Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 38

Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 ✝ Stefán Sig- urðsson fædd- ist í Reykjavík 27. júní 1953. Hann lést á Landspít- alanum 31. ágúst 2022. Foreldrar hans voru Stefanía Að- alsteinsdóttir hús- móðir, f. 1. nóv- ember 1922, d. 12. janúar 1999, og Sigurður Krist- jánsson þjónn, f. 13. febrúar 1922, d. 21. nóvember 1980. Systkini hans voru Valgerður Jóna, f. 25. júlí 1943, Ragnar Að- alsteinn, f. 5. október 1944, d. 3. september 2017, og Sigurður, f. lék fótbolta með Val. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Hamrahlíð, stundaði nám í verkfræði við Háskóla Ís- lands og lauk meistaraprófi í byggingarverkfræði frá Cor- nell-háskóla í Bandaríkjunum árið 1978. Eftir heimkomu starf- aði Stefán á Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen en var lengst af sjálfstætt starfandi verkfræð- ingur. Stefán og Helga bjuggu fyrstu ár hjúskapar á Freyju- götu en fluttu síðar á Hjarð- arhaga. Stefán var alla tíð mikill áhugamaður um fótbolta og tók þátt í félagsstarfi Vals bæði gegnum eigin ástundun og síðar meir í gegnum Dóru dóttur sína. Útför Stefáns fer fram frá Neskirkju í dag, 8. september 2022, klukkan 13. 9. desember 1951, d. 1. janúar 2012. Stefán kvæntist hinn 7. ágúst 1982 Helgu Jónsdóttur, f. 21. september 1954, d. 25. nóvember 2016. Dætur þeirra eru: 1) Dóra verk- fræðingur, f. 27. apríl 1985, gift Önnu Olsheimer sálfræð- ingi, f. 18. maí 1979. Þær eiga dæturnar Elwu, f. 2009, Elise, f. 2015, og Lilju, f. 2019, þær búa í Svíþjóð. 2) Anna læknir, f. 9. apr- íl 1989, hún býr í Danmörku. Stefán ólst upp á Miklubraut í Reykjavík, gekk í Hlíðaskóla og Stefán frændi var eldklár og litríkur persónuleiki. Hann var metnaðarfullur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og það sem hann var að fást við átti hug hans allan. Honum var mikið í mun að segja frá því sem hann hafði upp- götvað, deila með manni góðum ráðum og stóru augun hans gneistuðu þá af áhuga. Hann var fljótur að hugsa og gat orðið ei- lítið óþolinmóður ef aðrir fylgdu honum ekki eftir. Hann vildi lifa til fulls á meðan þess var kostur en langvinn veikindi háðu honum verulega síðustu árin. Hann vissi að hann myndi ekki ná háum aldri og því var það reiðarslag að Helga konan hans færi á undan honum eftir skammvinn veikindi. Síðustu árin hittum við Stefán alltof sjaldan en stundum fyrir tilviljun, í Vesturbæjarlauginni eða Melabúðinni þar sem hann var fastagestur. Þá fylgdumst við með honum í gegnum Face- book ferðast til Svíþjóðar, Dan- merkur og Tenerife. Hann lifði nánast fyrir þessar ferðir, taldi niður dagana og þegar maður hitti hann sýndi hann manni ferðaáætlanirnar sem voru út- hugsaðar og nákvæmar. Dæt- urnar og barnabörnin voru hon- um allt en einnig talaði hann svo fallega um nágranna sína. Við hefðum viljað hitta frænda oftar og það verður skarð fyrir skildi þegar við fjölskyldan minnumst elsku ömmu á Mikló þann 1. nóv- ember næstkomandi, en þá hefði hún orðið hundrað ára. Kæru systur, Dóra og Anna, þið hafið misst mikið, alltof fljótt. Við samhryggjumst ykkur inni- lega. Stefanía (Deddý), Marín, Guðrún, Kolbrún og Sigrún, dætur