Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Hentar stærðum 30-40 DD-H
Hefur ótrúlega gott hald,
óþarfi að vera í haldara undir.
Verð 13.850 kr.
Falleg samfella
sem dekrar við
kvenlegar línur
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-14
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
issulega var áskorun fyrir
mig, 23 ára stelpu, að flytja
frá stórborg í mínu heima-
landi í sveit á Íslandi, fjar-
lægu landi sem ég vissi ekki mikið
um, en þetta var upphaf mikils ævin-
týris og mér líður mjög vel hérna,“
segir Marcela Slobodaniuca, ung
kona frá Moldóvu, sem tók sig til og
opnaði nýlega sólgulan kaffivagn
með gamaldags útliti við Brúará í
Biskupstungum, fimm árum eftir að
hún flutti hingað í norðrið. Í vagn-
inum fagra býður hún upp á úrvals-
kaffi, þar sem malaðar eru baunir í
hvern bolla, en líka te og kalda
drykki sem og bakkelsi, kleinuhringi,
múffur og fleira. Margir ferðamenn
kom við hjá Brúará til að ganga upp
að Brúarfossi í fallegu umhverfi upp
með ánni, en þangað er um klukku-
stundar gangur.
„Fólk er sólgið í kaffi og ein-
hverja orku þegar það kemur til
baka eftir gönguna að Brúarfossi en
sumir fá sér líka kaffi eða annað til að
taka með sér í upphafi gönguferðar.
Brúarfoss er orðinn mjög vinsæll
staður til að ganga að og viðskipta-
vinir mínir koma frá öllum heims-
hornum. Fólk er mjög ánægt með að
geta hresst sig við hjá mér og margir
kannast við þessa tegund af kaffi-
vagni frá öðrum löndum. Ég er að
prófa mig áfram með hvað fólk vill
helst kaupa með kaffinu og hér er
nóg að gera. Fyrir nokkrum dögum
var mesta umferð sem verið hefur
hjá mér frá því ég opnaði fyrir tveim-
ur mánuðum. Þetta er enn allt í
vinnslu hjá mér. Ég á eftir að hanna
lógó fyrir vagninn minn og annað
slíkt,“ segir Marcela, sem afgreiðir
daglangt flesta daga í kaffivagninum
við Brúará, en hún ferðast þó stund-
um með hann á útihátíðir í öðrum
landshlutum.
Varð ástfangin af honum
Marcela segist alltaf hafa verið
mikil áhugamanneskja um kaffi og
hún lærði á sínum tíma það sem kall-
að er kaffilist (coffee art). Fljótlega
eftir að hún kom hingað til lands fór
hana að dreyma um að starfa á eigin
vegum og á eigin forsendum við
kaffigerð.
„Ég setti drauminn minn á bið
en á síðasta ári ákvað ég að láta vaða
og fór að leita að kaffivagni til að
festa kaup á. Ég verð að prófa þetta,
af því ég vil ekki sjá eftir því alla ævi
að hafa ekki gert það sem mig lang-
aði, að hafa ekki látið reyna á þetta.
Ég keypti kaffivagninn frá Bret-
landi. Þetta er franskur Citroën HY
Van, 1967, með upprunalegri vél en
uppgerður. Ég heillaðist af þessari
tegund kaffivagns, mér finnst hann
svo fallegur og listaverki líkastur,
eiginlega er hann listasafn á hjólum,“
segir Marcela. Hún bætir við að
ástæðan fyrir því að hún hafi ákveðið
að kaupa kaffivagn á hjólum, bíl á
númerum sem aka má á vegum
landsins, hafi verið sú að hana lang-
aði til að hafa frelsi til að færa kaffi-
vagninn sinn til.
„Ég elska að ferðast um Ísland
og það er tilbreyting fyrir mig að
mæta með kaffivagninn á hátíðir á
ólíkum stöðum,“ segir Marcela sem
ætlaði upphaflega að vera með vagn-
inn í miðbæ Reykjavíkur, en það
gekk ekki að fá leyfi fyrir honum þar.
