Morgunblaðið - 22.09.2022, Síða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Vinna Sigurður hefur lagt mikla vinnu í að yfirfara gömlu útvarpstækin.
Þróun Vinstra megin er fyrsta gerðin af lausum hátalara frá 1927-1928.
T.h. er Telefunken-tæki af fyrstu gerð með hátalara frá 1930-1932.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Saga útvarps á Íslandi er að nálgast
100 ár og mjög merkileg, eins og
Sigurður Harðarson, rafeindavirki
og einn stofnenda Hollvinafélags út-
varpstækni á Íslandi, þekkir vel.
Hann hefur ásamt félögum sínum
bjargað fjölda gamalla útvarps-
tækja frá glötun. Sum þeirra voru
smíðuð hér á landi. Safn af útvarps-
tækjum og búnaði til útvarps-
rekstrar er nú á 35 vörubrettum í
geymslu og telur um og yfir 500
tæki. Þrátt fyrir þetta mikla safn er
pláss fyrir fleiri tæki. Rekist fólk á
gömul útvarpstæki biður Sigurður
það að hafa samband því þar gætu
verið tegundir og gerðir sem vant-
ar.
Sagan er að hverfa
„Við erum að leita að sýningar-
húsnæði fyrir útvarpssafn. Við nýt-
um tímann þar til húsnæðið finnst
til að yfirfara þessi tæki, lagfæra út-
lit þeirra og pakka þeim til
geymslu,“ segir Sigurður. „Gömlu
útvarpstækin eru að týna tölunni.
Saga útvarpstækninnar og hvernig
hún þróaðist er að mestu leyti
óskráð og að hverfa. Við erum fáir
eftir sem þekkjum þessi tæki og
unnum við að þjónusta þau.“
Hann segir að tekist hafi að
bjarga langbylgjusendi Ríkis-
útvarpsins frá árinu 1951. Hann var
á Vatnsenda og þjónaði lands-
mönnum lengi. Sendirinn er eftir
því sem best er vitað fyrsti loftkældi
langbylgjusendirinn sem smíðaður
var og sá eini sem enn er til í heim-
inum. Hann tók 14 fermetra gólf-
pláss og fyllti 40 feta gám eftir að
hann var tekinn niður. „Þessi sendir
hefur aldrei bilað og er væntanlega í
fínu lagi,“ segir Sigurður.
Heimasmíðuð útvarpstæki
Árið 1920 er talið vera upphafsár
útvarpssendinga. Sigurður segir að
skömmu síðar hafi fyrst heyrst í út-
varpi á Íslandi þegar Marconi-
félagið í London var með til-
raunasendingu og spilaði
Missourivalsinn. Hún heyrðist
óvænt í viðtækjum Loftskeytastöðv-
arinnar á Melunum, sem þá voru
ný.
Þorsteinn Gíslason, þáverandi
símstöðvarstjóri á Seyðisfirði, var
sjálfmenntaður áhugamaður um
rafeindatækni. Hann pantaði íhluti
og smíðaði nokkur útvarpstæki og
örfá þeirra eru enn til. „Þorsteinn
varð fyrstur Íslendinga til að ná
langbylgjuútsendingum erlendra út-
varpsstöðva á heimasmíðað tæki ár-
ið 1923,“ segir Sigurður. Þá hafði
Þorsteinn sent þráðlaus skilaboð til
skipa úti fyrir Austfjörðum og varð
fyrstur Íslendinga til þess. Skila-
boðin voru send á morsi með neista-
sendi. Allt var þetta gert með
heimasmíðuðum tækjum.
Helgi Jóhannesson, rafeindavirki
á Akureyri og félagi í hollvina-
samtökunum, hefur teiknað upp eitt
útvarpstækja Þorsteins. Helgi hefur
safnað gömlum útvarpstækjum í
fjölda ára og á orðið mikið safn.
Hann hefur gert mörg þeirra upp
svo þau eru í fullkomnu lagi.
Fyrsta útvarpsstöðin 1926
Útvarpstæki var fyrst flutt til Ís-
lands árið 1924. Þau voru rándýr og
á þeim tíma kostaði útvarpstæki
margra mánaða laun verkamanns.
Ottó B. Arnar setti upp lang-
bylgjusendi í Loftskeytastöðinni á
Melunum í Reykjavík árið 1926 og
Sögu útvarpsins bjargað
- Hollvinafélag útvarpstækni á Íslandi á mikið safn gamalla útvarpstækja - Þar á meðal eru íslensk
útvarpstæki - Saga útvarps á Íslandi spannar brátt heila öld - Draumurinn er að opna útvarpssafn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikil saga Sigurður Harðarson með útvarp smíðað 1924. Hlustað var í gegnum heyrnartól. Ottó B. Arnar flutti tækið inn þegar hann hóf fyrstu útvarps-
sendingar hér 1926. Efst t.v. er útvarpstæki sem Þorsteinn Gíslason á Seyðisfirði smíðaði. Hann náði fyrstur langbylgjusendingum á heimasmíðað tæki hér.
5 SJÁ SÍÐU 16
Þín útivist - þín ánægja
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
HENLEY strigaskór
Kr. 18.990.-
HVÍTAN
Merínó húfa
Kr. 3.990.-
REYKJANES ullarúlpa
Kr. 33.990.-
REYKJAVÍK ullarúlpa
Kr. 47.990.-
GRÍMSEY hanska
Kr. 2.990.-
r
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
FUNI unisex dúnúlpa
Kr. 33.990.-
GEYSIR ullarjakki
Kr. 28.990.-
VALUR jogging buxur
Kr. 8.990.-
ES
REYKJANES barna ullarúlpa
Kr. 18.990.-