Morgunblaðið - 08.09.2022, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
Hægt er að útfæra poke-skálar
á marga vegu en framsetningin
skiptir máli. Bera þarf poke
fram í skál og það má alls ekki
blanda hráefnunum saman. Sá
sem borðar ákveður hvort
hann vill blanda eður ei.
Hér erum við með geggjaða
poke-skál frá Lindu Ben þar
sem hún notar risarækjur.
Risarækju-poke-skál
Hrísgrjón
2 dl hýðishrísgrjón
1 tsk. sesamolía
1⁄4 tsk. salt
Marineraðar rækjur
400 g risarækjur
steikingarolía
salt
2 msk. sojasósa
1 msk. sesamolía
1 msk. sriracha-sósa
1 tsk. hunang
1 msk. niðursoðið engifer
1⁄4 blaðlaukur
Marineraðar agúrkur
3⁄4 agúrka
2 tsk. hunang
1 msk. hvítvínsedik
1⁄4 tsk. salt
½ tsk. þurrkaðar chiliflögur
1 tsk. sesamolía
Sterkt majónes
3 msk. majónes
1 msk. sriracha-sósa
2 tsk. safi af niðursoðnu engi-
feri
2 tsk. sojasósa
1 tsk. sítrónusafi
1 tsk. hunang
1⁄4 tsk. sesamolía
Klípa af salti
Toppur
Frosnar edamamebaunir
Wakame-salat
Mangó
sesamfræ
Aðferð:
Byrjið á að sjóða hrísgrjónin
í 4 dl af vatni, setjið sesamolíu
og salt í vatnið og sjóðið var-
lega þar til hrísgrjónin eru
mjúk í gegn.
Steikið affrystu risarækj-
urnar upp úr olíu og smá salti
þar til þær eru eldaðar í gegn.
Gerið marineringuna með
því að blanda saman sojasósu,
sesamolíu, srirachasósu, hun-
angi, niðursoðnu engiferi og
smátt söxuðum blaðlauk. Setjið
elduðu risarækjurnar ofan í
marineringuna og blandið vel
saman.
Skerið agúrkurnar í bita og
setjið í skál. Hellið yfir þær
hvítvínsediki, salti, þurrkuðu
chili og sesamolíu, blandið vel
saman.
Útbúið majónesið með því að
blanda öllum innihaldsefnum
saman í skál.
Sjóðið edamamebaunirnar í
5 mín. og setjið örlítið salt í
vatnið.
Wakame-salatið er keypt
tilbúið í Tokyo sushi í Krón-
unni.
Flysjið og fjarlægið steininn
úr mangóinu, skerið það svo í
bita.
Setjið fyrst hrísgrjón í skál-
ar, svo risarækjurnar, mar-
ineruðu agúrkurnar, edamame-
baunirnar, mangóið,
wakame-salatið og sósuna yfir.
Dreifið sesamfræjum yfir.
Svona gerir
þú geggjaða
poke-skál
Það eru allir með poke-skálar á heilanum
þessa dagana enda eru slíkar skálar stór-
merkilegar. Þær eiga rætur að rekja til
Kyrrahafsins þar sem þær voru þróaðar
af sjómönnum. Poke þýðir eitthvað nið-
urskorið og í góðri skál er grunnurinn nið-
urskorinn hrár fiskur. Síðan er blandað
við sterkju og grænmeti og þannig er
rétturinn borðaður.
Ljósmynd/Linda Ben
Ævintýralega fallegt Poke-skálar eru yfirleitt litskrúðugar og girnilegar.
Heilsudagarnir standa frá 8. til
18. september en þar geta
neytendur gert frábær kaup á
alls kyns heilsuvöru og vítam-
ínum. Flestar heilsuvörur
verða á tilboði þessa daga og
eru margir duglegir að nýta sér
það til að birgja sig upp fyrir
veturinn. Þannig má spara
stórar fjárhæðir. Einnig má
kynnast nýjum og spennandi
vörum og leiðum til að bæta
heilsuna.
Heilsudagarnir hefjast, eins
og fyrr segir, í dag og standa
yfir í öllum verslunum Hag-
kaups til 18. september.
Heilsudag-
ar Hag-
kaups hefj-
ast í dag
Það heyrir alltaf til tíð-
inda þegar verslanir
bjóða upp á skemmti-
lega þemadaga og þar
fremstir í flokki eru
sjálfsagt Heilsudagar
Hagkaups.