Morgunblaðið - 08.09.2022, Page 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Tívolí í Kaupmannahöfn er einn
þekktasti skemmtigarður jarðar.
Frægur fyrir rússíbana og fallturna
sem gestir njóta þess að láta hrella
sig í svo veinin berast yfir miðborg-
ina á hlýjum sumardögum. Í Tívolí
eru líka speglasalur og draugahús,
skálar sem vísa til fjarlægra menn-
ingarheima, skotbakkar og gríðar-
legt framboð af alls kyns sætindum,
matvöru og drykk. Tívolí fer að
verða 180 ára og þar hafa ætíð verið
haldnir tónleikar og boðið upp á
flutning heimamanna sem heims-
kunnra listamanna. En lítið hefur
farið fyrir myndlist í skemmtigarð-
inum. Nú hefur þó verið gerð á því
áhugaverð undantekning og ofan á
allt annað fjör og upplifanir býðst
gestum í Tívolí að skoða og upplifa
verk 15 norrænna samtímalista-
manna þennan mánuðinn.
Afmælissýning CHART í Tívolí
Norræna myndlistarkaupstefnan
CHART var haldin í Charlottenborg
í Kaupmannahöfn í tíunda skipti síð-
ustu helgina í ágúst, með þátttöku 38
af helstu myndlistargalleríum Norð-
urlanda og ýmiskonar myndlistar-
tengdum viðburðum. Og til að halda
upp á tíu ára afmælið réðust stjórn-
endur CHART og Tívolí í þetta
áhugaverða samstarf. Galleríum
sem tóku þátt í CHART var boðið að
tilnefna listamenn sem þeir vinna
með og voru fimmtán tillögur valdar.
Sýningin var opnuð um leið og
CHART á dögunum og munu verkin
standa uppi til 25. september, ólík
myndlistarverk og staðsett víðs-
vegar í Tívolí, á torgum, í blómabeð-
um, í tjörnum sem innandyra.
Listamennirnir eru misreyndir og
í hópnum er bæði fólk sem hefur ný-
lokið námi og hefur sýnt víða um
lönd í virtum söfnum. Í hópnum eru
listamenn frá öllum Norðurlönd-
unum og að auki þrír bandarískir.
Þrír eru íslenskir, þau Hrafnkell
Sigurðsson, Þórdís Erla Zoëga og
Kristinn E. Hrafnsson. Eftir síðast-
nefnda er sýnt verkið „East Meets
West And North Meets South And“,
lágmynd úr bronsi sem felld er í veg-
inn sem liggur um svokallaðan jap-
anskan hluta Tívolís. Eftir Hrafnkel
er sýnt vídeóverkið „Upplausn“, á
stórum skjá á útisviði í hálftíma í
ljósaskiptunum dag hvern – um er
að ræða systurverk þess sem sýnt
var á auglýsingaskjám út um alla
Reykjavík á fyrstu dögum ársins.
Loks er sýnt eftir Þórdísi Erlu verk-
ið „Genfødsel“ eða endurfæðing,
innsetning sem gestum er boðið að
taka þátt í og hefur vakið lukku.
Aðrir sýnendur eru Austin Lee,
Nanna Abell, Pernille With Madsen,
Bella Rune, Geoff McFethridge,
Anders Herwald Ruhwald, Esben
Weile Kjær, Jasmin Franko, John
Kørner, Kim Simonsson, Kåre
Frang og Lilibeth Cuenca Rasmus-
sen.
„Draumur að sýna hérna“
Blaðamaður gekk á dögunum milli
myndlistarverkanna í Tívolí í fylgd
kollega víða að, nokkurra af lista-
mönnunum og stjórnendum
CHART og Tívolís. Við það tækifæri
sagði Nanna Hjortenberg stjórn-
andi CHART að ein hugmyndin með
þessari nokkuð óvæntu sýningu væri
að bjóða almenningi að upplifa og
bregðast við áhugaverðri samtíma-
list.
„Hér vildum við halda upp á af-
mæli CHART og fagna með lista-
verkum sem eru skemmtileg og
gaman að upplifa,“ sagði Hjorten-
berg. „Með þessu samvinnuverkefni
með Tívolí langaði okkur að ögra
listamönnunum til að skapa eitthvað
alveg sérstakt fyrir þennan óvenju-
lega sýningarstað og um leið bjóða
nýjum áhorfendum að upplifa lista-
verk á óvæntum stað og eiga í sínu
samtali við verkin. Hér fá gestirnir
þannig annars konar og nýstárlega
rússíbanareið.“
Þórdís Erla tók ein íslensku lista-
mannanna þátt í leiðsögninni fyrir
blaðamenn og vakti verk hennar
mikla athygli og lukku. Hún segir að
vissulega sé þessi sýningarstaður
ólíkum öðrum sem hún hafi sett verk
sín upp á.
„Það er algjör draumur að sýna
hérna. Þetta er svo íkonískur staður,
Það vita allir hvað Tívolí er.“
Hún fékk að setja verk sitt upp
undir rússíbananum og nærri
speglasalnum og segir hugmyndina
með verkinu eiga þar vel við, endur-
fæðingu.
„Ég hef unnið með þetta verk í
einhverri mynd síðan ég útskrifaðist
úr myndlistarnámi í Hollandi; þetta
var eiginlega útskriftaverkið mitt en
í öðru formi þá. Ég er með það í
stöugri þróun. Ég elska þegar fólk
getur skoðað myndlist og uppgötvað
eitthvað í leiðinni. Ég vinn hér með
sjónræna villu og þetta er eins konar
púsluspil.
Hér í Tívolí er fólk svo tilbúið að
láta koma sér á óvart og líka tilbúið
til að skilja óvænt fyrirbæri, það gef-
ur sér líklega meiri tíma í það hér en
á hefðbundnum sýningarstöðum fyr-
ir myndlist. Fólk er svo reiðubúið til
að setjast hér inn í verkið og verða
hluti af því,“ sagði Þórdís Erla.
Plöntuskrímsli Verkið Hyper eftir Esben Weile Kjær vísar með gamansömum hætti til
mannætuplantna teiknimyndasagna og vekur lukku hjá yngri kynslóðinni.
Töfraheimur Danska listakonan Pernille With Madsen segir frá vídeóverkinu Mis-En-Scene,
sem hún skapaði fyrir sýninguna í Tívolí og byggist á efnivið úr skemmtigarðinum.
Myndlist meðal töfratækja í Tívolí
- Verk 15 samtímalistamanna hafa
verið sett upp í skemmtigarðinum
Morgunblaðið/Einar Falur
Endurfæðing Þórdís Erla Zoëga segir frá verkinu Genfødsel, sem gestir setjast inn í og virkja með þátttöku sinni.
Lágmynd Verk Kristins E. Hrafnssonar, East Meets West And North Meets
South And, er felld í gangstíg um hluta Tívólís sem kenndur er við Japan.