Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Side 24
24
allan heim að hitta þá og taka þátt
í prófunum. Um leið og ég kynntast
því kraftmikla fólki sem vinnur hjá
Össur þá sá ég ekkert til fyrirstöðu
að fara að taka þátt í frjálsum
íþróttum og standa jafnfætis þeim
íþróttamenn sem ég hafði kynnst.
Það var svo fyrir einu og hálfu
ári að ég fór að prófa mig áfram
og þá að hlaupa. Ég hafði þurft
að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika
sem geta verið samfara því að fá
gervifót og satt best að segja var
mikið basl að komast af stað, ég
fékk bólgur og sýkingu sem gerði
það að verkum að ég var lengi á
sýklalyfjum. En ég komst yfir þessi
vandamál og gat farið að einbeita
mér að æfingum, en var samt ekki
orðinn algóður fyrr en nýlega og
nú verður bara gaman að æfa og
keppa í framtíðinni.
Þegar ég var viss um að ég
vildi byrja að æfa frjálsar og keppa
fór ég og talaði við starfsfólk hjá
Íþróttasambandi Fatlaðra, sem
bentu á ákveðinn mann sem ég
ræddi við, en ekkert varð úr því
samstarfi til langframa og því var
lítið um að vera hjá mér þar til
haldinn var íþróttadagur Össurar
í frjálsíþróttasal í Laugardalnum.
Þar hitti ég Kára Jónsson, þjálfara,
sem er þjálfari minn í dag. Hann
hálfpartinn stökk á mig, sá að
greinilega var hægt að gera
eitthvað með mig og höfum við
unnið saman síðan, svo segja má
að tilviljun hafi ráðið því að ég
hélt áfram í frjálsum íþróttum. Ég
fór nánast strax að taka þátt í
mótum og var fyrsta mót mitt á
Selfossi, en fyrsta stórmótið sem
ég tók þátt í var Evrópumeistarmót
og náði ég að vera í öðru sæti í
spjótastinu og var það í fyrsta sinn
sem ég keppti í spjótkasti. Ég var
í fyrsta sæti fyrir síðasta kast en
þá kastaði minn helsti keppinautur
í þessari grein lengra en og ég var
ég ekki sáttur og verð ekki í rónni
fyrr en ég er búinn að vinna hann.“
Ætlaði upphaflega aðeins
að hlaupa
Upprunalega ætlaði Helgi aðeins
að hlaupa spretthlaup en fór fljótt
einnig í aðrar greinar. „Mér fannst
ekki nóg að hlaupa eingöngu svo
ég fór yfir í langstökkið og náði
þar fljótlega góðum árangri. Það
að ég skyldi fara að æfa spjótkast
var algjör tilviljun. Ég var að hita
upp fyrir 100 metra hlaup, spjót lá
á vellinum og án þess að hugsa
neitt um það sérstaklega þá tók
ég það upp og kastaði því eitthvað
út í loftið og kastið tókst vel og
ég kastaði meira og náði strax á
fyrstu æfingu að ná lágmarki fyrir
Ólympíumót fatlaðra þannig að
þarna var komin frjálsíþróttagrein
sem greinilega hentaði mér vel.
Sjálfsagt hefur haft eitthvað að
segja að ég hafði verið í handbolta
í mörg ár áður en ég veiktist og
þaðan kemur sjálfsagt grunnurinn
að kastgetunni, alltaf að kasta
bolta. Þannig að nú er ég kominn
með þrjár greinar og aldrei að vita
nema ég bæti við einhverri grein
sem ég á eftir að prufa.
Hvað varðar greinarnar sem ég
keppi í núna, þá er það einna helst
að ég sjái mig ekki keppa mikið
lengur í 100 metrunum, er kominn
á þann aldur að spretthlaup
henta kannski ekki nógu vel og á
Ólympíumóti fatlaðra voru þetta
allt ungir strákar sem voru bestir
í 100 metrunum, en ég æfi 100
metrana til að geta haldið uppi
hraða í atrennu í langstökkinu og
er aldrei að vita nema ég bæti mig
einnig í hlaupinu og haldi áfram ef
árangurinn segir svo. En eins og
staðan er núna þá er spjótkastið
og langstökkið aðalgreinaranar hjá
mér.“
Fánaberinn labbaði
of hratt
Eins og komið hefur fram þá á Helgi
mjög stuttan feril að baki í frjálsum
íþróttum og hann segist margt eiga
eftir ólært. „Segja má að ég sé enn
að koma mér betur inn í tæknihliðina
hvað varðar greinarnar sem ég æfi
og með betri tækniúrvinnslu á ég
að geta bætt mig. Þegar ég hljóp
mitt fyrsta 100 metra hlaup þá var
tíminn um sextán sekúndur, en nú
er ég kominn niður í 14 sekúndur
og fyrsta langstökkið mitt var rúmir
fjórir metra en nú er ég að stefna
á sex metrana. Spjótkastið hefur
verið sterkt hjá mér frá byrjun, en
ég stefni einnig á að bæta mig í
þeirri grein.“
Það kom fram í fréttum eftir
langstökkkeppnina á Ólympíumótinu
að Helgi var vægast sagt mjög
óhress með árangur sinn. “Ég vill
eiginlega sem minnst um það tala,
en þetta var fyrsta keppnisgreinin
Keppendur Íslands á Ólympíumóti fatlaðra í London, Jón Margeir Sverrisson
Matthildur Ylfa Þorsteindóttir, Kolbrún Alda Stefánsdóttir og Helgi Sveinsson.