Morgunblaðið - 22.09.2022, Side 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Vigdís Häsler,
framkvæmdastjóri
Bændasamtaka Ís-
lands, skrifaði grein í
Morgunblaðið laug-
ardaginn 17. sept-
ember og vék þar
nokkrum orðum að
tollamálum, sem Fé-
lag atvinnurekenda
hefur látið talsvert til
sín taka. Ég fagna
tækifæri til að koma á
framfæri nokkrum atriðum í fram-
haldi af grein míns ágæta kollega.
Vigdís segir í grein sinni að það
sæti furðu að „tollvernd á franskar
kartöflur og svo landbúnaðarvörur
í heild sinni skuli hafa orðið sá fók-
us sem raun ber vitni undanfarna
daga en ekki t.d. 20% tollur á
tyggigúmmí, sem mér best vitandi
er ekki framleitt innanlands.“
Það er ekki sízt greinarhöfundur
sem ber ábyrgð á að tollvernd fyr-
ir franskar kartöflur skuli hafa
verið í fókus að undanförnu. FA
hefur lengi barizt fyrir því að 76%
tollur á franskar kartöflur – hæsti
prósentutollur tollskrárinnar –
verði felldur niður, með þeim rök-
um að hann verndi ekki íslenzkan
landbúnað heldur eitt iðnfyrirtæki
sem framleiddi til skamms tíma
franskar kartöflur og það að
stórum hluta úr inn-
fluttu hráefni. Svo
hætti fyrirtækið fram-
leiðslu á frönskum
kartöflum á dögunum
og þá blasir við (flest-
um) að verndartoll-
urinn þjónar engu
hlutverki lengur.
Munurinn á tyggjói
og frönskum
Vigdís vill ræða toll
á tyggigúmmí í sam-
hengi við fröllutollana.
Það er rétt hjá henni að í toll-
skránni er almenni tollurinn á
tyggjó 20% – en reyndar aðeins ef
það inniheldur sykur. Sykurlaust
tyggigúmmí, sem ber 13% toll, var
rúmlega 84% tyggjóinnflutnings á
síðasta ári í tonnum talið sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Sam-
kvæmt EES-samningnum og ýms-
um fleiri fríverzlunarsamningum
sem Ísland hefur gert ber tyggjó
hins vegar engan toll. Þannig lagð-
ist tollur aðeins á 2,4% af tyggjó-
innflutningi síðasta árs, hin 97,6
prósentin komu frá ríkjum sem Ís-
land hefur samið við um niðurfell-
ingu tollsins.
Þar er komið að stóra muninum
á tyggigúmmíi og frönskum kart-
öflum. Eins og áður segir bera
franskar 76% toll. Í fríverzlunar-
samningum sem Ísland hefur gert,
m.a. við Kanada, Bretland og Evr-
ópusambandið, hafa íslenzk stjórn-
völd allra náðarsamlegast fallizt á
að þær skuli bera „aðeins“ 46%
toll. Þessi verndartollur kostar ís-
lenzka neytendur hið minnsta 300-
400 milljónir króna á ári.
Með öðrum orðum er auðvelt
fyrir innflutningsfyrirtæki að flytja
inn tyggjó án tolla. Það er hins
vegar allsendis ómögulegt að flytja
inn franskar kartöflur án þess að
borga 46% toll. Það er ástæðan
fyrir því að meira er talað um
fröllutollinn en tyggjótollinn, þótt
það væri að sjálfsögðu æskilegt að
losna líka við þann síðarnefnda.
Tollverndin mest á Íslandi
Framkvæmdastjóri BÍ segir
réttilega að tollar séu ekkert sér-
íslenzkt fyrirbæri og vitnar til
talna, sem samtökin hafa áður
haldið á lofti, um að á Íslandi séu
87% þeirra tollskrárnúmera, sem
ná til landbúnaðarvara, tollfrjáls í
gegnum hina ýmsu viðskiptasamn-
inga. Þetta á að sýna að tollvernd
búvara sé ekki íþyngjandi á Ís-
landi. Það gleymist að nefna að
ástæðan er sú að á Íslandi er
framleitt mjög þröngt úrval búvara
í samanburði við hið ríkulega
framboð þeirra á heimsmarkaði.
Íslenzk stjórnvöld hafa sem betur
fer borið gæfu til að fella niður
eða semja um afnám margra
verndartolla sem vernda enga inn-
lenda framleiðslu, enda væru þeir
ástæðulaus skattur á neytendur –
rétt eins og fröllutollurinn.
