Morgunblaðið - 08.09.2022, Qupperneq 55
an strengi og taka næsta skref með
liðið.
Selfoss
Selfyssingar eru með mjög sterkt
byrjunarlið en við fyrstu sýn virðist
vanta aðeins upp á breiddina á hópn-
um og að þeir megi lítið við meiðslum.
Þeir eru með frábæran heimavöll og
það er mikil handboltahefð á Selfossi
sem mun hjálpa þeim. Þórir Ólafsson
er að stíga sín fyrstu skref sem þjálf-
ari í meistaraflokki og það er líka
mikil og góð æfingahefð á Selfossi.
Þórir er reynslumikill leikmaður og
auðvitað heimamaður líka sem þekkir
hvern krók og kima. Það verður fróð-
legt að sjá hvernig þeim mun reiða af
en ég á von á þeim í úrslitakeppninni í
vor.
Fram
Framarar eru eitt þeirra liða sem
ætla sér stóra hluti í vetur og maður
heyrði það út undan sér að félagið
ætlaði sér að vera með mjög gott lið
þegar flutt yrði úr Safamýrinni í Úlf-
arsárdal. Þar er komið nýtt stórglæsi-
legt mannvirki með frábæra æfinga-
og keppnisaðstöðu sem er mikil inn-
spýting í þeirra starf. Hópurinn er
talsvert breyttur frá síðustu leiktíð og
þeir hafa fengið tvo öfluga leikmenn
frá Bregenz, þá Luka Vukievic og
Marko Coric. Alexander Már Egan er
kominn frá Selfossi og það verður
mjög áhugavert að sjá hversu fljótir
þeir verða að ná upp takti í sinn leik
en það skiptir Fram öllu máli að byrja
tímabilið vel.
KA
KA hefur misst leikmenn sem voru
í stórum hlutverkum hjá þeim í fyrra,
bæði Óðin Þór Ríkharðsson og svo
Arnar Frey Ársælsson. Þeir komu að
mörgum mörkum hjá þeim. Þeir
verða líka án Ólafs Gústafssonar í
upphafi móts sem er áfall fyrir þá. Það
er ekki klárt hversu lengi hann verður
frá en hann er einn þeirra reynslu-
mesti leikmaður og það munar um
minna. Breiddin hjá KA er því byggð
á ungum og efnilegum leikmönnum í
ár og þeir þurfa að vera fljótir að ná upp
takti ef Akureyringar ætla sér að kom-
ast í úrslitakeppnina. Heimavöllurinn
er og verður þeim alltaf mikilvægur og
þeir þurfa að vernda hann vel.
Grótta
Það er nýr þjálfari í brúnni hjá
Gróttu, Róbert Gunnarsson, og það
verður mjög fróðlegt að fylgjast með
honum. Hann var frábær leikmaður og
býr yfir mikilli reynslu. Það hafa orðið
breytingar á hópnum en Seltirningar
eru bjartsýnir fyrir veturinn sem er
alltaf jákvætt. Ég á hins vegar von á því
að þeir verði í neðri hlutanum og þeir
þurfa að berjast fyrir sæti sínu í ár. Það
verður gaman að sjá Róbert takast á
við þá áskorun og hvernig honum tekst
að koma nýju mönnunum inn í þetta.
Hörður
Það er frábært að fá lið frá Ísafirði
inn í deildina og það hefur verið sett
mikið púður í liðið undanfarin ár. Það
eru margir erlendir leikmenn þarna og
metnaðurinn í að gera vel er svo sann-
arlega til staðar. Heimavöllurinn
verður þeim mjög dýrmætur og þeir
þurfa að ná í hagstæð úrslit þar.
Margir leikmannanna eru óskrifað
blað í efstu deild ef svo má segja og ég
er virkilega spenntur að sjá hvernig
þeim mun reiða af í deild þeirra bestu.
Þeir spila hraðan handbolta en þurfa
að stoppa í götin og bæta varnarleik-
inn hjá sér, ætli þeir sér að halda sæti
sínu í deildinni.
ÍR
Bjarni Fritzson er mættur aftur,
reyndur þjálfari. Hann þekkir hvern
krók og kima í Breiðholtinu, enda
heimamaður. Þeir spila á nýjum
heimavelli í vetur og því fylgir alltaf
ákveðin upplyfting og spenna. Þeir
eru búnir að missa marga reynslu-
mikla menn og það munar um minna.
Ég er spenntur að sjá hvernig Viktori
Sigurðssyni reiðir af því það mun mik-
ið mæða á honum. Því miður þá held
ég að þetta verði erfitt tímabil fyrir þá
og þeir þurfa að vera betri en Grótta
og Hörður til þess að halda sér uppi.