Jónu systur. Við hjónin viljum með nokkr- um orðum minnast vinar okkar Stefáns Sigurðssonar. Leiðir okkar og þeirra hjóna Helgu og Stefáns lágu saman í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem við vorum nágrannar. Við urðum ferða- félagar til heitari landa ár eftir ár og áttum ógleymanlegar stundir saman. Það var átakanlegt þegar Helga veiktist skyndilega haust- ið 2016 og lést skömmu síðar. Hún sem stundaði sund og göng- ur og ljómaði af gleði og heil- brigði var allt í einu kölluð á brott. Þetta var mikið áfall en að sjálfsögðu mest fyrir fjölskyld- una. Stefán gekk þá þegar ekki heill til skógar en stóð sig vel í að aðlagast breyttum aðstæðum. Hann talaði mikið um Helgu sína sem eflaust hefur gert honum lífið léttara. Svo hellti hann sér m.a. út í matargerð af mikilli natni og útsjónarsemi. Hann var öðrum til leiðbeiningar í þeim efnum og eignaðist marga aðdá- endur á fésbókinni. Samband okkar við Stefán hefur verið náið síðustu árin og tengdist það m.a. áhuga á enska boltanum. Við héldum einnig ferðum okkar suður á bóginn áfram og var ein slík á teikni- borðinu síðar á þessu ári. Við vottum dætrum Stefáns dýpstu samúð um leið og við þökkum fyrir samfylgdina. Við munum sakna Stefáns. Valgerður og Arvid. Mig langar að minnast góðs vinar og skólabróður í fáeinum orðum. Ég kynntist Stefáni þegar við hófum nám í byggingarverk- fræði í Háskólanum haustið 1973. Allmargir innrituðust þetta árið, en margir heltust úr lestinni og loks vorum við aðeins fjórir byggingarverkfræðingar sem útskrifuðumst fjórum árum síðar. Tveir eru nú fallnir frá. Námið var krefjandi og hóp- urinn hélt saman og kynntist vel, bæði innan skóla og utan. Í frí- mínútum var drukkið mikið kaffi og reykt og alltaf var spilað brids þegar laus stund gafst. Heimaverkefnin voru leyst í svo nánu samstarfi að kennurum þótti stundum nóg um. Svo fór eitt sinn að við skiluðum fjórum samhljóða úrlausnum en kenn- arinn gaf eina einkunn og deildi henni í fjóra parta. Að loknu námi í HÍ var haldið utan til framhaldsnáms og þann- ig vildi til að við Stefán fengum skólavist og styrki til náms í sama skóla, Cornell-háskólan- um í Bandaríkjunum. Við leigð- um saman íbúð og tókumst á við námið af harðfylgi, einn kaldan vetur í Íþöku. Stefán hafði oft á orði að hann hefði aðeins búið með einni manneskju lengur en mér, nefnilega Helgu sinni. Stefán bar starfsheitið verk- fræðingur alla tíð með stolti og hann var afar hreykinn af að hafa stundað nám í hinum virta Cornell-háskóla. Að námi loknu tók alvara lífs- ins við. Stefán kynntist stóru ástinni í lífi sínu, Helgu Jóns- dóttur, og voru þau gefin saman 1982 í Dómkirkjunni. Mér hlotnaðist sá heiður að vera svaramaður Stefáns og þótti mér afar vænt um það. Stefán og Helga bjuggu í farsælu hjónabandi þar til Helga lést ár- ið 2016, langt fyrir aldur fram. Stefán og Helga voru afar ólíkir einstaklingar en áttu einkar vel saman og bættu hvort annað upp af sannri ást og virðingu. Fjölskyldur okkar Stefáns hafa haldið reglulegu og góðu sambandi í gegnum tíðina og við eigum margar góðar minningar frá öllum þessum árum sem lið- in eru. Síðustu misserin gerðist Stefán matgæðingur og fór að