Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Qupperneq 12
12
Hjólastólahandbolti
Friðrik Þ. Ólason, formaður hjólastólahandknattleiksráðs,
handknattleiksdeildar HK
Þann 21. október 2010
gerðist sá merki atburður
að hjólastólahandboltaráð
HK var stofnað innan
handknattleiksdeildar HK. Ekki
er víst að allir geri sér grein
fyrir mikilvægi þessa atburðar
en til útskýringar má benda
á að hingað til hafa fatlaðir
starfað að mestu undir merkjum
íþróttafélags fatlaðra eða þá
fengið fyrir náð og miskunn
aðstöðu fyrir áhugamál sín undir
verndarvæng einhverra félaga.
Stofnun sérstaks
hjólastólahand-
knattleiksráðs
gerir það að
verkum
að þeir
sem í
hjólastól sitja en
hafa jafnframt
áhuga á iðka sína
íþrótt hafa nú
sömu stöðu innan
HK og aðrir sem
íþróttir stunda undir
merkjum HK. Þetta er
því stórt skref í samþættingu
þeirri og valdeflingu sem lengi
hefur verið unnin að í skólum
landsins og því
sannanlega kominn
tími á
slíkt í
íþrótta-
hreyfing-
unni.
Æfingar
Æfingar eru tvisvar í
viku í íþróttahúsinu Kórnum,
Kópavogi. Annars vegar á föstudögum
frá 18-20 og síðan á laugardögum, frá
12.30 - 14/14.30. Virkir iðkendur eru
í dag á bilinu tíu til fimmtán
manns, þar af ein stúlka.
HK er sem stendur eina
íþróttafélag landsins sem
býður uppá íþróttina, til
gamans má geta þess að
HK er eina félag landsins
sem var stofnað sérstaklega
í kringum handknattleikinn,
eins og nafn þess ber merki
um, Handknattleiksfélag
Kópavogs.
Keppnisleikir
í hjólastóla-
handknatt-
leik eru
jafn langir
og í hefðbundnum
leik og reglurnar að mestu leyti
þær sömu og ef um hefðbundinn leik
væri að ræða, en að vísu er ekki
spilað með sérstakan línumann og af
öryggisástæðum eru dómararnir utan
vallar. Einnig er í boði að stilla upp
blönduðu liði beggja kynja.
Þátttaka í mótum
Stefnt er að reglulegri þátttöku í
mótum og ýmsum uppákomum til
þess að styrkja stoðir deildarinnar.
Stólarnir sem má nota í keppnisleikjum
eru útskeifir stólar með öryggisgrind,
sömu gerðar og þeir sem notaðir eru
í hjólastólakörfubolta. Þeir eru ansi
dýrir og er það verðugt verkefni að
koma upp „lager“ með þeim. Sérstakar
stangir eru einnig settar á mörkin til
þess að minnka þau.
Að sjálfsögðu er svo unnið að
frekari útbreiðslu íþróttarinnar hér.
Harðsvírað lið HK stóla.
12