Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Síða 21
21
Aðgengi að upplýsingum
36. þing Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra
Þekkingarmiðstöð
Sjálfsbjargar
Í upphafi þings laugardaginn
9. júní 2012 var fjallað um
Þekkingarmiðstöð Sjálfs-
bjargar og voru þingfulltrúar
almennt sammála um að
Þekkingarmiðstöðin væri
ótrúlegt afrek og að halda
þyrfti sögu hennar til haga
og dreifa þurfi upplýsingum
um heimasíðu, símanúmer
og fleira svo að hvert félag
geti auglýst miðstöðina
heima fyrir.
Miklar væntingar eru
gerðar
Yfirskrift 36. landssambandsþings Sjálfsbjargar sem haldið var
í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, dagana 8.-9. júní 2012 var
„Aðgengi að upplýsingum“. Kosið var í stjórnir og nefndir á vegum
Sjálfsbjargar lsf. og gerðar ályktanir um brýnustu baráttumálin.
Setningarathöfn var í matsal hússins föstudaginn 8. júní. Þorkell
Sigurlaugsson formaður stjórnar Sjálfsbjargarheimilisins stjórnaði
þingsetningu. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra flutti ávarp.
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar
Sjálfsbjargar flutti erindið Aðgengi að upplýsingum og Grétar Pétur
Geirsson formaður Sjálfsbjargar landssamband fatlaðra setti þingið.
Þekkingarmiðstöðin og
Samningur SÞ
Hópur 3 ályktaði um Þekkingarmiðstöð
Sjálfsbjargar og samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í
lok ályktunar um Þekkingarmiðstöðina
segir: „Megi starfsmönnum Þekkingar-
miðstöðvarinnar í samráði við stjórn
Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra,
stjórn Sjálfsbjargarheimilisins og vel-
ferðarráðuneyti takast að festa
Þekkingarmiðstöðina í sessi í þágu
fatlaðs fólks og þar með til gagns
fyrir samfélagið allt.“ og um samning
Sameinuðu þjóðanna segir í lokin:
Háborðið. Þorkell Sigurlaugsson formaður stjórnar Sjálfsbjargarheimilisins stjórnaði þingsetningu, Guðbjartur Hann-
esson velferðarráðherra flutti ávarp, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir forstöðumaður Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar
flutti erindið og Grétar Pétur Geirsson formaður Sjálfsbjargar landssamband fatlaðra setti þingið.
til Þekkingarmiðstöðvarinnar
en fram kom að til að hún gæti náð
árangri þurfa félögin að vera virk og
miðla þekkingu sinni til miðstöðvarinnar.
Það mun taka vikur eða mánuði að
ná fullri virkni og allir þurfa að sýna
því skilning. Mikilvægt er að allir hafi
aðgang að sömu upplýsingum. Fram
kom að Þekkingarmiðstöðin sé gott
tækifæri til kynningar á Sjálfsbjörg og
hægt væri að nota hana til að ná
augum og eyrum þeirra sem stjórna.
Kjör fatlaðs fólks
Eftir matarhlé var komið að hópstarfi
um málefni þingsins. Hópur 1 ályktaði
um kjör fatlaðs fólks og segir í upphafi
ályktunarinnar: „36. þing Sjálfsbjargar
landssambands fatlaðra krefst þess að
stjórnvöld dragi nú þegar til baka þá
skerðingu kjara sem fatlað fólk hefur
þurft að taka á sig á síðustu árum.
Einnig viljum við að komið verði á
réttindakerfi í stað ölmusu, að aldurs-
tengd örorkuuppbót verði virkjuð á nýjan
leik og jafnframt verði hún greidd eftir
67 ára aldur og að kostnaður vegna
fötlunar og sjúkdóma verði aðskilinn
frá greiðslum almannatrygginga.“
Málefni fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga
Hópur 2 ályktaði um flutning málefna
fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga
og ályktaði um Samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og
þar kom meðal annars fram að til að
flutningurinn gæti gengið eftir þyrfti í
fyrsta lagi að liggja fyrir stefnumótun ríkis
og sveitarfélaga í málaflokknum sem þarf
að vera tímasett og kostnaðargreind. Í
öðru lagi þurfa sveitarfélögin að hafa
burði til að sinna verkefninu og í þriðja
lagi þurfa að vera til fjármunir og fagleg
þekking í samræmi við þær þarfir sem
eru til staðar á hverjum tíma. Í ályktun
um Samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks segir m.a.
„36. þing Sjálfsbjargar landssambands
fatlaðra krefst þess að ríkisstjórnin
fullgildi Samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks nú þegar
og býður fram samstarf til að svo
megi verða með tilkomu Þekkingar-
miðstöðvar Sjálfsbjargar. Samningurinn
var staðfestur 30. mars 2007 en hefur
ekki enn verið lögfestur frá Alþingi.“
„36. þing Sjálfsbjargar lsf vekur athygli
ríkisstjórnarinnar á skýru orðalagi í
texta samningsins. Til að Ísland geti
fullgilt samninginn þarf ríkisstjórnin að:
Skuldbinda sig til að láta fötluðu fólki
í té aðgengilegar upplýsingar.“
Aðgengi fyrir alla
Hópur 4 ályktaði um aðgengi fyrir
alla og benti á eftirfarandi í Samningi
Sameinuðu þjóðanna: „Algild hönnun
merkir hönnun framleiðsluvara, um-
hverfis, áætlana og þjónustu sem
allir geta nýtt sér, að því marki sem
aðstæður leyfa, án þess að koma
þurfi til sérstök útfærsla eða hönnun.
Samning þennan staðfestu íslensk
stjórnvöld með undirritun 30. mars
2007. Á árinu 2010 voru sett ný lög hér
á landi um mannvirki, nr. 160/2010. Í
þeim segir með skýrum hætti að eitt
af markmiðum laganna sé að tryggja
aðgengi fyrir alla. Það eru semsagt
engar málamiðlanir í gangi hér eins
og fatlað fólk hefur svo oft þurft að
búa við.“
Eftir að þingfulltrúar höfðu látið ljós