Morgunblaðið - 08.09.2022, Qupperneq 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
SÉRFRÆÐINGAR Í
GÓÐGERLUM
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
50 ÁRA Valdimar fædd-
ist á Sauðárkróki og ólst
upp í Sólheimum í Sæ-
mundarhlíð í Skagafirði.
Hann hefur búið þar alla
tíð fyrir utan þann tíma
sem hann starfaði við
Bændaskólann á Hólum
1996-99, meðal annars sem
bústjóri. Valdimar útskrif-
aðist sem búfræðingur það-
an 1991. Valdimar tók síð-
an við búskap í Sólheimum
af foreldrum sínum árið
1999. Foreldrar Valdimars
tóku þá smá skika af jörðinni, og nefndu Lindabæ, og búa þar. Þar er risið
búminjasafn, en Sigmar, faðir Valdimars, hefur verið að safna dráttarvélum
gegnum tíðina.
„Við erum aðallega með mjólkurframleiðslu, og fáein hross til að vera eins
og hinir í Skagafirði,“ segir Valdimar aðspurður. „Við erum með tæplega 60
kýr og annað eins af ungviði.“
Valdimar hefur tekið þátt í félagsmálum í sveitinni í gegnum tíðina, verið
stjórnarmaður í Félagi kúabænda í Skagafirði, Búnaðarsambandi Skagfirð-
inga, Leiðbeiningarmiðstöðinni og fleiri stjórnum. Hann var varamaður í
sveitarstjórn á síðasta kjörtímabili fyrir Vinstri-græna og óháða, sat í land-
búnaðarnefnd og sem varafulltrúi skipulags- og byggingarnefndar. Hann er
núna stjórnarmaður í Veiðifélagi Sæmundarár.
„Það er laxveiðiá sem rennur eftir Sæmundarhlíðinni og heitir Sæmund-
ará. Hún heitir reyndar Staðará þegar hún kemur hérna neðar, en við köllum
hana alltaf Sæmundará. Ég hef samt engan áhuga á stangveiði, ég lenti bara
í stjórn. Þetta er svona í sveitinni, það þarf einhver að gera hlutina. Mín
áhugamál eru fyrst og fremst búskapur.“
FJÖLSKYLDA Sambýliskona Valdimars er Guðrún Kristín Eiríksdóttir, f.
1977, bóndi og líftæknifræðingur. Börn þeirra eru Sævar Óli, f. 1996, Berg-
lind Vala, f. 2000, og Herdís Lilja, f. 2005. Foreldrar Valdimars eru hjónin
Sigmar Jóhannsson, f. 1947, og Helga Stefánsdóttir, f. 1942.
Valdimar Óskar Sigmarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú verður að leggja þig fram um að
fá það besta út úr málum, þótt á brattann
sé að sækja. Leitaðu ráða hjá þér reyndari
mönnum, ef einhver efi leynist í brjósti þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Skarpskyggni þín hjálpar þér við að
greiða úr flækjunum í einkalífinu. Taktu
ákvörðun um að draga úr ósiðum og reyndu
að hlúa betur að jákvæðu þáttunum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Ekki fresta því til morguns sem
þú getur gert í dag. Þú vilt halda friðinn, en
þarft samt sem áður að geta lýst tilfinn-
ingum þínum og því sem þér líkar eða mis-
líkar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Frestaðu öllum framkvæmdum
meðan þú ert að gera þínum nánustu grein
fyrir því hvað það er sem þú raunverulega
vilt. Slepptu tökunum og láttu reyna á hvað
gerist.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er þýðingarlaust að reyna að hafa
áhrif á þróun mála í vinnunni í dag. Mundu
að lengi skal manninn reyna.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Ef þú býst við að ná árangri ertu að
komast nær takmarkinu. Segðu nákvæm-
lega hvað þig vantar, þú færð það líklega.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Í dag gefst gott tækifæri fyrir þýðing-
armiklar samræður við aðra. Fólk á sömu
línu elskar að heyra nýjustu kenningarnar
þínar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert tilbúinn til að leggja
hart að þér í vinnunni. Gættu þess að
árangur þinn sé ekki of dýru verði keyptur.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Ef þú ætlar að koma einhverju í
verk í dag þarftu að forðast alla truflun.
Sannur vinur kemur þér til hjálpar.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú þarft á öllu þínu að halda til
þess að ljúka við það stóra verkefni sem þú
hefur tekið að þér. Þú ert bjartsýnn og
ákveðinn í að allt gangi þér í haginn.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Nú væri tilvalið að gera út um
gömul deilumál og grafa stríðsöxina. Betra
líf og innihaldsríkara er handan við hornið.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Stundum verður maður að viður-
kenna staðreyndir sem eru manni á móti
skapi. Til er fólk sem alltaf hefur skoðanir
sem sjaldnast koma þér að gagni á þinni
vegferð.
„Við bjuggum í framhaldinu úti í
Bretlandi í tvö ár með fjölskyldum
okkar, það var mikið ævintýri.“ Alls
hefur Mezzoforte gefið út 13 stúdíó-
plötur.
