Morgunblaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
SPORTÍS SKE I FAN 1 1
1 08 REYKJAV ÍK
S POR T I S . I S
520-1000
ÚTSÖLULOK
ENN MEIRI AFSLÁTTUR!
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti tel-
ur að Rússland hafi grætt á innrás-
inni í Úkraínu, ekki tapað neinu sem
máli skiptir. Þetta kom fram í máli
hans á efnahagsráðstefnu í Vladivo-
stok í gær, þar sem hann sagði að
Rússland stæði sterkara en áður með
því að hafa markað sér eigin braut og
að vegur landsins á alþjóðavettvangi
myndi aukast fyrir vikið, það yrði
heimsveldi á ný. Hann minntist þó
ekki á mikið mannfall rússneskra
hermanna.
„Við höfum engu tapað á hnatt-
rænum átökum við Bandaríkin vegna
Úkraínu,“ sagði Pútín og bætti við
með hernaðaraðgerðunum hefði
Rússland loks yfirunnið niðurlæging-
arnar, sem sigldu í kjölfar hruns Sov-
étríkjanna árið 1991.
Tölur benda til verri stöðu
Samkvæmt rússneskum hag-
skýrslum, sem kynntar voru bak við
luktar dyr í Kreml hinn 30. ágúst en
viðskiptafréttastofan Bloomberg
komst yfir, er staðan heima fyrir þó
mun verri en Pútín vill vera láta.
Við Rússlandi blasir nú kröpp og
löng efnahagslægð, sem nú þegar
hefur komið hart niður á fjölmörgum
atvinnugreinum og helstu aflvélum
efnahagslífsins. Bjartsýnasta spáin
gerir ráð fyrir að á næsta ári nemi
efnahagssamdrátturinn 8,3%, frá því
sem var fyrir innrásina, en svart-
sýnni spá gerir ráð fyrir að botninum
verði náð 2024 og samdrátturinn
verði 11,9%. Gert er ráð fyrir því að
þó allt fari á besta veg muni rúss-
neskt hagkerfi ekki rétta úr kútnum
fyrr en í lok þessa áratugar, jafnvel
síðar.
Takist Vesturlöndum að venja sig
af rússnesku jarðefnaeldsneyti verða
Rússar af gríðarlegum tekjum. Þeim
hefur tekist að finna nýja markaði
fyrir töluvert af olíuframleiðslunni,
en verulega undir heimsmarkaðs-
verði. Hins vegar er mun erfiðara að
finna kaupendur að jarðgasi, enda
kallar það á mikla innviði, leiðslur eða
sérstakar hafnir, og þeir eru ekki
hristir fram úr erminni. Sömuleiðis
er alls óvíst að nýir markaðir finnist
fyrir málma, efnaiðnað eða viðarvöru.
Til að gera illt verra er hafinn
spekileki frá landinu og áætlað að um
200.000 manns úr upplýsingageira
hafi sig á brott úr landinu á næstu 2-3
árum. Margháttaður iðnaður og
tæknigreinar eru sem lömuð vegna
þess að íhluti og hráefni skortir sár-
lega, m.a. til lyfjaframleiðslu, og eng-
ar líkur á að aðrir birgjar finnist.
Fyrirsjáanlegt er að SIM-kort í síma
verði uppurin fyrir 2025.
Mihaíl Klímentjev/Spútník/AFP
Glámskyggni Vladimír Pútín Rússlandsforseti fylgist með heræfingum í gær.
Pútín leikur á als oddi
- Rússlandsforseti segir Úkraínustríðið afar vel heppnað - Telur Rússland
standa sterkara og hafa engu tapað - Leynilegar hagtölur segja allt aðra sögu
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra
Noregs, segir að Norðmenn vilji
hjálpa þjóðum Evrópusambandsins
(ESB) að lina orkukreppuna og úti-
lokar ekki að verðþak verði sett á
norskt jarðgas með það fyrir augum.
Framkvæmdastjórn ESB gaf til
kynna um helgina, að hún kynni að
setja verðþak á gas, en Støre sagði í
samtaki við Financial Times í gær,
að hann útilokaði slíkt ekki.
Útflutningur Norðmanna á olíu og
gasi náði nýjum hæðum á síðasta ári
en innrás Rússa í Úkraínu í febrúar
hefur gert það að verkum að Nor-
egur er nú mesta orkulind álfunnar.
Varar við því að aftengja
framboð og eftirspurn
Að sögn Støre hefur sala á jarð-
gasi til ESB aukist um 10% á þessu
ári. Hann varaði sambandið hins
vegar við því að grípa til ráðstafana,
sem gætu gengið meira á orkubirgð-
ir í Evrópu en nauðsynlegt væri.
