Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Síða 25
25
mín og ég var að stökkva í upphitun
um 5.80 metra án þess að setja
fullan kraft í stökkið. Svo þegar
keppnin byrjar og ég er annar í
stökkröðinni þá er ég úti á velli
að hugsa um hvernig ég ætla að
haga stökkinnu þegar sá sem var
fyrstur í stökkröðinni er búinn og
tíminn hjá mér byrjaður, en þú færð
vissa tímalengd til undirbúnings
áður en þú stekkur, og satt best
að segja var ég ekki tilbúinn, var
stressaður og geri allt kolvitlaust og
er tæpum einum og hálfum metra
frá plankanum þegar ég kem að
honum þannig að stökkið varð ekki
nema 4.25. Ég fraus og náði ekki að
laga þessa slæmu byrjun. Þetta voru
gríðarleg vonbrigði, en ég veit hver
ástæðan er og þetta gerist
ekki aftur því get
ég lofað.
Að öðru leyti
var ógleymanlegt
að taka þátt í
Ólympíumótinu og
ég er ennþá að
melta þá reynslu. Ég
var búinn að fylgjast
með ólympíukeppni
frá því ég var smá-
strákur og alltaf átt
mér þann draum að
komast í slíka keppni.
Ég var fánaberi við
setningarathöfnina
sem gerði þátt-
töku mína enn eftir-
minnilegri og gaman
að segja frá því nú
að spennan var svo mikil að þegar
ég gekk af stað með fánann þá
gekk ég allt of hratt, var að hugsa
um að halda fánanum rétt og
hann sæist almennilega þannig að
ég nánast gleymdi mér og stelpan
sem labbaði með okkur var alltaf
að segja mér að hægja á mér sem
ég gerði ekki fyrr en ég var kominn
langt á undan hópnum mínum.“
Loks kominn með þá útrás
sem ég þarf á að halda
Helgi er nýbyrjaður að æfa aftur
eftir að hafa tekið sé mánaðarpásu
eftir Ólympíumótið. „Ég æfi núna
þrisvar í viku og nú er eingöngu
æft innanhúss en æfingarnar eiga
eftir að aukast eftir því sem líður
á veturinn og verða sex sinnum í
viku þegar keppnistímabilið hefst.
Á næsta ári er Heimsmeistarmótið
sem ég ætla mér að taka þátt í
og þar á eftir eða árið 2014 er
Evrópumeistarmót og svo eru það
Ólympíuleikarnir aftur og það er
enginn spurning, ég ætla mér á pall
í Brasilíu.“
Eins og komið hefur fram starfar
Helgi hjá Össur, sem er leiðandi
fyrirtæki í stoðtækjaframleiðslu í
heiminum. „Ég starfa í þróunar-
deildinni og mín vinna er fyrst og
fremst að prófa þá hluti sem verið
er að búa til, gefa upplýsingar um
hvort hlutirnir séu í lagi og hvað má
betur gera og ferðast ég mikið um
allan heim til að sýna vöruna. Svo
þegar koma hópar í heimsókn þá
er ég að segja frá minni reynslu og
sýna hvernig hlutirnir virka og hjálpa
öðrum að læra að
nota þá. Þetta er
mjög fjölbreytt og
skemmtilegt starf
og besta starf sem
ég hef nokkurn
tímann haft.
Andrúmsloftið á
vinnustaðnum er
einstaklega gott
og svo stendur
fyrirtækið algjör-
lega við bakið
á mér þegar
kemur að
íþróttunum.“
Í þ ró t t i r na r
hafa gefið
Helga mikið
og segir hann
að íþróttirnar hafi
nánast gefið honum nýtt líf. „Nú
er ég loksins kominn með þá útrás
sem ég þarf á að halda og hafa
íþróttirnar haft mikil áhrif á mig
bæði andlega og líkamlega. Það að
geta sett mér markmið og stefnt
að því markmið hefur gert það að
verkum að ég er nú orðinn mun
skipulagðari í öllu sem ég geri
hvort sem það er vinna, íþróttir eða
einkalífið. Og hvað varðar annað
en íþróttir og góða vinnu þá eru
það börnin mín tvö, Helga María
sem verður 14 ára í desember og
Bjarki Freyr sem verður tveggja ára
í sama mánuði sem gera það að
verkum að ég er hamingjusamur
maður í dag.“
-HK
Sjálfsbjörg þakkar
stuðninginn