Morgunblaðið - 22.09.2022, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Kosið verð-
ur til
þjóðþings
Ítalíu nk. sunnu-
dag. Margt þykir
benda til að
verulegar breyt-
ingar verði í
framhaldi af þeim. Eitt ligg-
ur reyndar þegar fyrir, hvað
sem úrslitum kosninga líð-
ur. Mario Draghi, forsætis-
ráðherra og fyrrum seðla-
bankastjóri evrunnar, sem
sendur var til Rómar í
bögglapósti frá Brussel, eft-
ir síðasta uppnám í ítölskum
stjórnmálum, hverfur úr
sínu embætti.
Óneitanlega fólst í því
nokkur niðurlæging fyrir
þetta stolta, fjölmenna og
sögufræga ríki, eitt af sex
stofnendum ESB. Framtíð-
ardraumurinn hét eitthvað
annað þá og skipti oft um
heiti á breytingarskeiðinu í
átt til þess að fullveldi ein-
stakra ríkja verði mest til
málamynda, nema helst hjá
tveimur stærstu ríkjum
þess. Að auki var þetta í
annað sinn á stuttum tíma
sem ESB sendi slíkan
„pakka“ frá sér til að taka
yfir forsætisráðuneytið í
Róm. Hinn var Mario
Monti, sem þar á undan
hafði gegnt embætti komm-
issars hjá sambandinu. Ekki
er svo sem um það deilt að
þessir reyndu menn kunnu
margt fyrir sér. En það
dugði þó ekki til þess að
koma efnahag Ítalíu fyrir
horn.
Á Ítalíu er óheimilt að
birta skoðanakannanir um
líkleg kosningaúrslit þegar
tvær vikur eða skemmri
tími er til kosninga.
Síðustu kannanir sem
birtar voru eru því frá 9.
september. Alþekkt er frá
Ítalíu sem öðrum löndum,
að kannanir taka einatt
nokkrum breytingum á
lokaspretti þeirra. En hitt
er jafnrétt að svipi helstu
könnunum saman frá ólíkum
aðilum hafa þær sennilega
nálgast mjög lokatölur kjör-
dags. Þess vegna er réttlæt-
anlegt í senn að horfa þétt
til þeirra um leið og óhjá-
kvæmilegir fyrirvarar eru
slegnir.
Línurnar, sem lesa má úr
10 daga gömlum ítölskum
könnunum og aðeins eldri,
benda eindregið til að flokk-
ar hægra megin við miðju
séu líklegir sigurvegarar að
þessu sinni og þá með meira
afgerandi hætti en til að
mynda varð í Svíþjóð nýver-
ið. Í annan stað má fullyrða
að þrír helstu
leiðtogar flokk-
anna þriggja,
sem sennilega
leiða eða standa
að næstu stjórn
verða mun minni
aðdáendur ESB
en flokkarnir á vinstri kant-
inum, sem eru að missa
fylgi. Forystumenn þeirra
eru Georgia Meloni, en frú-
in sú er formaður flokks
„Bræðra Ítalíu“ og virðist
ætla að bæta við sig miklu
fylgi frá síðustu kosningum.
Næstur er Matteo Salvini
sem verið hefur leiðtogi
(Norður-)Bandalagsins og
var lengi talinn helsti spútn-
ik á ítalska hægri kantinum,
en hefur tapað þeirri stöðu
til Meloni. Sá þriðji er ekki
nýr af nálinni, sjálfur Silvio
Berlusconi, margreyndur
forsætisráðherra og meðal
ríkustu manna á Ítalíu.
Hann er 85 ára gamall, svo
bandarískir demókratar
geta sagt „Biden hvað?“
Flokkur Berlusconis,
Forza Italia, mun sam-
kvæmt könnunum tapa
verulegu fylgi frá síðustu
kosningum og fá um 8% at-
kvæða. En samanlagt verða
þessir flokkar með rétt
rúmlega 45% fylgi, sem er
mun öflugri útkoma en
helstu flokkar á vinstri
kantinum stefna í. Frétta-
skýrendur vekja réttilega
athygli á að forystumenn
tilvonandi ríkisstjórnar-
flokka í Róm séu engir
aðdáendur ESB. Er þá eink-
um átt við Meloni og Salv-
ini. Berlusconi hefur hins
vegar mildast verulega í af-
stöðu sinni varðandi hugs-
anlega útgöngu. Hann hefur
þó lengi ýtt undir hugmynd
um tveggja mynta kerfi á
Ítalíu, annars vegar með
gömlu lírunni og hins vegar
evrunni. Bent er á að til að
mynda í Kína sé tvöfalt
myntkerfi í gangi, sem hafi
um margt verið handhægt
fyrir stjórnvöld þar.