„Ég leitaði þá til landeigandans
hér, Rúnars á Efri-Reykjum, og
spurði hvort ég mætti hafa kaffi-
vagninn hér á bílastæðinu við
Brúará, prófa hvort þetta gengi hjá
mér og hann var svo frábær að veita
mér leyfi til þess. Þetta hefur heldur
betur gengið vel, enda er staðsetn-
ingin fullkomin, á sjálfum Gullna
hringnum. Þetta svæði hér í Blá-
skógabyggð er orðið heimili mitt,
enda hef ég búið hér undanfarin
fimm ár,“ segir Marcela og bætir við
að hún sé Rúnari og hans fjölskyldu
afar þakklát fyrir að hafa gefið sér
þetta tækifæri.
Lærir núna íslensku
Marcela var háskólastúdent
þegar hún kom fyrst til Íslands fyrir
fimm árum.
„Ég var í stúdentaprógrammi
heima í Moldavíu, sem kallast Work
and travel, en það gengur út á að
nemendur fari yfir sumarið til ann-
arra landa til að vinna, öðlast reynslu
og æfa sig í öðru tungumáli. Ég vildi
fyrst og fremst öðlast betri færni í
ensku, því hún var mjög takmörkuð
hjá mér. Fyrsta sumarið fór ég til
Grikklands, annað sumarið til
Bandaríkjanna en lokasumarið var
hér á Íslandi. Mig óraði ekki fyrir að
ég myndi setjast hér að. Ég var með
allt aðrar hugmyndir og ætlaði aftur
til Bandaríkjanna. Ég frestaði þeim
fyrirætlunum hvað eftir annað og
þegar ég var búin að vera hér í tvö ár
hætti ég að hugsa um að fara. Ég
ákvað að setjast að og núna er ég að
læra íslensku, sem er reyndar mjög
erfitt tungumál,“ segir Marcela. Hún
starfaði lengst af í verslun við Geysi
en nú er hennar aðalstarf að reka
kaffivagninn sólgula. Marcela hefur
einnig verið að kenna jóga, sem hún
ætlar að bjóða aftur upp á í Blá-
skógabyggð í vetur.
„Ég er að leita að húsnæði fyrir
jógatímana mína. Það þarf að vera
notalegt og hlýlegt,“ segir Marcela
sem er mikil útivistarkona. „Ég elska
að vera umvafin þessum fallegu fjöll-
um í vinnunni minni hér við Brúará.
Ég hef gengið á öll þessi fjöll og von-
andi fæ ég að hafa kaffivagninn hér
næsta sumar á nýja bílastæðinu sem
til stendur að útbúa hinum megin ár-
innar. Þangað á að leggja nýjan veg
og þá verður hægt að aka nær Brúar-
fossi. Bílastæðið hér er allt of lítið,
enda var aldrei ætlunin að fólk færi
að leggja bílum hér. Það bara gerðist
smám saman eftir að Brúarfoss varð
svona vinsæll áfangastaður ferða-
manna.“
Bílstjóri Marcela vill vera færanleg. Kaffivagninn er
því á númerum og keyra má hann á þjóðvegunum.
Vígaleg Marcela vel græjuð með ísexi en hún gerði sér lít-
ið fyrir og gekk á Hrútsfjallstinda í júní á þessu ári.
Hressing og nesti Marcela afgreiðir tvo ferðamenn sem voru að leggja af
stað í gönguna upp að Brúarfossi og fe ngu sér kaffi og með því hjá henni.
Nú er Ísland mitt annað heimaland
„Mig óraði ekki fyrir að ég
myndi setjast að á Íslandi,
það stóð ekki til,“ segir Mar-
cela Slobodaniuca, 28 ára
einyrki sem flutti inn gull-
fallegan kaffivagn sem hún
stendur inni í dagana
langa og býður upp á kaffi
og bakkelsi fyrir þá sem
ganga upp að Brúarfossi.
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Umkringd fjöllum Marcela er alsæl með að hafa látið draum sinn rætast. Hér stendur hún stolt við kaffivagninn sinn.