Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 26
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Frá ársbyrjun 2010 hafa einstakling-
ar á þrítugsaldri verið fjölmennastir
í hópi aðfluttra erlendra ríkisborg-
ara. Þá hafa mun fleiri karlar en kon-
ur flutt til landsins á tímabilinu.
Þessi aðflutningur ungs fólks á
verulegan þátt í mikilli fjölgun
vinnuafls á tímabilinu. Þá hefur hann
víðtæk efnahagsleg áhrif.
Hagstofa Íslands býður nú upp á
sundurliðun hjá aðfluttum og brott-
fluttum eftir aldri og kyni, deilt niður
á ársfjórðunga.
Niðurstöðurnar eru hér sýndar á
grafi. Úr því má lesa að mikill meiri-
hluti þessara erlendu ríkisborgara,
eða rúmlega 80%, er yngri en 40 ára.
Þar af eru hlutfallslega flestir, eða
um 47%, á þrítugsaldri. Miðað er við
aðflutta umfram brottflutta.
8 af hverjum 10 á þrítugsaldri
Tölurnar eru hins vegar rauðar í
flestum aldurshópum íslenskra ríkis-
borgara – brottfluttir eru margfalt
fleiri en aðfluttir – og þar af eru lang-
flestir, eða um 82%, á þrítugsaldri.
Ætla má að hátt hlutfall þeirra sé
námsmenn en flutningsjöfnuðurinn
er jafnan neikvæðastur á 3. ársfjórð-
ungi á tímabilinu, eða áður en skóla-
starf hefst á ný eftir sumarið.
Eins og Morgunblaðið hefur
fjallað um var sögulega mikill að-
flutningur til landsins á hagvaxtar-
skeiðinu 2011 til 2019. Verulega dró
úr aðflutningnum í kórónuveiru-
faraldrinum en eftir sem áður fluttu
hingað tæplega 1.900 fleiri erlendir
ríkisborgarar árið 2020 en fluttu þá
frá landinu. Sá fjöldi ríflega tvöfald-
aðist í tæplega 4.100 í fyrra.
Á verulegan þátt í fjölguninni
Fólki á vinnumarkaði, 16-74 ára,
fjölgaði úr um 176.600 árið 2011 í
208.400 í ársbyrjun 2021, samkvæmt
Hagstofunni, en nýrri tölur liggja
ekki fyrir. Athyglisvert er að bera
saman þessa fjölgun, um 32 þúsund
manns, við grafið hér. En ríflega 40
þúsund fleiri erlendir ríkisborgarar
hafa flust til landsins en frá því frá
ársbyrjun 2010, og er yfirgnæfandi
meirihluti þeirra á vinnualdri. Virð-
ist aðflutningur því eiga mikinn þátt
í fjölgun fólks á vinnumarkaði frá
upphafi hagvaxtarskeiðsins 2011 en
landsmönnum hefur síðan fjölgað úr
318.452 í 381.370 hinn 30. júní sl., eða
um tæplega 63 þúsund manns.
Aðflutningurinn hefur sem fyrr
segir margvísleg efnahagsleg áhrif.
Fyrir utan að manna störf og auka
einkaneyslu á Íslandi mun aðflutn-
ingurinn hafa áhrif á aldurssamsetn-
ingu þjóðarinnar. Þá með því að
hingað flytjist ungt fólk sem stofnar
til fjölskyldu og festir hér rætur. Má
í því skyni rifja upp að fulltrúar
Vinnumálastofnunar hafa í samtöl-
um við Morgunblaðið bent á að
ósjaldan flytjist fyrirvinnan fyrst til
landsins og síðan fjölskyldan.
Flytja hingað vegna starfa
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir
tölurnar undirstrika að fólk hafi
verið að flytjast hingað til starfa.
