Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 17

Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Hafa turnar heilbrigðis- kerfisins reynst þér ókleifir? Umsóknarfrestur er til ogmeð31. október. Frekari upplýsingar og umsóknarformmá finna á vefsíðu ráðuneytisins, www.hvin.is. ÞÁKÖSTUMVIÐTIL ÞÍNFLÉTTUNNI! Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunar- fyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins. Styrkveitingin er háð því skilyrði að nýsköpunarfyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða þá nýsköpun sem styrkur er veittur til. Um er að ræða 60 m.kr. sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun veita til verkefnisins og lögð verður sérstök áhersla á að styðja við samstarf milli hins opinbera og einkaaðila um land allt. Píeta-samtökin fengu afhentan tíu milljóna króna styrk frá Kiwanis- hreyfingunni á umdæmisþingi sem haldið var á Selfossi 9.-11. septem- ber. Peningarnir söfnuðust á K- deginum í ár. Þeir Pétur Jökull Há- konarsson, umdæmisstjóri umdæm- isins Ísland – Færeyjar, og Tómas Sveinsson, frá K-dagsnefnd, af- hentu Sigríði Björk Þormar, frá Píetasamtökunum, styrkinn. Hún þakkaði Kiwanis fyrir góðvilja í þágu samtakanna. Kiwanis hefur tekið þátt í að koma fótunum undir þessi mikilvægu samtök. Geðverndarmál hafa verið Kiw- anis-fólki hjartfólgin. Hreyfingin hefur haldið landssöfnunina „Lykill að lífi“ á þriggja ára fresti til styrktar geðverndarmálum. Hún fór nú fram í 16. skiptið. Kiwanis- hreyfingin hefur safnað alls um 300 milljónum króna til geðverndar- mála. Einnig hefur hún verið frum- kvöðull að því að opna umræðu í þjóðfélaginu um þennan viðkvæma málaflokk. Kiwanis-fólk safnar fé í sjálfboðavinnu, þannig að það sem safnast skilar sér allt til góðra mál- efna. Píeta-sam- tökin fengu 10 milljónir - Kiwanishreyfingin safnaði á K-deginum Ljósmynd/Kiwanis Styrkur Kiwanis afhenti Píeta- samtökunum tíu milljónir í styrk. Þorpið vistfélag hefur keypt JL- húsið við Hringbraut 121 af Mynd- listaskólanum í Reykjavík og Ís- landsbanka. Kaupin eru gerð með fyrirvara um fjármögnun og áreið- anleikakönnun. Í tilkynningu frá Þorpinu kemur fram að til standi að breyta efri hæðum hússins í íbúðir. Fyrr á þessu ári sendu þáverandi eig- endur hússins fyrirspurn til borg- arinnar um hvort breyta mætti því úr atvinnuhúsnæði í fjölbýlishús og setja á húsið svalir. Tók skipulags- fulltrúi Reykjavíkur jákvætt í það. Fram kemur í tilkynningu Þorps- ins að nú liggi fyrir drög að upp- byggingarsamningi milli félagsins og Reykjavíkurborgar um verk- efnið. Yrki arkitektar hafa gert frum- tillögur að íbúðum í húsinu þar sem það er fært nær upprunalegu útliti. Þær tillögur gera ráð fyrir íbúðum sem eru frá 50 til rúmlega 100 m² að stærð. Einnig er gert ráð fyrir að breyta bílastæðum sunnan við húsið í skjólgott grænt svæði sem mun nýtast bæði íbúum og Vesturbænum í heild. Húsið að garðinum mun stallast upp þannig að allar íbúðir hafa lítinn garð eða pall í suður. Norðan megin húss- ins, gegnt Eiðsgranda, er gert ráð fyrir svölum með útsýni yfir hafið. Hringbraut 121 er fjórlyft hús með risi, byggt úr vikursteini, steinsteypu og stáli. Það var reist fyrir Vikurfélagið, síðar Jón Lofts- son hf., á árunum 1945-1957. Á efri hæðum hefur verið ýmis starfsemi í gegnum árin. sisi@mbl.is JL-húsið verður fjölbýlishús Morgunblaðið/sisi JL-húsið Langt og bogadregið og eitt þekktasta kennileiti Vesturbæjarins. - Bílastæðum sunnan hússins verður breytt í grænt svæði Sex sóttu um embætti lögreglu- stjóra á Vestfjörðum, sem dóms- málaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar nýverið. Umsækjendur eru eftirtaldir í stafrófsröð: Einar Thorlacius lög- fræðingur, Gísli Rúnar Gíslason deildarstjóri/lögfræðingur, Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari, María Káradóttir aðstoðarsaksóknari, Sig- urður Hólmar Kristjánsson aðstoð- arsaksóknari og Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari. Dómsmálaráðherra skipar lög- reglustjóra til fimm ára í senn og er miðað við að skipað verði í embættið frá og með 1. nóvember nk. Sér- stakri hæfnisnefnd verður falið að fara yfir umsóknirnar og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Sex sóttu um embætti lög- reglustjóra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.