birta færslur á Facebook undir heitinu Eldhús einbúans. Var hann þá orðinn nútíma „áhrifa- valdur“ sem vakti athygli fyrir gómsæta rétti og hugvitsam- lega nýtingu hráefna. Þessi lokakafli í lífi Stefáns er fallegt dæmi um hve hann var dugleg- ur maður og klár. Hann lagði sig allan fram við hvert það verk sem hann tókst á hendur, hann lagði metnað í að finna snjallar lausnir á viðfangsefninu og kom þá gjarnan fram með eitthvað sem engum öðrum hefði hug- kvæmst. Stefán var hjartahlýr maður og með afbrigðum skapgóður og æðrulaus. Ekki kvartaði hann yfir hlutskipti sínu í baráttu við erfið veikindi síðustu árin held- ur tókst á við þau eins og hvert annað verkefni. Hann var vinur vina sinna og hann fór aldrei dult með ást sína á Helgu sinni, dætrunum Dóru og Önnu og barnabörnunum sem hann dýrkaði meira en allt annað. Stefán hefur nú lokið sínu lífsverki og er horfinn á braut. Minningin um góðan dreng lifir. Árni Árnason. Stefán Sigurðsson ✝ Sólveig fæddist í Kjólsvík, Desjarmýrarsókn, 25. maí 1937. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 30. ágúst 2022. Foreldrar henn- ar voru Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 10.2. 1920, í Kjólsvík, Desjarmýrarsókn, N-Múl., d. 20.1. 2018, og Jóhann Sigurður Guð- mundsson, f. 29.8. 1922 í Bakka- gerði, Borgarfirði eystra, N- Múl., d. 8.2. 1994. Sólveig á eina sammæðra systur, Ásdísi Jónsdóttur, f. 1949, og einn sam- feðra bróður, Guð- brand Ragnar Jó- hannsson, f. 1949. Hún var gift Jón- asi Guðmundssyni, f. 1941, d. 2011. Sólveig eignaðist engin börn en af- komendur Ásdísar voru henni kær: El- ísabet Stef- ánsdóttir, f. 1974, Ásgrímur Stefánsson, f. 1976, og Sigurbjörg Stefánsdóttir, f. 1991. Útförin fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 8. september 2022, klukkan 13. Elsku stóra systir, erfitt er til þess að hugsa að nú verða sam- verustundirnar og símtölin ekki fleiri. Ég mun sakna þess að heyra rödd þína og tala saman um alla heima og geima. Það er sárt að kveðja bestu vinkonu sína, þú sem hefur fylgt mér í gegnum lífið og þekkir allar mínar sögur. Ég leit alltaf upp til þín og man sem barn hvað ég öfundaði þig af fallegu kjólunum og hvernig þú sveifst um gólfið í þeim. Ég, þú og mamma vorum eining og hugsuðum hver um aðra. Þegar ég var lítil og mamma vann á Landakoti leist þú eftir mér og þegar þú varst orðin fullorðin kona leit ég eftir þér. Þú hafðir skemmtilegan húm- or, varst hress og með stórt hjarta. Það var því óumflýjan- legt að þú áttir margar vinkonur sem héldu tryggð við þig alla ævi. Ein vinkonan hafði orð á því um daginn hvað þú hefðir verið raungóð og með stórt hjarta. Ég tek undir það og nutu börn mín og barnabörn góðs af gjafmildi þinni. Þú varst trúuð kona og það síðasta sem þú sagðir við mig var að þú fælir þig drottni þín- um. Það er huggun í því að vita að núna ertu komin til mömmu, afa og Jónasar. Ég veit að þér líður vel hjá fólkinu þínu. Ég þakka þér fyrir ferðalagið og við sjáumst síðar. Kær kveðja. Litla systir, Ásdís Jónsdóttir. Sólveig frænka, eins og ég kallaði hana alltaf. Mér finnst samt eins og það þyrfti annað orð til þess að geta lýst því sem hún var fyrir mig. Sólveig var