„Þetta hefur verið ungt fólk á
vinnualdri sem er hingað komið til að
vinna. Tölurnar bera með sér að
þetta eru í einhverjum tilvikum fjöl-
skyldur. Fjöldinn undirstrikar
hversu mikilvægur þessi aðflutning-
ur hefur verið fyrir hagvöxt, þ.e.
fyrir aukna verðmætasköpun ís-
lenska hagkerfisins. Vinnuaflsþörf
hagvaxtarins á þessum tíma hefur að
stórum hluta verið mætt með er-
lendu vinnuafli. Stöður hafa verið
mannaðar í greinum sem eru í hröð-
um vexti og hafa knúið hagvöxtinn.
Þörfin mun fara vaxandi
Þessar tölur árétta jafnframt mik-
ilvægi þess að við séum með opinn og
sveigjanlegan vinnumarkað hvað
varðar aðflutt vinnuafl. Við erum lít-
ið hagkerfi og náum ekki að mæta
þörf fyrir vinnuafl með innlendu
vinnuafli eingöngu. Litið til framtíð-
ar segir þetta líka að við erum komin
inn í breytt umhverfi þar sem vinnu-
aflsþörf verður í auknum mæli mætt
með erlendu vinnuafli,“ segir Ingólf-
ur. Ein afleiðingin af þessum að-
flutningi sé aukin húsnæðisþörf og
við því þurfi að bregðast með því að
byggja fleiri íbúðir.
Langflestir aðfluttra undir fertugu
- Frá 2010 hafa um 19 þúsund fleiri erlendir ríkisborgarar undir 40 ára aldri flutt til landsins en frá því
- Aðflutningurinn á verulegan þátt í auknu vinnuafli - Hefur áhrif á aldurssamsetningu þjóðarinnar
Aðfluttir umfram brottflutta eftir aldri, kyni, ríkisfangi 2010-2022*
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
15.000
10.000
5.000
0
-5.000
0-10
ára
10-19
ára
20-29
ára
30-39
ára
40-49
ára
50-59
ára
60+
ára
0-10 ára 10-19 ára 20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60+ ára **Tölur eru rúnaðar af og standa á heilum eða hálfum tug
Heimild: Hagstofa Íslands
Karlar Konur Samtals
0-10 ára 970 860 1.830
10-19 ára 2.210 2.130 4.340
20-29 ára 8.860 5.785 14.645
30-39 ára 4.795 2.755 7.550
40-49 ára 2.965 1.835 4.800
50-59 ára 1.060 755 1.815
60+ ára 170 180 350
21.030 14.300 35.330
Eftir aldri og kyni**Íslenskir Erlendir Samtals
0-10 ára -130 1.935 1.805
10-19 ára 310 4.090 4.400
20-29 ára -4.220 18.785 14.565
30-39 ára -880 8.375 7.495
40-49 ára -150 4.930 4.780
50-59 ára -95 1.910 1.815
60+ ára 30 340 370
Alls -5.135 40.365 35.230
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
Karlar
Konur
60%
40%
21%
21%
41%
17%
0-19 ára
20-29 ára
30-39 ára
40+ ára
*Til og með 30. júní 2022
(fyrstu sex mánuðir ársins)
Eftir aldri
og ríkisfangi
Íslenskir og erlendir
ríkisborgarar
26 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
TERRAFORM
17.995 kr./ 3 litir
St. 41-47,5
VATNSFRÁHRINDANDI OG MEÐ STÖMUM SÓLA
withMemory
Foam
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
HERRA GÖNGUSKÓR
SKECHERS
Fjarskipti Samningur Ljósleiðarans og Sýnar eflir samkeppni í fjarskiptum
að sögn Erlings Freys Guðmundssonar framkvæmdastjóra Ljósleiðarans.
einnig að því núna hvernig 10 ára
samningur við Sýn væri frá-
brugðinn 17 ára samningi Símans
við Mílu. Sá samningur tengist
fyrirhugaðri sölu á Mílu til fjár-
festingarfélagsins Ardian. Ljós-
leiðarinn hefur gagnrýnt samn-
inginn og sagt hann samkeppnis-
hamlandi.