Morgunblaðið/Eggert
Toppliðin Benedikt Gunnar Óskars-
son og Róbert Sigurðarson takast á
í tvísýnni rimmu Vals og ÍBV um Ís-
landsmeistaratitilinn síðasta vor
þar sem Valsmenn höfðu betur.
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
_ Jón Axel Guðmundsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er kominn til
San Francisco þar sem hann hóf æf-
ingar með NBA-meisturunum Golden
State Warriors í fyrradag. Hann æfir
með liðinu í viku en Warriors fær jafn-
an til sín sterka og samningslausa
leikmenn á þessum tíma til að æfa og
spila gegn leikmönnum liðsins á und-
irbúningstímabilinu. Jón Axel er í hópi
átta leikmanna sem komu til æfinga
núna en í fyrra samdi Warriors við tvo
leikmenn sem komu þangað á sömu
forsendum.
_ Enska félagið Chelsea rak í gær-
morgun þýska knattspyrnustjórann
Thomas Tuchel í kjölfarið á 1:0 ósigri
liðsins gegn Dinamo Zagreb í Meist-
aradeildinni í fyrrakvöld. Graham
Potter hjá Brighton er talinn einna lík-
legastur sem eftirmaður hans en
Mauricio Pochettino og Zinedine Zid-
ane, sem báðir eru án starfs, hafa
einnig verið sterklega orðaðir við
Lundúnafélagið.
_ Luka Doncic átti ótrúlegan leik fyrir
Slóveníu þegar liðið vann sterkan
88:82-sigur á Frakklandi í B-riðli Euro-
Basket, Evrópumótsins í körfuknatt-
leik karla, í gær og tryggði sér þannig
sigur í riðlinum. Doncic skoraði 47
stig, sem eru næstflest stig sem leik-
maður hefur skorað í einum leik í sögu
Evrópumóts karla í körfuknattleik. Í
leiknum í gær tók hann sjö fráköst og
gaf fimm stoðsendingar að auki.
_ Keira Walsh varð í gær dýrasta
knattspyrnukona heims þegar Barce-
lona keypti hana af Manchester City
fyrir 350 þúsund pund. Fyrra metið
var 300 þúsund pund
sem Chelsea reiddi
fram þegar félagið
keypti Pernille Har-
der af Wolfsburg
fyrir
tveimur
árum.
Walsh er 25 ára
miðjumaður og var í
lykilhlutverki hjá
enska landsliðinu
þegar það varð
Evrópumeistari
í sumar.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Framhús: Fram – Selfoss ......................... 18
Seltjarnarnes: Grótta – ÍR .................. 19.30
Hlíðarendi: Valur – Afturelding.......... 19.30
Kaplakriki: FH – Stjarnan .................. 19.40
Í KVÖLD!
EM karla
A-RIÐILL, Tbilisi, Georgíu:
Tyrkland – Spánn................................. 69:72
Búlgaría – Belgía.................................. 80:89
Georgía – Svartfjallaland..................... 73:81
_ Lokastaðan: Spánn 8, Tyrkland 6, Svart-
fjallaland 6, Belgía 6, Búlgaría 2, Georgía 2.
B-RIÐILL, Köln/Berlín, Þýskalandi:
Litháen – Bosnía................................... 87:70
Frakkland – Slóvenía ........................... 82:88
Ungverjaland – Þýskaland................ 71:106
_ Lokastaðan: Slóvenía 8, Þýskaland 8,
Frakkland 6, Litháen 4, Bosnía 4, Ung-
verjaland 0.
Í 16-liða úrslitum mætast:
10.9. Þýskaland – Svartfjallaland
10.9. Spánn – Litháen
10.9. Slóvenía – Belgía
10.9. Tyrkland – Frakkland
_ Keppni í C- og D-riðlum lýkur í dag.
57+36!)49,
Liverpool mátti sætta sig við 1:4-tap
gegn Napólí í 1. umferð A-riðils
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu karla í gærkvöldi.
Liverpool náði sér engan veginn á
strik í leiknum enda voru heima-
menn í Napólí komnir í 2:0 eftir rétt
rúmlega hálftíma leik. Piotr Ziel-
inski skoraði úr vítaspyrnu snemma
leiks og André-Frank Zambo Angu-
issa tvöfaldaði forystuna. Á milli
markanna tveggja klúðraði Victor
Osimhen annarri vítaspyrnu og
Virgil van Dijk bjargaði á marklínu
eftir skot Khvicha Kvaratskhelia.
Skömmu fyrir leikhlé bætti svo
Giovanni Simeone, sem var nýkom-
inn inn á sem varamaður, við þriðja
marki Napólí.
