Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Side 19
19
Halaleikhópurinn
20 ára
Mikið var um dýrðir þegar Halaleikhópurinn
fagnaði 20 ára afmæli sínu í sal Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu í lok september.
Meðal gesta var forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sem lét sig ekki muna um að heilsa
upp á alla viðkomandi með handabandi. Í tilefni
afmælisins var sett upp sýning á leikmunum
og sviðsmyndum sem hafa verið notuð í
leikverkum sem Halaleikhopurinn hefur sett
á svið, en minnst eitt leikverk er sett á svið
á hverju ári. Félagar í leikhópnum klæddust
síðan búningum úr hinum ýmsu leikritum og
settu skemmtilegan svip á samkomuna sem fór
einstaklega vel fram.
„Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með
það að markmiði að ,,iðka leiklist fyrir alla” og hefur
starfað óslitið síðan. Sjö leikrit hafa verið frumsamin fyrir
leikhópinn og hefur Halaleikhópurinn svo sannarlega lyft
grettistaki í að eyða fordómum og styrkja einstaklinga til
að taka skref, sem annars hefðu verið ófarin.
Halaleikhópurinn sem hefur það að markmiði sínu að
iðka leiklist fyrir alla er öllum opinn. Engin inntökupróf eru í
Halaleikhópinn og er reynt að finna öllum eitthvað verðugt
hlutverk. Allir eru velkomnir í leikhópinn og er fötlun hvorki
hindrun né skilyrði heldur tækifæri. Halaleikhópurinn er
blandaður leikhópur þar sem hver og einn kemur inn á
sínum eigin forsendum.
Að sögn Þröst Jónssonar, formanns Halaleikhópsins var
mikil gleði og fögnuður á afmælishátíðinni og mikill hugur
sé í félögum hvað varðar vetrastarfið. Nú er búið að ráða
Herdísi Þorgeirsdóttur leikstjóra til að leikstýra Rympa á
ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur, sem Halaleikhópurinn
hyggst frumsýna í vetur.Félagar í Halaleikhópnum þau Stefanía Björk Björnsdóttir, Gunnar Freyr
Árnason og Daníel Þórhallsson.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heilsaði öllum gestum með
handabandi.
Gestir á afmælishátíð Halaleikhópsins voru margir og nutu góðra veit-
inga auk sem margt var í boði til skemmtunar.
Í tilefni afmælisins var sett upp sýning á leikmunum
og sviðsmyndum úr leikritum sem sýnd hafa verið á
vegum Halaleikhópsins.