Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Birgir Þórarinsson þingmaður fór á eigin vegum til Kharkiv í Úkraínu fyr- ir skömmu með 50 spjaldtölvur og færði grunnskólabörnum. Bygginga- fyrirtækið Reir í Reykjavík fjármagn- aði tölvukaupin. „Kharkiv er næststærsta borg Úkraínu og aðeins í 40 km fjarlægð frá Rússlandi. Hún hefur orðið illa úti í stríðinu og linnulausar loftárásir hafa dunið þar yfir nánast síðan stríðið hófst,“ segir Birgir. Í borginni bjuggu tvær milljónir fyrir stríð. Margir hafa flúið og eru þar núna um 800 þúsund manns. „Allir skólar eru lokaðir og fjar- kennslu hefur verið komið á. Spjald- tölvurnar komu því sannarlega að góðum notum. Ég vil nota tækifærið og þakka Reir sérstaklega fyrir stuðn- inginn við fátæk börn í Úkraínu á stríðstímum, framlagið er til fyrir- myndar,“ segir Birgir. Hann keypti tölvurnar í Póllandi og flutti þær síðan til Lviv í Úkraníu og tók þaðan lest til Kharkiv. Lestar- ferðalagið tók 14 tíma. „Ég fékk góða aðstoð frá Maríu Mezentseva þingkonu í Úkraínu við að koma tölvunum til barnanna. Í skól- anum sem við völdum eru rúmlega 600 nemendur. Skólastjórinn valdi síð- an börnin 50 sem fengu tölvurnar. Þau koma frá fátækum heimilum og for- eldrarnir hafa ekki ráð á að kaupa tölvur,“ segir Birgir. Af öryggisástæðum var ekki hægt að kalla öll börnin í skólann til að taka á móti tölvum. „Við María brugðum þá á það ráð að fara heim til þeirra og færa þeim tölvu. Það var mjög gefandi að sjá gleðina skína úr augum barnanna. Það er vissulega áhættu- samt að vera í Kharkiv, svo nálægt víglínunni. Mér skilst á Maríu að ég sé fyrsti erlendi þingmaðurinn sem kemur þangað eftir að stríðið hófst. Við heyrðum greinilega í sprengjum í fjar- lægð, loftvarnaflautur fóru í gang og himinninn lýstist upp þegar myrkur skall á. Það eru ekki margir á ferðinni í borginni af augljósum ástæðum og öll ljós eru slökkt á nóttunni,“ segir Birgir. Nýlega tókst að hrekja Rússa frá héraðinu en þeir skjóta engu að síður eldflaugum frá landamærunum. Rúm- lega 400 óbreyttir borgarar hafa verið drepnir í borginni, að sögn Birgis. Tjónið á byggingum í Kharkiv er gríð- arlegt. Þar eru mörg fjölbýlishús og nánast öll hafa orðið fyrir skemmdum, sum hver eru gjörónýt, með allt að 200 íbúðum hvert. Hann segir að Rússarnir hafi skotið á hvað sem er, íbúðarhús, sjúkrahús, skóla, matvöruverslanir, opinberar byggingar, leikvelli barna, kirkjur, al- menningsgarða, verslanir, óperuhúsið og strætóstoppistöðvar. Við eina slíka varð 14 ára drengur fyrir eldflaug ný- lega og lést.Að lokinni ferðinni til Kharkiv fór Birgir á fund í Kænugarði á skrifstofu forsetans. Ætlunin var að hann myndi eiga fund með Selenskí forseta en úr því varð ekki því Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, birtist óvænt í Kænugarði sama daginn. „Ég fundaði þess í stað með skrif- stofustjóranum og aðstoðarmönnum forsetans. Farið var yfir stöðuna í stríðinu og lögðu þeir m.a. ríka áherslu á að Rússar yrðu dregnir fyrir stríðsglæpadómstól. Þeir vinna hörð- um höndum að því og óskuðu eftir því að Ísland myndi styðja slíka tillögu,“ segir Birgir. „Að lokum var mér boðið til Bucha þar sem fjöldamorð voru framin. Ég var viðstaddur stutta minningarathöfn við stærstu fjölda- gröfina þar sem 82 lík óbreyttra borg- ara fundust. Í kirkju þar skammt frá sá ég síðan ljósmyndasýningu Reuters sem fjallar um þessi voðaverk. Þetta hefur verið þvílíkur hryllingur að maður á ekki orð til að lýsa því. Mannvonskan er al- gjör. Þannig má segja að ég hafi upp- lifað bæði gleði og sorg í þessari ferð. Gleði skólabarnanna yfir óvæntum gjöfum frá Íslandi og hina þungu sorg stríðsins sem grúfir yfir öllu í hinni stríðshrjáðu borg Úkraínu, Kharkiv.“ Ánægður Börn sem ekki gátu komið í skólann fengu tölvuna senda heim. Ljósmynd/BÞ Gleði Birgir Þórarinsson þingmaður í hópi sumra barnanna sem fengu spjaldtölvur frá Íslandi og foreldra þeirra. Úkraínsk börn fengu spjaldtölvur - Allir skólar í Khar- kiv eru lokaðir - Kennt í fjarkennslu - Spjaldtölvurnar nýt- ast við kennsluna Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Síðustu dagar útsölu! Vefverslun selena.is * Undirföt * Sundföt * Náttföt * Náttkjólar * Sloppar Vegna skipulagsbreytinga Stefni að því að selja öll veiðarfæri og fleira á sérstöku tilboðsverði. Stangir og hjól frá Hardy og Greys. Vöðluskór með skiptanlegum sólum frá Hodgman. Neoprenemittisvöðlur og skór fyrir strandveiðar, sjóveiðistangir frá Penn, sjóveiðisett frá ABU og sjóviði öngla. Neoprene vöðlur til lax og silungsveiða í stærð no. 11(45), öndunarvöðlur og vöðluskór og Belly bátur frá Snowee. Úrval spúna til lax, silungsveiða og strandveiða. Stangir til strandveiða og hjól. Spúna og flugubox ásamt ýmsu veiðidóti til lax og silungsveiða. Letingjar á mjög hagstæðu verði. Opið verður frá 13:00 til 16:00 22. og 23. september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.