ré t t i ndamá lum,
kynnti því rétt
sinn og barðist
fyrir úrbótum. Við
þyrftum að fá inn
fleira af ungu fólki,
fólki sem hefur
lent í slysum eða
veikindum og hlot-
ið örorku og á
samleið með okkur.
Ég veit að það er
þeim mikils virði
ekki síður en okkur. Meira er um að
unga fólkið sæki í Íþróttafélag fatlaðra á
Akureyri þar sem er góð og virk starfsemi
en við í Sjálfsbjörg þyrftum einnig að ná
til þeirra.
Hvað varðar kjaramálin þá höfum við
setið eftir og það verður að leiðrétta
hlut fatlaðra. Þetta er sanngirnismál sem
þarf að leysa. Svo eru það bílamálin
sem varða okkur miklu, þá er ég að tala
um bílakaupastyrkinn sem er krónutala
sem mér hefur alltaf fundist að ætti að
fella niður. Það á að fá ríkisvaldið til
að afnema aðflutningsgjöldin og hætta
með krónutöluna sem alltaf er að
verða verðminni.“ Margt hefur áunnist
í aðgengismálum en við eigum tvo
fulltrúa í ferlinefn Akureyrarbæjar. Jón
Heiðar sem er okkar fulltrúi og Berg
Þorra sem er skipaður af Akureyrarbæ
og hafa þeir staðið sig mjög vel.
Herdís er spurð hvort félagið hafi
fundið fyrir því þegar þjónustan fór
frá ríki yfir á sveitarfélögin. „Það urðu
engar breytingar hjá okkur. Við höfum
verið tilraunar sveitafélag á þessu sviði
í nokkur ár og hefur gengið mjög vel.
Akureyrarbær hefur staðið sig vel hvað
þetta varðar.“
Herdís býr ekki á Akureyri heldur á
Brúnagerði í Eyjafjarðarsveit sem er
innar í firðinum. „Það er samt ekki
nema þriggja kílómetra leið að heiman
frá mér til Akureyrar, sem þykir ekki
mikil vegalengd í dag. En ég tilheyri
þar af leiðandi Eyjafjarðarsveit. Ég er
búin að vera formaður lengi og hef
haft mikið til sama fólkið með mér í
stjórn, gott fólk sem vinnur vel saman
og hef ég alltaf átt gott samstarf við
meðstjórnendur mína. Við erum með
mjög góðan framkvæmdastjóra, Pétur
Arnar Pétursson. Má þakka honum
hversu vel hefur gengið að reka félagið
og þá starfsemi sem er á vegum þess,
auk þess sem undir hans stjórn var farið
í að halda við og endurnýja húsnæði
okkar sem er í góðu standi í dag.
Vert er að nefna að í starfsemi okkar
er Styrktarsjóðurinn, en við veitum árlega
úr honum 3. desember. Sjóðurinn var
stofnaður á afmæli félagsins en því
miður eru vextir lágir um þessar mundir
og við snertum ekki höfuðstólinn. Og svo
má nefna að í Hlíðafjalli hefur verið mjög
góð aðstaða fyrir fatlað skíðafólk sem
við komum að. Þangað kemur fatlað fólk
allstaðar af landinu til að fara á skíði
og sækja námskeið, hefur þessi starfsemi
fengið mjög jákvæðar viðtökur“.