Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Page 14
14
Access Iceland
aðgengis-
merkjakerfið
MINNINGARSJÓÐUR
Jóhanns Péturs Sveinssonar
frá Varmalæk í Skagafirði
F. 18. 9. 1959 :: D. 5. 9. 1994
Hvað er að gerast
Í ágúst síðastliðnum varð Access
Iceland Aðgengismerkjakerfið
(AIA) að sjálfstæðu fyrirtæki sem
sérhæfir sig í úttekt, skráningu
og upplýsingagjöf á aðgengi fyrir
fatlað fólk. Það er von okkar að
með því sjái fleiri sér leik á borði
til að taka þátt og styðja við
uppbygginguna.
Aðgengi ehf. mun áfram starfa af
krafti við ráðgjöf og ýmis verkefni sem
tengjast meira fyrirbyggjandi aðgerðum,
lögum og reglugerðum. Aðgengi
stefnir á að verða fyrsta löggilta
skoðunarstofan á sviði aðgengismála
samkvæmt nýju Mannvirkjalögunum.
Upplýsingar um skráða staði í
Access Iceland Aðgengismerkjakerfinu
(AIA) má finna með því að slá inn
netslóðina www.AccessIceland.is eða
www.GottAdgengi.is.
Næstu skref hjá AIA eru þau að
við erum að vinna með Borgarmynd
að hönnun aðgengiskorts sem sýnir
staðsetningu skráðra staða á landinu
og helstu lykilupplýsingar við fyrsta
smell og svo geta notendurnir
valið ýtarlegri upplýsingar úr
gagnagrunninum sé þess óskað.
Hægt er að nálgast upplýsingar
um merkin sem AIA notar, kröfur sem
farið er eftir, hvernig úttekt fer fram
og hvað þarf að gera til þess að
fá úttekt, á heimasíðunni. Einnig
er velkomið að hafa samband við
Hörpu Cilia Ingólfsdóttur í síma 662
2674 og/eða koma á skrifstofuna að
Borgartúni 3, 3. hæð.
Við tökum vel við ábendingum um
staði til skráningar sem og ef eitthvað
má betur fara við upplýsingagjöfina
því við viljum að vefurinn nýtist sem
best fyrir alla.
Minningarsjóður Jóhanns Péturs Sveinssonar úthlutaði fimm styrkjum þann
18. september síðastliðinn
Tilgangur sjóðsins er einkum tvíþættur;
a) að styrkja hreyfihamlaða einstaklinga til náms,
b) að styrkja einstök málefni með aðgengi fyrir hreyfihamlaða í huga.
Í ár var úthlutað fjórum styrkjum til náms, heildarstyrkur til náms var 338.000,-
og einum styrk að upphæð kr. 150.0000,- til úrbóta á aðgengi.
Sjóðurinn stefnir á að úthluta næst á 20 ára afmæli sjóðsins þann
18. september 2015.
Við óskum styrkþegum innilega til hamingju og óskum þeim
velfarnaðar í framtíðinni.
Stjórn minningarsjóðs Jóhanns Péturs Sveinssonar
Mikael Jóhannesson Pípulagningamaður Sími 897 3234
Gilbert Moestrup Pípulagningamaður Sími 840 0242
Kraftaverk pípulagnir ehf.
Netfang: kraftaverkpipul@torg.is Kt.: 510102-2310
Sjálfsbjörg þakkar
stuðninginn