Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 57

Morgunblaðið - 08.09.2022, Síða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum Jo Koy í aðalhlutverki Þ að er alltaf flókið að aðlaga skáldsögu að kvikmynda- forminu enda allt annar miðill. Sumir myndu segja að kvikmyndaformið væri flóknasta formið fyrir utan hækur (haiku) en það er útúrdúr. Þar sem vatna- krabbarnir syngja er byggð á met- sölubók Deliu Owens en hún hefur selst í meira en 12 milljónum eintaka og væntingarnar því miklar. Þetta er önnur kvikmynd leik- stjórans Oliviu Newman, en sú fyrsta var First Match sem fékk góðar viðtökur. Myndin segir frá Kyu Clark (Daisy Edgar-Jones) eða „stelpunni í mýrinni“ eins og flestir kalla hana, sem nánast elur sig upp á eigin spýtur en Kya er frá brotnu heimili í mýrlendinu í Norður-Karó- línu. Sagan hefst snemma á fimmta áratugnum þar sem Kya er hluti af stórri fjölskyldu en er fljótlega yfir- gefin af foreldrum og fjórum systk- inum. Sá hluti sögunnar, þ.e. að sýna sex fjölskyldumeðlimi yfirgefa Kyu unga, var klaufalegur af hálfu hand- ritshöfundar, Lucy Alibar. Hún get- ur varla verið svo leiðinleg? Kya lærir því fljótt að standa á eigin fót- um, hún gengur aldrei í skóla og lærir að lifa á náttúrunni með því að selja kræklinga til verslunareigend- anna og hjónanna Mabel (Michael Hyatt) og Jumpins (Sterling Macer Jr.). Þeirra þátttaka í myndinni er frábær en þrátt fyrir lítinn skjátíma fá áhorfendur strax skýra mynd af því hvers konar fólk þau eru, þ.e. hugulsamt og umburðarlynt, ólíkt restinni. Það má hins vegar velta því fyrir sér hvernig í ósköpum stendur á því að Kya hefur ótakmarkaðan aðgang að mat, klippingu, sætum fötum og fyrsta flokks listavörum þegar hennar eina innkoma er feng- in með því að selja örfáa poka af kræklingi. Kya er utangarðsmaður og bæjar- búarnir leyfa sér að hafa sterkar skoðanir á henni. Það tekur þau ekki langan tíma að benda á Kyu þegar ungur maður, Chase Andrews (Harris Dickinson), finnst látinn nærri heimili hennar. Kvikmyndin hefst á því að lík Chase finnst og Kya er í kjölfarið ákærð fyrir að hafa myrt hann án nokkurra sann- ana. Áhorfendur fylgjast til skiptis með dómsmálinu þróast og endur- litum úr fortíð Kyu, þ.á m. mis- heppnuðu ástalífi hennar, en tveir mjög líkir strákar falla fyrir hinni dularfullu Kyu. Fyrst er það æsku- vinurinn Tate (Taylor John Smith) sem kennir Kyu meðal annars að lesa en yfirgefur hana svo til þess að fara í háskólanám. Seinni strákurinn sem sýnir henni áhuga finnst síðan látinn skammt frá henni. Kay er greinilega heppin í spilum! Daisy Edgar-Jones leikur Kyu en hún vakti mikla athygli fyrir hlut- verk sitt í þáttaröðinni Normal People (2020) efir Lenny Abraham- son og Hettie Macdonald og nú síð- ast fyrir hryllingsmyndina Fresh (2022) eftir Mimi Cave. Þrátt fyrir mikla leikhæfileika er erfitt að ímynda sér að þessi fíngerða, fallega kona sé sannur utangarðsmaður sem reiðir sig á náttúruna. Sagan er spennusaga en kvik- myndina mætti heldur flokka sem rómantíska dramamynd þrátt fyrir að stiklan sýni annað. Myndin er ævisöguleg og þar fá ástarævintýrin tvö mikið pláss en hún líkist að því leyti kvikmyndinni The Notebook (2004) eftir Nick Cassavetes. Kvik- myndatakan eftir Polly Morgan er einnig mjög rómantísk en mýrin lík- ist heldur svanavatninu úr The Notebook en mýri. Með þessum athugasemdum er markmiðið ekki að gagnrýna leik- stjórann fyrir að segja söguna á þennan máta heldur að sýna hvernig hægt er að túlka sama söguþráð á ólíkan máta. Ég er hins vegar engu nær því að vita hvernig vatnakrabb- ar hljóma. Vonlaus í ástum Eftir metsölubók Þar sem vatnakrabbarnir syngja byggist á metsölubók Deliu Owens en hún hefur selst í fleiri en 12 milljónum eintaka. Hér sjást leikararnir Daisy Edgar-Jones og Taylor John Smith í hlutverkum Kyu og Tate. Sambíóin, Smárabíó og Háskólabíó Where the Crawdads Sing / Þar sem vatnakrabbarnir syngja bbbnn Leikstjórn: Olivia Newman. Handrit: Lucy Alibar. Aðalleikarar: Daisy Edgar- Jones, Taylor John Smith, Harris Dick- inson, David Strathairn, Michael Hyatt og Sterling Macer Jr. Bandaríkin, 2022. 185 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Sjónvarpsþættirnir Verbúðin, sem sýndir voru á RÚV í fyrravetur og nutu mikilla vinsælda, hafa verið tilnefndir til evrópsku ljósvakaverðlaunanna Prix Europa í flokki leikins sjónvarpsefnis að því er fram kom í fréttum RÚV. Fyrsta þáttaröð af Ófærð vann þessi sömu verðlaun árið 2016. Verbúðin fjallar um vinahjón sem gera upp gamlan togara og fara í útgerð og af- leiðingar kvótakerfisins fyrir lítið þorp. Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Har- aldsson og Mikael Torfason skrifuðu handrit þáttanna og Vesturport framleiddi þá í sam- starfi við RÚV. Meðal þáttaraða sem til- nefndar eru ásamt Verbúðinni eru Konung- legt leyndarmál (En kunglig affär) og Hrossakaup (Transport). Áður hafa sjón- varpsþáttaraðirnar Ófærð, Ráðherrann, Flateyjargátan og Fangar verið tilnefnd til verðlaunanna í flokki leikins sjónvarpsefnis. Verðlaunin verða afhent í Berlín í Þýska- landi í október. Verbúðin tilnefnd til evrópskra verðlauna Verbúðin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippus- dóttir í hlutverkum sínum í sjónvarpsþáttunum. Skáldið og sjálfstætt starfandi sagnfræð- ingurinn Kristín Svava Tómasdóttir er fyrsti fyrirlesari hádegisfyrirlestraraðar RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttis- fræðum við Háskóla Íslands á haustmisseri 2022 en yfirskrift raðarinnar er sú sama og á vormisseri: Hinsegin Ísland í alþjóð- legu samhengi. Fyrirlestur Kristínar Svövu nefnist „Lífsförunautarnir Guðlaug Guðmunds- dóttir og Þórunn Ástríður Björnsdóttir og heimilislíf þeirra“ og verður haldinn í há- deginu í dag, föstudag, kl. 12 í fyrirlestra- sal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn verður jafnframt sýndur í beinu streymi. Fjallað verður um það hvernig kyn, kyn- vitund og stétt fléttast saman og birtast í heimilislífi Þórunnar og Guðlaugar og hvernig samband þeirra féll, eða féll ekki, að hefðbundnum hugmyndum um kynhlut- verk á fyrstu áratugum síðustu aldar. Fjallar um lífsförunautana Guðlaugu og Þórunni Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Fyrirlesarinn Kristín Svava Tómasdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.