Framundan væri vetur sem gæti
orðið harður, orka dýr og af skorn-
um skammti.
Verðlagshömlur á orku kæmi
neytendum vafalaust vel. Um leið
væri hið eðlilega samband framboðs
og eftirspurnar aftengt. Þá yrði ork-
an seld út á lægra verði en framboðið
gæfi tilefni til. Annað orkuframboð í
Evrópu er af ýmusm ástæðum einn-
ig mun minna en vanalega.
Bæði ESB og G7-hópur stærstu
iðnríkja heims hafa rætt um að setja
slíkt verðþak á orku, enda mikill
pólitískur þrýstingur um allan heim
á að lækka orkureikninga. Á hinn
bóginn vara margir hagfræðingar
við því, þar sem þá verði eftirspurn
ekki stillt í hóf og afleiðingin meiri
orkuskortur en ella.
Verðþak mögu-
legt á norskt gas
- Vilja hjálpa ESB að lina orkukreppu
Christine Olsson/TT/AFP
Noregur Jonas Gahr Støre útilokar
ekki verðþak en varar þó við því.
Rússneskur blaðamaður hefur ver-
ið dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir
landráð en í ákærunni var hann
sakaður um að hafa komið hern-
aðarleyndarmálum á framfæri við
tékkneska njósnara.
Ívan Safronov, sem er 32 ára
fyrrverandi blaðamaður fyrir blöð-
in Kommersant og Vedomosti, neit-
aði öllum sökum og hafði áður
hafnað tilboði saksóknara um mun
vægari refsingu gegn játningu.
Rússnesk stjórnvöld hafa mjög
hert tökin á fjölmiðlum í Rússlandi
eftir að innrásin í Úkraínu hófst og
sárafáir sjálfstæðir fjölmiðlar eru
eftir í landinu. Á mánudag var
Novaja Gazeta svipt útgáfuleyfi
með dómsúrskurði.
RÚSSLAND
Natalía Kolesníkova/AFP
Moskva Blaðamaðurinn Ívan Safronov.
Blaðamaður dæmd-
ur í 22 ára fangelsi
Skipun Therese
Coffey sem heil-
brigðisráðherra í
Bretlandi varð
óvænt eitt um-
deildasta ráð-
herraval hins
nýja forsætisráð-
herra, Liz Truss.
Ekki þó á póli-
tískum for-
sendum, heldur meira á persónu-
legu nótunum, þar sem gagnrýnt
hefur verið að hún sé reykinga-
manneskja og alltof feit. Ekki fari
vel á því í heilbrigðisráðuneytinu.
Spurð að þessu í útvarpsviðtali
við Nick Ferrari á LBC, sagðist
Coffey ekki vera til fyrirmyndar
um það en starf ráðherra fælist í
öðru en að vera fólki fyrirmynd.
Skiptar skoðanir reyndust á því á
félagsmiðlum í gær.
BRETLAND
Heilbrigðisráðherra
of feitur og reykir
Therese Coffey.
Árviss kynning Apple á nýjum i-
Phone-afurðum átti sér stað í Kali-
forníu í gær. Til þess var tekið að
tölvurisinn býður nú dýrari iPhone
en nokkru sinni fyrr, um 16% dýrara
en fyrra flaggskip.
Líkt og margir áttu von á var
nokkur breyting gerð á iPhone-
línunni. Nú eru í boði iPhone SE fyr-
ir smáar hendur, iPhone 12 og 13
verða áfram seldir en svo komu bæði
iPhone 14 og iPhone 14 Pro, báðir í
tveimur stærðum.
Framfarir frá síðasta ári felast
helst í betri myndavélum og öflugri
örgjörvum, auk þess sem að venju
eru nýir litir í boði. Þá er skjárinn
alltaf virkur. Hinn nýi A16 Bionic ör-
gjörvi er sá hraðasti í nokkrum
snjallsíma. Myndavélin er orðin 48
megapixla, með þreföldum linsuað-
drætti og stórbættri töku við léleg
birtuskilyrði. Þá er nýi síminn með
gervihnattatengingu sem nota má til
að senda út neyðarkall og staðsetn-
ingarskilaboð ef í harðbakkann slær.
Apple kynnti fleira en nýjan
iPhone. Þar á meðal nýja kynslóð
Apple-úra og margvíslegar hugbún-
aðarframfarir.
Apple kynnir nýja iPhone-uppskeru
- iPhone 14 línan kemur á markað
- Neyðarsamband um gervihnött
Apple
iPhone 14 Pro Max er með holu fremur en skoru fyrir nema á skjánum.