Hvað sem þessu líður þá
virðast ábyrgðarlausu ráða-
mennirnir í Brussel hafa nú
minni áhyggjur af því að til
valda komist flokkar í Róm
sem horfa jákvætt á for-
dæmi Breta. Þeirri ró veld-
ur einkum sú staða að ESB
og Seðlabanki evrunnar
halda nú á stærstum hluta
erlendra skulda Ítalíu, sem
eru veruleg byrði, og það
leiði til þess að ný ríkis-
stjórn þar hljóti því að flýta
sér hægt við að ná fram því
hugðarefni að höggva á
böndin til Brussel!
Mjög er nú horft til
kosninga á Ítalíu,
þótt hætta á koll-
steypu sé minni en
áður var óttast}
Áhugaverðar kosningar
Í
slenskan er mitt hjartans mál, full-
yrðir Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra á sama tíma og hún
tekur ákvörðun um 500 milljóna
króna niðurskurð á framlögum til ís-
lenskrar sjónvarps- og kvikmyndagerðar.
Hún, já, því þegar tekin er ákvörðun um fram-
lag til lista og menningar þá er það ráð-
herrann sem kemur fram og segist hafa tekið
ákvörðun um framlag og því verður að segjast
eins og er að það er flókið ef ráðherrann ætlar
svo skrifa niðurskurðinn alfarið á fjár-
málaráðherra, eða hvað?
En ráðherrann sagði ekki bara að íslenskan
væri hennar hjartans mál, hún sagði einnig að
„þetta væri bara einhver misskilningur hjá
okkar framúrskarandi kvikmyndagerðar-
fólki“ þegar hörð gagnrýni barst frá kvik-
myndageiranum vegna nærri þriðjungs niðurskurðar til
Kvikmyndasjóðs Íslands og rúmlega þriðjungs niður-
skurðar til Kvikmyndamiðstöðvar á næsta ári.
Fyrir liggur samþykkt kvikmyndastefna til ársins 2030
sem þótti mikið framfaraskref þegar hún var kynnt í lok
síðasta kjörtímabils. Þar var stefnan tekin á framtíðar-
skipulag íslenskrar kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðar,
eyrnamerkingu fjármuna og verulega aukningu framlaga
til annars vegar Kvikmyndasjóðs Íslands og hins vegar til
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands vegna nýrra verkefna.
Er þetta misskilningur? Hvað varð um loforðin sem eru
í kvikmyndastefnunni um verulega aukningu á framlögum
til íslenskrar kvikmynda og sjónvarpsþáttagerðar?
Í þeirri hörðu umræðu sem orðið hefur við framlagn-
ingu fjárlagafrumvarpsins hafa ráðherrarn-
ir blandað saman framlögum úr Kvik-
myndasjóði til íslenskrar kvikmynda- og
sjónvarpsþáttagerðar og endurgreiðslum
vegna erlendra verkefna sem unnin eru hér
á landi. Þetta er tvennt gjörólíkt enda er í
seinna tilvikinu aðallega um að ræða erlenda
fjárfestingu, þjónustu innlendra aðila við
kvikmyndagerðarfólk utan úr heimi, er-
lenda listamenn sem stýra verkinu, hanna
leikmynd og búninga og leika öll helstu hlut-
verk. Ekki misskilja mig, þetta er mikilvæg
innspýting inn í kvikmyndabransann en
þetta er ekki framleiðsla á íslensku efni.
Ráðherrarnir þurfa einnig að átta sig á
því að framlag úr Kvikmyndasjóði Íslands,
sem er bara lítið brot af heildarfram-
leiðslukostnaði við kvikmyndir og sjón-
varpsefni, er nær undantekningarlaust forsenda þess
að fjármagn komi úr erlendum sjóðum. Norrænir og
evrópskir sjóðir skoða fyrst hvort hinn íslenski sjóður
hafi „vottað umsóknina“ með styrkveitingu áður en
tekin er ákvörðun um styrki þaðan. Hinir norrænu og
evrópsku styrkir eru svo grundvöllur þess að íslenskt
efni sé yfirleitt framleitt.
Ef ráðherrum í ríkisstjórn er alvara með mikilvægi
íslenskrar tungu þá er lykilatriði að falla frá þessum
stórfellda niðurskurði til íslenskrar kvikmyndagerð-
ar.
helgavala@althingi.is
Helga Vala
Helgadóttir
Pistill
Er þetta misskilningur?
Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
H
agstofa Íslands áætlar að
kaupmáttur ráðstöfun-
artekna heimilanna hafi
dregist saman um tæp-
lega 1,5% á öðrum ársfjórðungi
2022 borið saman við sama tímabil
árið áður. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna heimilanna jókst um 5,4% á
árinu 2021 samanborið við árið
2020.
Minni kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á öðrum ársfjórðungi þessa
árs skýrist af aukinni verðbólgu, að
sögn Hagstofunnar.
„Áætlað er að ráðstöfunar-
tekjur heimilageirans hafi aukist
um 9,1% á öðrum ársfjórðungi 2022,
borið saman við sama ársfjórðung í
fyrra. Áætlað er að ráðstöfunar-
tekjur á mann hafi numið rúmlega
1,25 milljónum króna á ársfjórð-
ungnum og hafi aukist um 6,3% frá
sama tímabili í fyrra. Að teknu til-
liti til verðlagsþróunar dróst kaup-
máttur ráðstöfunartekna heimila
hins vegar saman um tæplega 1,5%
á tímabilinu en vísitala neysluverðs
hækkaði um 7,9% á sama tímabili,“
segir í frétt Hagstofunnar.
Launatekjur jukust um 16,8%
Þar kemur einnig fram að
heildartekjur heimilanna hafi aukist
um tæplega 9,5% á öðrum ársfjórð-
ungi 2022 samanborið við sama
ársfjórðung 2021. „Sá liður sem
vegur hvað þyngst í auknum heild-
artekjum eru launatekjur en þær
jukust um 16,8%,“ segir Hag-
stofan.
Hún áætlar að eignatekjur
hafi aukist um 17,3% frá sama árs-
fjórðungi í fyrra. Það skýrist að
hluta af auknum innlánum. Áætlað
er að vaxtatekjur hafi aukist um
45% á tímabilinu. Lífeyristekjur
og félagslegar tilfærslur drógust
aftur á móti saman um 2,9%. Þær
jukust töluvert á sama tímabili
2021 vegna áhrifa kórónuveiruf-
araldursins, aukins atvinnuleysis
og aðgerða sem stjórnvöld beittu
til að draga úr efnahagslegum
áhrifum hans.
Þá jukust heildargjöld heim-
ilanna um tæplega 10% á öðrum
ársfjórðungi 2022 samanborið við
sama ársfjórðung 2021. „Skatt-
greiðslur jukust um 1,7% og er
áætlað að tryggingagjöld hafi auk-
ist um 16,4% á tímabilinu. Eigna-
gjöld drógust saman um 11,9% á
öðrum ársfjórðungi 2022 saman-
borið við sama ársfjórðung 2021 en
vaxtagjöld um 12,3% sem einkum
skýrist af færri útlánum lánastofn-
ana til heimila vegna fasteigna-
kaupa.“
Kaupmáttur ráðstöf-
unartekna minnkaði
„Hagstofan birti bráðabirgðaniðurstöður vegna ársins 2021 í mars á
þessu ári og birtir nú endurskoðaðar niðurstöður. Samkvæmt þeim jókst
kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilageirans um 5,4% á árinu 2021.
Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 10,1% og ráðstöfunartekjur heim-
ilageirans í heild um 11,9%. Heildartekjur heimilageirans jukust um 9,4%
en heildargjöld jukust um 6,3% á milli áranna 2020 og 2021,“ segir í
frétt Hagstofu Íslands.
Launatekjur heimilanna jukust um 9,4% árið 2021 frá fyrra ári en
skattar á laun jukust hins vegar um 4,4% á sama tímabili. Lífeyristekjur
og félagslegar tilfærslur jukust um 6,5% á milli áranna 2020 og 2021.
Það var m.a. vegna umtalsverðrar aukningar í greiðslu almennra atvinnu-
leysisbóta, hlutaatvinnuleysisbóta, sérstaks barnabótaauka og tíma-
bundinnar heimildar til að taka út séreignarlífeyrissparnað.
Kaupmáttur heimila jókst ’21
ÝMIS ÁHRIF FARALDURSINS 2020-2021
Breyting kaupmáttar ársfjórðungslegra ráðstöfunartekna á mann
2015-2022
12%
9%
6%
3%
0%
-3%
2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Heimild:
Hagstofa Íslands
8,0
8,7
10,0
8,1
1,6
2,0
0,9
0,1
4,6
8,3
6,4
5,7
8,2
6,3
5,7
4,3
1,4
0,1
1,9
-0,3
4,7
5,5
-0,1 -3,7
1,3
0,4
8,0
12,7
7,3
-1,5
B
A
N
K
I