Þegar litið er á þá vernd sem
tollar veita framleiðendum inn-
lendra búvara blasir hins vegar
við önnur mynd. Í skýrslu um þró-
un tollverndar, sem unnin var á
vegum atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins fyrir tveimur
árum, kemur skýrt fram að toll-
vernd fyrir innlendan landbúnað
er ríkust á Íslandi af vestrænum
ríkjum samkvæmt gögnum frá
Efnahags- og framfarastofnuninni
(OECD). Niðurstaða skýrsluhöf-
unda er að tollvernd á Íslandi sé
langt umfram það sem tíðkast að
meðaltali í aðildarríkjum OECD.
Þannig var afurðaverð til bænda
að jafnaði 77% hærra en innflutn-
ingsverð sambærilegrar vöru ef
engar hindranir væru á innflutn-
ingi á árunum 2017-2019. Þetta er
nærri því 20 sinnum meiri toll-
vernd en í Evrópusambandinu, þar
sem hún nemur 4% samkvæmt
sömu reikniaðferð. Í OECD í heild
er hlutfallið 12%. Þetta eru hlut-
föll sem er gott að hafa í huga
þegar við berum Ísland saman við
önnur vestræn ríki.
Mismunandi túlkanir á toll-
skrá eru viðskiptahindrun
Loks fjallar Vigdís um mikil-
vægi þess að landbúnaðarvörur
séu rétt tollflokkaðar og um það
getum við verið sammála. Hún
nefnir misræmi í hagtölum Evr-
ópusambandsins um útflutning bú-
vara til Íslands og í tölum Hag-
stofunnar um innflutning. Við
erum líka sammála um að æskilegt
er að finna ástæðurnar fyrir því
misræmi. Vigdís segir að oft geti
verið um háar fjárhæðir að ræða
fyrir ríkissjóð að vörur séu rétt
tollflokkaðar. Þar getur líka verið
um háar fjárhæðir að tefla fyrir
innflutningsfyrirtæki. Því miður
eru nýleg, staðfest dæmi um að
innflutningsfyrirtæki fái háa bak-
reikninga frá Skattinum fyrir að
hafa flutt inn vörur á „röngu“ toll-
skrárnúmeri, þrátt fyrir að hafa
verið í góðri trú þar sem tolla-
yfirvöld í ESB töldu flokkunina
rétta – og einnig embættismenn
Skattsins sem leitað hafði verið
ráða hjá.
Sömuleiðis liggur fyrir að
ágreiningur er á milli Íslands og
Evrópusambandsins um toll-
flokkun á sumum vörum. Félag at-
vinnurekenda og Íslensk-evrópska
viðskiptaráðið, sem FA rekur, hafa
bent á að ólík túlkun á samræmdu
tollskránni sé í raun hindrun í vegi
viðskipta á Evrópska efnahags-
svæðinu og skorað á stjórnvöld að
fara í vinnu við að samræma toll-
skrá og tollflokkun á Íslandi og í
ESB.
Það má vona …
Verndartollar á búvörur hverfa
ekki á næstunni, en það má vona í
fyrsta lagi að Ísland hætti að
leggja á verndartolla sem ekkert
vernda, í öðru lagi að dregið verði
úr mestu tollvernd í hinum vest-
ræna heimi og í þriðja lagi að til-
högun tolla geri ekki rekstrar-
umhverfi innflutningsfyrirtækja
flókið og ófyrirsjáanlegt.
Franskar, tyggjó og tollar
Ólafur Stephensen » Auðvelt er fyrir inn-
flutningsfyrirtæki
að flytja inn tyggjó án
tolla. Það er hins vegar
allsendis ómögulegt að
flytja inn franskar kart-
öflur án þess að borga
46% toll.
Ólafur Stephensen
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Atvinna
KRINGLAN - SKÓR.ISKRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
SP.1 LITE
11.995 kr. / St. 19 -26
URBAN SNOWBOARDER
14.995 kr. / St. 27-35
URBAN MINI
12.995 kr. / St. 20-27
EXOSTRIKE
19.995 kr. / St. 36-40
BIOM K2
17.995 kr. / St. 36-40
BIOM K2
17.995 kr. / St. 36-40
MIKIÐ ÚRVAL AF ECCO KULDASKÓM
SP1 LITE
11.995 kr. / St. 19 -26
URBAN SNOWBOARDER
14.995 kr. / St. 27-35
URBAN MINI
12.995 kr. / St. 20-27
SNOW MOUNTAIN
21.995 kr. / St. 36-40
BIOM K2 - BOA
19.995 kr. / St. 27-35
BIOM K2 - BOA
19.995 kr. / St. 27-35