Morgunblaðið - 08.09.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.09.2022, Qupperneq 20
VIÐTAL Atli Vigfússon Laxamýri „Það er gaman að geta formað hart efni með einföldum handverkfærum. Svo er alltaf gaman þegar fólk er ánægt með það sem maður gerir. Það að ljúka verki, sem búið er að hafa mikið fyrir, veitir mér mikla ánægju ef vel hefur tekist til. Að forma grjót með hamri og meitli er fyrst og fremst æfing en til þess að æfa sig þarf þolinmæði og seiglu.“ Þetta segir Benedikt Björnsson skrúðgarðyrkjumeistari en hann hefur um langt árabil unnið við grjóthleðslu og hafa störf hans vakið athygli víða fyrir fagurt handbragð. „Fyrstu veggina hlóð ég á meðan ég var á samningi hjá Einari Þor- geirssyni skrúðgarðyrkjumeistara 1977-1978. Hann brann fyrir því að hleðsluhandbragðið glataðist ekki og fékk til liðs við sig nokkra af þeim sjö hleðslumönnum sem þá voru ennþá á lífi og lærðu allir mikið af þeim,“ segir Benedikt, sem heillað- ist mjög af vandvirkni Einars og fagmennsku. Allt grjót hefur andlit Benedik segir að í grjóthleðslu sé talað um einfalda og tvöfalda veggi. Þeir einföldu eru stoðveggir og halda þeir við hærri jarðveg að baki þeim. Tvöfaldir veggir hafa tvær hliðar og tvo enda. Þeir eru stakir og standa upp úr landinu á alla vegu. Hæð stakra veggja er mismunandi en breiddin oft rúmlega metri. Hann talar um andlit á steinum sem þann flöt hvers steins sem vísar fram í hverjum vegg. Í tvöföldum vegg eru tvær steinaraðir og snúa steinarnir þá bökunum saman og andlitin mynda hvora hlið veggjarins. „Grjót er mjög fjölbreyttur efni- viður og bergtegundir hafa mismun- andi hörku. Það er fljótlegast að forma líparít og hraun en basalt og granít er mun harðara. Til dæmis er grásteinninn í Öskjuhlíð ekki eins hart efni eins og það blágrýti sem er í Þingeyjarsýslum, en hvort tveggja er basalt,“ segir Benedikt, sem finnst heillandi að spá í bergtegund- irnar. Hann segist eiga erfitt með að gera upp á milli gerð veggja og þess efnis sem notað er. Óneitanlega sé meira fjör þegar úrvalið af steinum er gott og mikið. Hefur hlaðið veggi víða Benedikt á að baki mikið starf við grjóthleðslu og er enn að. Hann hlóð á sínum tíma kirkjugarðinn á Reyð- arfirði, kirkjusökkul á Stafafelli í Lóni, kirkjusökkul á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði, kirkjugarðinn í Reykjahlíð og kapellu úr torfi og grjóti á Rönd í Mývatnssveit. Eitt stærsta verk hans er kirkju- garðurinn á Húsavík en þar eins og annars staðar naut hann aðstoðar góðra manna. Það verk tók tvö ár, þ.e. 1986-1987, og hafði hann tvo til fjóra starfsmenn sem unnu að hleðslu veggjarins sem er 290 metra langur og um 1 metri á hæð. Sá veggur hefur ekki haggast og marg- ir hafa hrifist af því handverki. Í dag sýna margir grjóthleðslu áhuga og Benedikt segir að til séu margir liðtækir og góðir hleðslu- menn í landinu. Hann segir að vél- knúin verkfæri auðveldi formun grjóts, en þau koma samt ekki í stað þess handverks sem hamar og meit- ill skila af sér. Það hefur, að hans sögn, ríkt ákveðin óvissa um garðyrkju- menntun á Íslandi en með metn- aðarfyllra fyrirkomulagi mun að- sóknin örugglega aukast. Hleðslumenn má alveg þjálfa án þess að senda þá í skóla og hann segist alltaf vera til í að liðsinna þeim sem hafa áhuga á því að kynn- ast því út á hvað grjóthleðsla geng- ur. Þessa dagana er hann að hlaða einfaldan 160 sm háan stoðvegg úr óformuðum steinum úr gömlum hleðslum á Halldórsstöðum í Laxár- dal. Þar er úrval og magn ágætt og kúnstin er sú að að sjá út þann stein í hrúgunni sem frekast gæti passað á ákveðnum stað. Hann er bjartsýnn á framtíð grjóthleðslu á Íslandi enda er þetta skemmtilegt handverk sem á eftir að lifa lengi. Grjóthleðsla er skemmtilegt handverk - Benedikt Björnsson skrúðgarðyrkjumeistari hefur um langt árabil unnið við grjóthleðslu - Hafa vakið athygli víða fyrir fagurt handbragð - Bjartsýnn á framtíð grjóthleðslu á Íslandi Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hleðsla „Grjót er mjög fjölbreyttur efniviður,“ segir Benedikt. Stoðveggur reistur Benedikt Björnsson grjóthleðslumaður og skrúðgarð- yrkjumeistari við nýhlaðinn garð á Halldórsstöðum í Laxárdal. Vandasamt verk Nóg er til af grjótinu. Það er bara að velja réttu steinana. 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 duka.is Kringlunni & Smáralind Chagrin Valley Soap & Salve húð- og hárvörur • USDA lífræn vottun • Sjálfbær og siðferðisleg framleiðsla. • 99% plastlausar umbúðir • Ekki prufað á dýrum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.