Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2012, Blaðsíða 26
26
Takk fyrir stuðninginn
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
HVOLSVÖLLUR
Búval ehf - Kirkjubæjarklaustur, Iðjuvöllum 3
Icelandair Hótel Klaustur, Klausturvegi 6
Búhamar ehf, Búhamri 88
Frár ehf, Hásteinsvegi 49
J.R. verktakar efh, Skildingavegi 8b
Karl Kristmanns, umboðs- og heildverslun,
Ofanleitisvegi 15-19
Langa ehf, Eiðisvegi 5
Pétursey ehf, Flötum 31
Skýlið, Friðarhöfn
Vélaverkstæðið Þór ehf, Norðursundi 9
Vinnslustöðin hf, Hafnargötu 2
Vöruval ehf, Vesturvegi 18
Örn ehf, Strandvegi 69Bessi hf, Sóleyjargötu 8
Bragginn sf, bílaverkstæði, Flötum 20
Sambandsstjórn Sjálfsbjargar harmaði á fundi sínum 13.
október 2012 afstöðu mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar
í bókun á fundi ráðsins 18. september 2012 sem staðfest
var í borgarráði á fundi þess 20. september 2012 um
ferðaþjónustu fatlaðra. Í bókun borgarráðs segir ma.:
Borgarráð leggur áherslu á þau sjálfsögðu mannréttindi
fatlaðs fólks og allra að almenningssamgöngur eigi að
vera aðgengilegar öllum. Í lögum um málefni fatlaðs
fólks kemur fram að sveitarfélög skulu gefa fötluðu
fólki kost á ferðaþjónustu. Markmið ferðaþjónustu
fatlaðs fólks er að gera þeim sem ekki geta nýtt
sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að
stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Meðan
almenningssamgöngur geta ekki mætt þörfum stórs
hóps fatlaðs fólks felst virðing við hópinn í því að
viðurkenna að hann þarfnist sértækra úrræða og leita
leiða til að mæta þeirri þörf.
Mannréttindaráð og borgarráð leggja í bókun sinni
„áherslu á þau sjálfsögðu mannréttindi fatlaðs fólks og
allra að almenningssamgöngur eigi að vera aðgengilegar
öllum.“ Síðan kemur setning í ályktunum beggja ráðanna
sem er með öllu óskiljanleg. „Meðan almenningssamgöngur
geta ekki mætt þörfum stórs hóps fatlaðs fólks felst virðing
við hópinn í því að viðurkenna að hann þarfnist sértækra
úrræða og leita leiða til að mæta þeirri þörf.“ Fulltrúar
á sambandsstjórnarfundi Sjálfsbjargar telja að ekki felist
virðing við hópinn í því að viðurkenna að hann þarfnist
sértækra úrræða. Sambandsstjórnarfundurinn leggur þunga
áherslu á að Reykjavíkurborg viðurkenni mannréttindi fatlaðs
fólks og að almenningssamgöngur eigi að vera aðgengilegar
öllum. Tími sértækra úrræða er liðinn. Ekki er hægt að horfa
til baka til 20 ára gamalla laga um málefni fatlaðra heldur
ber að horfa fram á við til Samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks.
Málefni ferðaþjónustu fatlaðra hafa verið Sjálfsbjörg
hugleikin mjög lengi. Samtökin áttu aðild að stofnun
ferðaþjónustunnar hér í Reykjavík árið 1977 og hófu samstarf
við Reykjavíkurborg á árinu 1979 um rekstur ferðaþjónustunnar.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og háttar nú þannig
til og hefur gert lengi að starfsemi ferðaþjónustunnar hér
í Reykjavík er hluti af starfsemi Strætó bs. byggðasamlags
er sinnir almenningssamgöngum í eigu sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir þá staðreynd sinnir Strætó
bs. einungis ferðaþjónustu fatlaðra fyrir Reykjavíkurborg.
Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa kosið að
semja við einkaaðila um að sinna ferðaþjónustu fatlaðra í
sveitarfélögunum með misjöfnum árangri.
Nú eru uppi hugmyndir um að bjóða umrædda þjónustu
út í Reykjavík. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra leggst
eindregið gegn þeim hugmyndum og færir fyrir því eftir-
farandi meginrök. Ferðaþjónusta fatlaðra á að vera hluti
af almenningssamgöngum og er því best fyrirkomið hjá
Strætó bs. Nær væri að snúa af braut útboða í nágranna-
sveitarfélögum Reykjavíkur og koma ferðaþjónustu fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu að öllu leyti fyrir hjá Strætó bs.
Á heimasíðu Strætó bs. kemur ma. eftirfarandi fram:
Meginhlutverk byggðasamlagsins er að veita almenna
þjónustu á sviði almenningssamgangna. Undir þetta
hlutverk fellur rekstur almenningsvagna (strætó),
ferðaþjónusta fatlaðra og ferðaþjónusta eldri borgara.
Ef ferðaþjónusta fatlaðra yrði flutt burt frá Strætó bs. eru
engar líkur til þess að þetta stærsta almenningssamgangn
aþjónustufyrirtæki landsins sæi sérstaka þörf á því að þróa
almenna þjónustu á sviði almenningssamgangna í þágu allra
þegna samfélagsins. Ef Reykjavíkurborg býður út þjónustuna
til einkaaðila væri borgin að stíga skref til baka að mati
Sjálfsbjargar.
Skorar því Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra á borgarráð
að staldra nú við og setja samning Sþ. um réttindi fatlaðs
fólks á þann stall sem hann er á alltént á tyllidögum hjá
velferðarráði borgarinnar.
Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks:
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks var hafður að leiðarljósi við gerð framtíðarsýnar
borgarinnar. Í því felst viðurkenning á sjálfstæðu lífi
á eigin forsendum, jöfn tækifæri til virkrar þátttöku í
samfélaginu, réttur til aðstoðar við að lifa innhaldsríku
lífi og viðurkenning á fjölbreytileika mannlífsins og
mannréttindum allra.
Ef við leyfum okkur að yfirfæra fyrirhuguð áform
framkvæmdahóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
sem studd hafa verið af velferðarráði borgarinnar um útboð
ferðaþjónustunnar á aðgengi að byggingum má álykta að
vegna þess að einhver bygging borgarinnar er ekki fyllilega
aðgengileg þá yrði brugðið á það ráð að byggja aðra sem
sérstaklega væri ætluð fötluðum og engum nema fötluðum.
Tryggjum mannréttindi fatlaðs fólks
og viðurkennum að almenningssamgöngur
eigi að vera aðgengilegar öllum
Frá sambandsstjórn Sjálfsbjargar