ævintýragjörn, ferðaðist um allt og lifði lífinu sínu til fulls. Ef það væri eitt lýsingarorð sem ætti þó best við hana frá mínu sjónarhorni séð þá væri það skvísa. Hún leit alltaf svo vel út, skartið vantaði aldrei á hana ásamt vel lökkuðum nögl- um, snyrtivörurnar aldrei langt undan og það yrði erfitt að finna svarta flík í hennar fataskáp. Hún gaf mér mínar fyrstu snyrtivörur og ég fylgdist vel með því hvernig hún setti á sig rauðu varalitina og litríku augn- skuggana, ég ætlaði að vera eins og hún, svona spennandi. Þegar við systurnar kíktum á hana í Ljósheimunum, horfðum á spólur og lékum okkur með allt dótið sem þar var að finna komum við aldrei tómhentar út. 500 krónunum var laumað í litlu hendurnar þegar við fórum út eða ýmsum öðrum spennandi hlutum, gömlu dóti og skarti. Þegar ég svo flutti í bæinn gat ég farið að hugsa meira um hana eins og hún hugsaði um okkur. Skvísan hvarf nefnilega aldrei úr henni svo ferðirnar til hennar með eldrauða naglalakk- ið og naglalampann urðu okkar stundir, þar sem ég gat fengið að gera hana fína og heyra hverjar nýjustu fréttirnar voru. Síðan fór sjónin aðeins að versna, en það var ekkert mál, hún hélt áfram að gera sig fína með örlítilli hjálparhönd þegar augabrúnaliturinn eða varalitur- inn fór aðeins út fyrir. Hún var einstakur og skemmtilegur karakter og fylgir því mikill söknuður að hún sé ekki hérna með okkur lengur. Ég kveð hana með miklu þakklæti fyrir allt það sem hún gerði fyrir mig og lofa henni því að skvísan hennar mun lifa í okkur hinum. Ástarkveðjur, Birgitta Rós Ásgrímsdóttir. Sólveig, það er sárt að kveðja síðasta íbúann í Ljósheimum. Mikið rosalega er það táknrænt að þið þrjú bjugguð á stað sem heitir Ljósheimar, það er svo sannarlega rétt lýsing á ykkur. Sólveig frænka var spennandi karakter þegar maður var barn. Hún gekk með hatta, lagði mik- ið upp úr því að vera fín og snyrtileg eins og fína fólkið, gekk á hælum, var fallega brún með varalit og fínt naglalakk. Maður fékk alltaf naglalakk í Ljósheimum og fékk að máta fallegu hælaskóna. Sólveig var dugleg að ferðast og skemmta sér í góðra vina hópi, hafði mik- ið gaman af því að dansa og ég held að þannig hafi hún kynnst Jónasi manninum sínum. Sólveig og amma bjuggu saman alla tíð eftir að Ásgrímur afi dó. Það breyttist ekki eftir að Jónas kom til sögunar og þau bjuggu saman öll þrjú í Ljósheimum. Ljósheimar 18A voru griða- staður barna, þar var alltaf tími fyrir mann. Þetta var drauma- staður barns, flest gert til að láta allar óskir rætast. Allar söngvamyndirnar sem við horfðum á saman og ekki má gleyma Tomma og Jenna, þú fannst allaf svo mikið til með Tomma. Mamma vann mikið og pabbi úti á sjó, þá kom amma og var með okkur Ásgrím, þeg- ar þú áttir sjálf frí komst þú og varst með okkur. Það var stanslaus gestagang- ur heima hjá ykkur, alltaf stóðu dyrnar opnar og það var tekið vel á móti fólki, þar var alltaf tími fyrir alla. Það var mikil hlýja og gleði í kringum ykkur. Þú varst gríðarlega gjafmild og vildir að allir hefðu nóg. Það er ekki að ástæðulausu að dóttir mín er skírð í höfuðið á ykkur systrum. Sólveig okkar svo hjartahlý ömmu hittir enn á ný, Jónas bíður eftir þér við stöndum