Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Blaðsíða 23
23
Keppti í fyrsta
sinn í spjótkasti á
Evrópumeistaramóti
og varð í öðru sæti
Helgi Sveinsson keppti í 100 m hlaupi,
langstökki og spjótkasti á
Ólympíumóti fatlaðra í London
Fánaberi Íslands á Ólympíumóti fatlaðra
sem fram fór í London í byrjun september
var frjálsíþróttakappinn Helgi Sveinsson,
sem keppti í þremur greinum, 100 m hlaupi,
langstökki og spjótkasti. Helgi sem er 33 ára
gamall, einstæður faðir tveggja barna, var
eins og aðrir keppendur Íslands að taka þátt í
Ólympíumótinu í fyrsta sinn. Til þess að komast
á Ólympíumótið þarf að ná lágmarksárangri
sem aðeins þeir bestu ná. Og að Helgi skyldi
ná lágmarkinu í þremur greinum er athyglisvert
þar sem hann byrjaði að æfar frjálsar íþróttir
fyrir aðeins einu og hálfu ári síðan,
þá 32 ára gamall. Íþróttir og keppni eru í
blóðinu á Helga og man hann ekki eftir sér
öðru vísi en að æfa og keppa þar til líf hans
tók krappa og örlagaríka beygju.
„Þegar ég var átján ára var ég á kafi í íþróttum,
handbolta, fótbolta, körfubolta og í raun öllum íþróttir
sem ég hafði áhuga á, sem voru margrar. Ég hef
mikið keppnisskap og var því mikið að taka þátt í
keppnum. Þegar ég svo sá sá fram á að íþróttaferill
minn gæti blómstrað, þá urðu straumhvörf í lífi mínu,
ég veiktist alvarlega, fékk beinkrabba og varð að
taka af mér annan fótinn. Eins og nærri má geta þá
sló þetta mig út af laginu hvað varðar íþróttirnar,
en ekki lengi, ég fór yfir í golfið og þar fann ég
mér íþrótt þar sem keppnisskapið kom að góðum
notum, fór í 9 í forgjöf og keppti meðal annars á
Evrópumeistaramóti fatlaðra í golfi í Danmörku og
varð í þriðja sæti. Golfkylfurnar hafa nú verið settar
upp í hillu, en ég er viss um að ég á eftir að taka
þær aftur niður og þá að sjálfsögðu að keppa aftur
í þeirri íþrótt. Ég er þannig gerður að þegar ég er
kominn á kaf í einhverja íþrótt þá er allt keppni hjá
mér og að tapa fer ekki vel í skapið á mér.“
Vinnan hjá Össurri gerði gæfumuninn
Helgi var í pásu frá öðrum íþróttum í ein þrettán
ár. „Löngun til að fara að hlaupa bjó alltaf í mér
og þegar ég fór að vinna hjá stoðfyrirtækinu Össur
fyrir þremur árum þá fór ég að umgangast þá
íþróttamenn sem eru á vegum fyrirtækisins, fara um