Gulli hefur spilað með fjölda tón-
listarmanna, innlendra sem er-
lendra, m.a. Madonnu fyrir myndina
fór hann í einkatíma hjá Pétri Öst-
lund og tók „Encore“-námskeið í
Musicians Institue í Los Angeles
1994.
Fyrsta plata Mezzoforte kom út
1979 og síðan sló sveitin í gegn er-
lendis árið 1983 með laginu Garden
Party af plötunni Surprise, Surprise.
G
unnlaugur Briem fædd-
ist 8. september 1962 í
Reykjavík og ólst upp á
Rauðalæk í Laugarnes-
inu. „Það var spennandi
að alast upp á þessu svæði, það var
allt hrátt þarna, við vorum að reykja
njóla, leita að fjögurra blaða smárum
og veiða ufsa niðri við sjó. Ég man
eftir að Sigurður Ólafsson óperu-
söngvari var þarna með hesta.
Mamma reyndi að fá mig til að fara í
sveit, en ég harðneitaði. sem ég sé
eftir í dag. Vildi frekar hlusta á
Slade og sökkva mér í plötuspil-
arann minn,“ en glamrokkið var vin-
sælt á þessum árum þegar Gulli, eins
og hann er alltaf kallaður, var tíu
ára.
„Mér fannst búningarnir hjá þess-
um sveitum eins og Slade og Sweet
svo flottir og það skipti ekki minna
máli fyrir mann á þessum árum. Síð-
an komst ekkert annað að en að vera
í bílskúrsböndum og reyna að kaupa
háhælaskó,“ en Gulli spilaði fyrst á
gítar og fór ekki að spila á trommur
fyrr en 12 ára, ef frá er talinn barn-
ingur á potta og pönnur þegar hann
var fimm ára í eldhúsi foreldra
sinna.
Hljómsveitin Mezzoforte var
stofnuð 1977 þegar Gulli og félagi
hans, Jóhann Ásmundsson, kynntust
Eyþóri Gunnarssyni og Friðriki
Karlssyni. „Við vorum þá á kafi í alls
konar tónlist, við vorum ekki að setja
hana í neina dilka heldur vorum opn-
ir fyrir öllu. Við fórum síðan í hljóm-
sveitina Ljósin í bænum þegar ég
var 17 ára og þar byrjaði minn at-
vinnuferill með „Disco Frisco“. Við í
Mezzoforte spiluðum líka tvo vetur á
veitingahúsinu Skálafelli á Hótel
Esju með Hauki Morthens og gerð-
um tvær plötur með honum, sem var
gaman og lærdómsríkt. Haukur var
einstaklega hlýr og góður maður.“
Gulli gekk í Réttarholtsskóla og
gerði svo samning við föður sinn um
að klára tvo vetur í Verzlunarskóla
Íslands áður en hann færi alveg út í
tónlistina, sem Gulli og gerði og lauk
verslunarprófi. Hann nam síðan
klassískan slagverksleik í Tónlistar-
skóla FÍH frá 1980-1982 með Reyni
Sigurðsson sem aðalkennara. Einnig
Evitu árið 1996 og kom fram með
henni í Top of the Pops. Hann lék
einnig inn á plötu fyrrverandi gítar-
leikara Genesis, Steves Hacketts,
The Night Siren, árið 2017 og hefur
sömuleiðis spilað með Hackett opin-
berlega í Evrópu.
Gulli hefur gefið út þrjár plötur
með eigin tónlist; undir nafninu Gulli
Briem með plötuna Earth frá 1999,
síðan undir nafninu Earth Affair
með Chapter One frá 2004 og Lib-
erté frá 2014. Árið 2006 lék hljóm-
sveit Gunnlaugs, Earth Affair, á tón-
leikum í Tromsö í Noregi, sem voru
haldnir á vegum samtaka Nelsons
Mandela sem voru að berjast gegn
alnæmi í Afríku. Þar léku einnig m.a.
Peter Gabriel, Robert Plant og
Annie Lennox. Gunnlaugur hefur
síðan þá verið sendiherra þessara
samtaka. Hann hefur haldið nám-
skeið heima og erlendis og hefur
fimm sinnum verið valinn besti
trommuleikarinn á íslensku tónlist-
arverðlaununum.
„Ég hef verið að spila á trommur,
stunda líkamsrækt, köld böð, kraft-
öndun og keyra um á mótorhjólinu
mínu. Síðan að skipuleggja tónleika í
haust,“ segir Gulli þegar hann er
spurður hvað hann sé að gera þessa
dagana. „En ég er fyrst og fremst að
enduruppgötva sjálfan mig sem
manneskju, er með frekar frjótt
Gunnlaugur Briem tónlistarmaður – 60 ára
Með Nelson Mandela Gulli Briem og hljómsveit í Tromsö í Noregi árið 2005.
Skapaðu það sem þú vilt!
Þrjár kynslóðir Gulli ásamt tveimur eldri systkinum sínum, Gunnlaugi
föður sínum og afa sínum Kristni. P. Briem, við Rauðalæk.
Ljósmynd/Jakob Jóhannsson
Afmælisbarnið Gulli Briem.
Til hamingju með daginn