eftir hér. Hinsta kveðja, Elísabet Stefánsdóttir og fjölskylda, Ásgrímur Stefánsson og fjölskylda. Hún Sólveig er farin. Hafin upp til dýrðarinnar, eins og sagt er í Hjálpræðishernum. Dýrðin er hjá Guði. Dýrðin er Guð. Ung að árum kynntist hún hernum og kaus að gerast her- kona. Þar var hún allt til lífs- loka. Ég kynntist henni þegar við vorum kornungar í Kópa- vogsskóla, sem þá var eini skól- inn í Kópavogi. Birna kynntist henni líka á æskuárum. Það var á Landakoti og leigðu þær sam- an íbúð. Á Landakoti náðum við sam- an aftur, báðar í æskublóma. Unnum við aðhlynningu sjúkra. Síðan fór Sólveig að læra til sjúkraliða og var hún í fyrsta hópi þeirra sem útskrifuðust frá Landakoti 1966. Hún vann við hjúkrun ævilangt. Það má segja að lífið hafi ekki gengið án baráttu. Alin upp hjá ein- stæðri móður með litlu systur sinni sem hún elskaði og dáði. Litla systir var ljósgeisli mæðgnanna. Sólveig bar mikla umhyggju fyrir litlu hnátunni. Sú ást og umhyggja hefur verið endurgoldin. Dísa var alltaf til staðar fyrir hana. Eftir að hún byrjaði að veikjast og eftir því sem hún varð lasnari. Sólveig gekk í hjónaband en það var barnlaust og fannst okkur að fjölskylda Dísu systur hennar væri nánast eins og þeirra hjóna. Enda lét dóttir Dísu heita eftir þeim systrum. Jafnt skyldi ganga yfir báðar. Þín verður sárt saknað af fjölskyldu þinni og vinum. Við vottum Dísu og fjölskyldu dýpstu sam- úð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Þínar vinkonur, Hanna Kolbrún og Birna Sveinsdóttir. Ljósheimar; að hugsa sér þetta nafn. Þar áttu amma, Sólveig og Jónas heima, Ljósheima-þrenn- ingin. Fyrir tilstilli þeirra mun vera ljós í hjarta mínu um ókomna tíð. Sólveig var fagurkeri og fegraði umhverfið með nærveru sinni, klæðaburði og innan- stokksmunum. Gildismat henn- ar á veraldlega hluti snerist ekki um tísku og strauma, einu gilti hvort hlutirnir væru frá Kolaportinu eða Tékk-Kristal. Þetta gerði það að verkum að heimili þeirra Sólveigar, Jón- asar og ömmu var undraveröld fyrir mig sem barn. Þetta var póstmódernísk tímavél, sinfónía þar sem öllu ægði saman en samt svo fullkominn samhljóm- ur; rókókó-sófasett og eftir- prent af Lómagnúpi, marokk- ósk gólfpulla og upptökur af teiknimyndinni Heiðu. Lífið var aðeins meira spenn- andi með Sólveigu vegna þess að hún fór í gegnum lífið á sín- um takti. Með henni fór maður í grasagarðinn, taldi kirkju- tröppur á Akureyri og síðar skálað í hvítvíni í kristalsglös- um. Það sýnir ákveðið viðmót gagnvart lífinu hvað hún var alltaf vel tilhöfð í fallegum föt- um, með naglalakk og ótal gull- hringi. Hversdagurinn getur ekki verið annað en aðeins betri. Sólveig var einstaklega gjaf- mild og lagði mikið upp úr því að gleðja aðra. Í sorginni finn ég ekki síst til þakklætis fyrir minningarnar, tímann sem hún gaf mér. Það er inneign sem ég bý að alla ævi, það að fá að upplifa að maður skipti máli. Þakka þér fyrir blíða viðmótið, áhugann, þolinmæðina og tím- ann. Nú kveð ég seinasta meðlim Ljósheima-þrenningarinnar. Það svíður sáran en ég er rík að hafa átt ykkur að. Sigurbjörg Stefánsdóttir. Sólveig Jóna Jóhannsdóttir Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.