Í upphafi síðari hálfleiks skoraði
Zielinski annað mark sitt og fjórða
mark Napólí. Luis Díaz minnkaði
svo muninn fyrir Liverpool skömmu
síðar og þar við sat.
Í hinum leiknum í riðlinum unnu
Hollandsmeistarar Ajax öruggan
4:0-heimasigur á Rangers frá Skot-
landi.
Bayern München gerði þá afar
góða ferð til Mílanó og hafði betur
gegn Inter, 2:0, í C-riðlinum. Leroy
Sané kom Bæjurum yfir í fyrri hálf-
leik og Danilo D’Ambrosio, bakvörð-
ur Inter, varð fyrir því óláni að skora
sjálfsmark í þeim síðari.
Í hinum leik riðilsins skoraði Ro-
bert Lewandowski þrennu og
Franck Kessié og Ferran Torres sitt
markið hvor þegar Barcelona vann
5:1-sigur á Viktoria Plzen. Lew-
andowski er nú þriðji markahæsti
leikmaðurinn í sögu Meistaradeild-
arinnar með 89 mörk.
Richarlison reyndist hetja Totten-
ham Hotspur þegar liðið lagði Mar-
seille, 2:0, í D-riðlinum. Skoraði
hann bæði mörkin seint í leiknum en
Marseille lék manni færri nánast all-
an síðari hálfleikinn eftir að Chancel
Mbemba fékk beint rautt spjald.
Liverpool tapaði stórt í Napólí
- Bæjarar sóttu sigur til Mílanó
- Lewandowski skoraði þrennu
AFP/Alberto Pizzoli
Tvenna Piotr Zielinski fagnar öðru af tveimur mörkum sínum fyrir Napólí.
Fram og Selfoss mætast í upphafs-
leik úrvalsdeildar karla, Olísdeild-
arinnar, í nýja Framhúsinu í Úlfars-
árdal klukkan 18 í dag.
Klukkan 19.30 verður flautað til
leiks á Seltjarnarnesi þar sem
Grótta tekur á móti nýliðum ÍR og á
sama tíma hefst titilvörn Vals-
manna með leik gegn Aftureldingu
á Hlíðarenda.
FH mætir síðan Stjörnunni í
Kaplakrika klukkan 19.40.
Haukar og KA eigast við í fimmta
leik fyrstu umferðar á Ásvöllum
annað kvöld, föstudagskvöld.
Sjötti leikurinn, milli ÍBV og ný-
liða Harðar frá Ísafirði, fer hins-
vegar ekki fram fyrr en 2. október.
Ísfirðingar bíða því með að þreyta
frumraun sína í efstu deild þar til í
2. umferð sem er leikin 15. og 16.
september en þá heimsækja þeir Ís-
landsmeistara Vals. Í 2. umferð
mætast þessi lið:
15.9. Selfoss – Grótta
15.9. ÍR – Haukar
15.9. Stjarnan – Fram
16.9. KA – ÍBV
16.9. Afturelding – FH
16.9. Valur – Hörður
Allir leikir í deildinni í sept-
embermánuði fara fram á fimmtu-
dögum og föstudögum en þessi lið
eigast við í 3. umferð:
22.9. Hörður – KA
22.9. ÍBV – ÍR
22.9. Fram – Afturelding
22.9. Grótta – Stjarnan
22.9. Haukar – Selfoss
23.9. FH – Valur
Íslandsmótið 2022-’23
hefst í Úlfarsárdal í dag
Valsmenn unnu allt sem hægt var
að vinna á tímabilinu 2021-2022.
Í úrslitakeppni Íslandsmótsins
vann Valur Fram 2:0 í átta liða úr-
slitum, Selfoss 3:0 í undanúrslitum
og loks ÍBV 3:1 eftir spennuþrungið
úrslitaeinvígi. Eyjamenn lögðu
Hauka 3:1 í undanúrslitum.
Valsmenn urðu deildarmeistarar,
urðu jafnir Haukum með 34 stig en
unnu á innbyrðis úrslitum.
ÍBV fékk 31 stig í þriðja sæti
deildarinnar í fyrra, FH 29 stig,
Selfoss 26, Stjarnan 24, KA 20,
Fram 19, Afturelding 19 og Grótta
19 en HK með sex stig og Víkingur
með þrjú stig féllu niður í 1. deild.
Sæti þeirra taka Hörður frá Ísa-
firði, sem vann 1. deildina, og ÍR,
sem vann Fjölni 3:1 í úrslitum um-
spilsins um laust sæti.
Þá varð Valur bikarmeistari 2022
með því að sigra KA 36:32 í úrslita-
leik á Ásvöllum 12. mars.
Valsmenn unnu alla
titlana á síðasta tímabili