Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 hóf útvarpssendingar í fyrsta sinn á Íslandi. Stöðin hét Hf. Útvarp og var rekin í tvö ár þar til fjárhag- urinn leyfði ekki lengri rekstur. Arthur Gook trúboði og hómópati setti upp útvarpsstöð á Akureyri ár- ið 1927 og sendi hún út í tvö ár. Þá varð Arthur að hætta útsendingum því útvarpsleyfið fékkst ekki endur- nýjað. Þá var búið að ákveða að stofna Ríkisútvarpið sem fékk einkaleyfi til útsendinga og hóf þær 20. desember 1930. Hús var byggt á Vatnsendahæð 1929-1930 utan um fyrsta sendi Ríkisútvarpsins. Útvörp smíðuð á Íslandi Viðtækjavinnustofa Ríkisútvarps- ins fylgdi í kjölfarið og var henni ætlað að þjónusta útvarpstæki. Síð- an var Viðtækjasmiðja Ríkis- útvarpsins sett á laggirnar í sama húsnæði árið 1933 og smíðaði ís- lensk útvarpstæki. Sigurður var í nær ár að grafa upp sögu Viðtækjasmiðjunnar, sem var hvergi skráð. Helstu gögnin voru blaðaauglýsingar um fram- leiðsluna og viðtöl í blöðum við þá sem unnu við smíði útvarpanna. Honum tókst að finna menn sem þekktu söguna og voru enn á lífi, en sumir eru nú fallnir frá. „Ég náði, að ég tel, sög- unni um alla þessa fram- leiðslu og við eigum allar gerðir af útvarpstækjunum sem þar voru framleidd í átta útgáfum,“ segir Sig- urður. Íslensku útvarps- tækin eru til sýnis í sér- stökum skáp í Samgönguminjasafninu í Skógum. Íslensku útvarps- tækin voru mun ódýrari en inn- flutt því þau voru mjög einföld og hönnuð með tilliti til þess hvar á landinu átti að nota þau. Þekking á viðhaldi gömlu lampa- útvarpstækjanna er hvergi skráð og hverfur með þeim sem kunnu á þau. Sigurður nefnir t.d. að katóðan í gömlu lömpunum vildi kolast. Þá fór að neista á milli katóðu og glóðarþráðar með tilheyrandi braki og brestum. Með því að banka í lampann datt útfellingin af katóð- unni og lampinn gat orðið eins og nýr í einhvern tíma. Lamparnir hitnuðu eins og glóðarpera. Þá vildi merkingin á lampanum dofna. Hægt var að kalla nafnið fram með því að anda á lampann kaldan. Sig- urður veit ekki til þess að svona að- ferðir séu neins staðar skráðar. Útvarpssafn er draumurinn Draumur Hollvinafélags útvarps- tækni á Íslandi er að fjármagn fáist til að fagna aldarafmæli íslenskra útvarpssendinga, sem hófust árið 1926, með því að opna útvarpssafn þar sem tækin verða til sýnis og sagan varðveitt. Ríkisútvarpið verð- ur svo 100 ára árið 2030. Sigurður segir að Hollvinasamtök útvarps- tækni á Íslandi viti ekki til þess að nokkur önnur þjóð eigi heildstætt safn sem sýni sögu útvarpstækni hjá heilli þjóð og er sett upp í sögu- legri röð. „Við eigum útvarpstækin og telj- um okkur geta sett upp sýningu sem sýnir sögu útvarpstækja sem notuð hafa verið í nær 100 ár hér á landi. Við eigum kristaltæki frá upphafsárum útvarpssendinga árið 1920 og voru notuð áður en lampa- tækin komu. Þá var ekki búið að finna upp hátalara svo fólk notaði heyrnartól eins og við gömlu sím- tækin,“ segir Sigurður. „Við teljum Skógasafn vera heppilegan stað fyrir sögusafn út- varpstækninnar. Í Skógasafni eru nú þegar síma- og fjarskiptasafn. Hvort um sig í sögulegri röð hvað tæki og tækni varðar. Safnið er mjög vandað og til fyrirmyndar í alla staði. Við teljum því Skógasafn hentugast til að geyma þetta mikla safn útvarpstækja og þar með tæknilega sögu Ríkisútvarpsins sem verður bráðum 100 ára.“Íslensk útvarpstæki Þau eru til sýnis í Samgönguminjasafninu í Skógum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórn Hollvinasamtakanna. F.v.: Birgir Benediktsson, Einar Ólafsson, Sigurður Harðarson, Jón Már Richardson, Sveinn Þ. Jónsson. Helgi Jóhannesson og Henrý Alexander Hálfdánarson voru ekki viðstaddir myndatökuna. Suðri Fyrsta útvarpið sem var fjöldaframleitt hér á landi. Atvinnueign ehf kynnir í einka-leigu: 1.517,7 fm. verslunarhúsnæði við Fellsmúla 28 í Reykjavík. Húsnæðið er nýtt undir verslunog lager í dag. Eigninbýður uppámiklamöguleika til atvinnurekstrar er vel staðsett í miklu verslunarhverfimiðsvæðis í Reykjavík. Gott aðgengi er að húsnæðinu og næg bílastæði. VSK leggst ekki við leigufjárhæð. Laust frá 1. mars 2023. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Már löggiltur fasteignasali í síma 898 5599 og netfang: halldor@atvinnueign.is Síðumúli 13 108 Reykjavík S. 577 5500 atvinnueign.is Fasteignamiðlun FELLSMÚLI 28, 108 REYKJAVÍK Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Fellsmúli 28, 108 Reykjavík Atvinnu - og verslunarhúsnæði Skannaðu kóðann og skoðaðu eignina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.