Erling segir í svari sínu að um
samning milli tveggja ótengdra
fyrirtækja sé að ræða [Sýn og
Ljósleiðarinn] sem eigi langt við-
skiptasamband að baki. „Einka-
kaupasamningur í tengslum við
söluna á Mílu var til tvöfalt lengri
tíma og var gagnrýndur af nán-
ast hverjum einasta aðila sem
skilaði umbeðinni umsögn til
stjórnvalda. Þessi samningur
Ljósleiðarans og Sýnar eflir sam-
keppni í fjarskiptum, almenningi
til hagsbóta. Það var ekki mark-
mið einkakaupasamningsins,“
segir Erling í svari sínu.
tobj@mbl.is
endanlegir samningar liggi fyrir
eigi síðar en 15. desember nk.
Unnið að fjármögnun
Erling Freyr Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Ljósleiðarans segir
í skriflegu svari til Morgun-
blaðsins, spurður nánar um fjár-
mögnun kaupanna, að unnið sé að
henni og hlutafjáraukning sé ein
leiðanna sem til skoðunar séu,
eins og áður hafi komið fram.
Þegar ViðskiptaMogginn spurði
Erling fyrr í sumar út í fyrirhug-
aða hlutafjáraukningu, sem til-
kynnt var samhliða samningi
Ljósleiðarans við utanríkisráðu-
neytið um afnot af tveimur af átta
ljósleiðaraþráðum í ljósleið-
arastreng Atlantshafsbandalags-
ins, sagði hann að upplýst yrði um
áætlanir og fjármögnun á mark-
aði og til fjölmiðla í samræmi við
reglur Kauphallar og/eða þegar
það ætti við.
Morgunblaðið spurði Erling
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu fyrr í vikunni hafa fjar-
skiptafélagið Sýn og Ljósleið-
arinn,
dótturfélag
Orkuveitu
Reykjavíkur,
undirritað sam-
komulag um
einkaviðræður
og helstu skil-
mála samninga
sem lúta ann-
ars vegar að
sölu á stofnneti
Sýnar hf. til
Ljósleiðarans og hins vegar að
þjónustusamningi milli fyr-
irtækjanna til tíu ára.
Kaupverðið er þrír milljarðar
króna og er samkomulagið með
fyrirvara um fjármögnun, niður-
stöðu áreiðanleikakönnunar og
að Samkeppniseftirlitið sam-
þykki endanlega kaup- og þjón-
ustusamninga. Miðað er við að
Skoða hlutafjáraukningu til að
fjármagna kaup á stofnneti
Erling Freyr
Guðmundsson
STUTT
« Flugfélagið PLAY flutti 108.622 farþega í ágúst. Það er
sambærilegur fjöldi farþega og í júlí þegar 109.937 farþegar
flugu með PLAY. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir einnig að sætanýting í ágúst hafi numið 86,9%
samanborið við 87,9% í júlí og 79,2% í júní.
„Þróunin er áfram sérstaklega jákvæð, sem helgast eink-
um af tengiflugi PLAY yfir Atlantshafið á milli áfangastaða í
Evrópu og Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningunni.
„Eftir hraða en örugga uppbyggingu með fjölda nýrra
áfangastaða, innleiðingu tengiflugsleiðakerfis og móttöku
flugvéla er rekstur PLAY loks kominn í fastar skorður. Við-
skiptamódelið er orðið að veruleika. Enn og aftur er ég er sannarlega stoltur af
starfsfólki PLAY sem hefur gert þetta mögulegt,“ segir Birgir Jónsson forstjóri í til-
kynningunni.
Flug Rekstur Play í
fastar skorður.
Play flutti 109 þúsund farþega í ágústmánuði
8. september 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 142.93
Sterlingspund 165.49
Kanadadalur 108.91
Dönsk króna 19.082
Norsk króna 14.341
Sænsk króna 13.283
Svissn. franki 145.61
Japanskt jen 1.007
SDR 185.24
Evra 141.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 175.3971