Morgunblaðið - 08.09.2022, Page 58

Morgunblaðið - 08.09.2022, Page 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2022 Sími 555 3100 www.donna.is Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífimínu. Vertumeð hjartastuðtæki við hönd. Ég lifði af Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rokksveitirnar Mammút, Kælan Mikla, Börn og Gróa blása til helj- arinnar tónlistarveislu í Gamla bíói 16. september og eiga þær sameig- inlegt að vera allar leiddar af kon- um. Svo vill til að degi síðar, 17. september, verða haldnir stórtón- leikar í Kaplakrika í Hafnarfirði en þó kenndir við Reykjavík, Rokk í Reykjavík 2022, með fjölda rokk- sveita. Var um það fjallað í fjöl- miðlum í sumar að allt væru þetta sveitir skipaðar körlum og hlutu skipuleggjendur gagnrýni fyrir. Einhverjar konur munu þó koma fram, þótt fáar séu. Ása Dýradóttir, bassaleikari Mammút, segir það tilviljun að tón- leikarnir í Gamla bíói verði sömu helgi og Rokk í Reykjavík, þeim hafi ekki verið stillt upp sem mót- svari við þeim tónleikum til að byrja með en þó hafi Gróa og Börn bæst í hópinn eftir að kynningarherferð Rokk í Reykjavík var birt, til að undirstrika fjölbreytnina í íslensku rokki. Mammút sendi frá sér sína fimmtu breiðskífu fyrir tæpum tveimur árum, í október 2020, og nefnist sú Ride The Fire. Henni hefur sveitin ekki náð að fagna vegna heimsfaraldurs en nú verður bætt úr því og það hressilega. Kvennarokksenan stór Ása er spurð hvers vegna Mamm- út hafi ákveðið að fá Kæluna Miklu til liðs við sig (Gróa og Börn bættust síðar við sem sérstakir gestir, sem fyrr sagði) og segir hún að Mammút hafi langað að taka gigg í haust til að spila sín uppáhaldslög og þá líka af nýju plötunni, þeirri sem kom út 2020. „Okkur langaði ekki að vera ein heldur taka dúett og við höfum aldrei spilað með Kælunni á okkar forsendum, höfum spilað saman á hátíðum en aldrei okkar gigg. Þann- ig að við ákváðum að gera það og þær voru mjög til í þetta. Eftir að tilkynningin um Rokk í Reykjavík kom gátum við ekki setið á okkur og heyrðum í Gróu og Börnum, ákváðum að ýkja þetta bara,“ segir Ása. „Við vorum með tækifæri til að sýna fram á fjölbreytileikann. Kven- kyns indí-, goth- og rokksenan er mjög stór og pönksenan líka, þetta er allt til,“ segir Ása kímin. Gróa og Börn munu sjá um upp- hitun á tónleikunum og hafa báðar vakið athygli fyrir kraftmikinn flutn- ing sinn hin síðustu ár, líkt og Mammút og Kælan Mikla. Ása er spurð hvort hljómsveitirn- ar ætli að flytja einhver lög í samein- ingu og segir hún Mammút og Kæl- una ætla að sjóða eitthvað saman. Hvað það verður kemur í ljós á tón- leikunum. En það sem sameinar all- ar fjórar sveitir er rokkið að hætti kvenna, þótt þær heyri undir ólíkar senur, eins og Ása bendir á. „Við erum með mjög ólík mengi í kring- um okkur,“ segir Ása og að á tón- leikunum í Gamla bíói verði borinn fram „rokkveisluplatti“. Ása er spurð að því hvort hljóm- sveitirnar fjórar hafi þekkst fyrir og segir hún vinskap Mammút og Kæl- unnar hafa varað lengi. Börn þekki Mammút líka ágætlega en Gróu öllu minna. „Við þekkjum þær ekki mikið en erum algjörir aðdáendur og urð- um að heyra í þeim, við dýrkum þær,“ segir Ása. Eins og vel smurð vél Ása er spurð hvað Mammút hafi verið að sýsla undanfarna mánuði og segir hún sveitina hafa lagst í híði í kóvíd en fengið mikla þörf í fyrra fyrir að koma aftur saman og spila. „Við vildum bara spila til að spila og það er það sem við erum að gera núna,“ segir hún. Hljómsveitin sé eins og vel smurð vél og hlakki til að halda tónleika. „Við erum líka að spila í öðrum tónlistarverkefnum svo maður datt ekkert úr neinni æf- ingu,“ bætir Ása við. En hvað tekur við að loknum tón- leikunum í Gamla bíói? Einhverjar tónleikaferðir planaðar? Nei, Ása segir svo ekki vera en hljómsveitin ætli að vera iðin við að semja og æfa á sínum forsendum. „Við erum tilbú- in að spila á tónleikum aftur, það tók sinn tíma,“ segir hún að lokum. Miðasala fer fram á tix.is. Sameinaðar Hljómsveitirnar Mammút og Kælan Mikla samankomnar. Þær munu rokka af krafti í Gamla bíói. „Rokkveisluplatti“ - Mammút, Kælan Mikla, Gróa og Börn koma fram í Gamla bíói 16. september - Hljómsveitir leiddar af konum - „Erum með mjög ólík mengi í kringum okkur,“ segir bassaleikari Mammút Ljósmyndarinn Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir opnar í dag, fimmtudag, klukkan 17 sýningu í Núllinu í Bankastræti. Þar býður hún gestum að gægjast inn í myndræna dagbók sína frá sumrinu 2020. Kvíðakolla er, segir í tilkynningu, „verk sem varð til í langvarandi kvíðakasti sumarið 2020. Gunnlöð vann sig í gegnum kvíðann með því að skrásetja til- finningar sínar og hugsanir í ljósmyndum og í dag- bók. Saman gefa myndirnar og textarnir lítið innlit í hugarheim konu sem reynir að búa til fegurð úr erfið- leikum.“ Sýningunni lýkur kl 18 á sunnudag. Kvíðakolla Gunnlaðar sýnd í Núllinu Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir Einn dáðasti píanóleikari samtímans, Daniil Trifonov, kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld og flytur 4. píanókosert Beethovens undir stjórn aðal- stjórnanda hljómsveitarinnar Evu Ollikainen. Hér er hann á æfingu með hljómsveitinni í Eldborgarsal Hörpu í gær. Trifonov er 31 árs gamall. Hann er Rússi en lagði stund á framhaldsnám í Bandaríkjunum og er búsettur þar í landi. Hann hefur lengi verið í kastljósinu fyrir gríðarlega hæfileika, tækni sína og snjalla túlkun – gagnrýnandi The Times skrifaði til að mynda að hann væri „án efa undursamlegasti píanóleikari okkar tíma“. Í samtali við blaðamann Morgunblaðsins sagði Trifonov að sá 4. væri sá síðasti af konsertum Beet- hovens sem hann hefði lært, sem hefði verið góð ákvörðun þar sem hann væri án efa persónulegastur og innilegastur af konsertum meistarans og það hefði gert sér gott að velta fyrir sér túlkun annarra á honum. Trifonov flutti konsertinn fyrst í fyrra. Daniil Trifonov staldrar lengur við á landinu og heldur einleikstónleika í Eldborgarsalnum á laugar- dagskvöldið kemur. Þá leikur hann verk eftir Tsjaí- kovskíj, Schumann og Brahms. Viðtal við Trifonov verður birt í Morgunblaðinu á laugardag. Morgunblaðið/Einar Falur Stórmeistari við slaghörpuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.