Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 32

Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ís- lands, skrifaði grein í Morgunblaðið laug- ardaginn 17. sept- ember og vék þar nokkrum orðum að tollamálum, sem Fé- lag atvinnurekenda hefur látið talsvert til sín taka. Ég fagna tækifæri til að koma á framfæri nokkrum atriðum í fram- haldi af grein míns ágæta kollega. Vigdís segir í grein sinni að það sæti furðu að „tollvernd á franskar kartöflur og svo landbúnaðarvörur í heild sinni skuli hafa orðið sá fók- us sem raun ber vitni undanfarna daga en ekki t.d. 20% tollur á tyggigúmmí, sem mér best vitandi er ekki framleitt innanlands.“ Það er ekki sízt greinarhöfundur sem ber ábyrgð á að tollvernd fyr- ir franskar kartöflur skuli hafa verið í fókus að undanförnu. FA hefur lengi barizt fyrir því að 76% tollur á franskar kartöflur – hæsti prósentutollur tollskrárinnar – verði felldur niður, með þeim rök- um að hann verndi ekki íslenzkan landbúnað heldur eitt iðnfyrirtæki sem framleiddi til skamms tíma franskar kartöflur og það að stórum hluta úr inn- fluttu hráefni. Svo hætti fyrirtækið fram- leiðslu á frönskum kartöflum á dögunum og þá blasir við (flest- um) að verndartoll- urinn þjónar engu hlutverki lengur. Munurinn á tyggjói og frönskum Vigdís vill ræða toll á tyggigúmmí í sam- hengi við fröllutollana. Það er rétt hjá henni að í toll- skránni er almenni tollurinn á tyggjó 20% – en reyndar aðeins ef það inniheldur sykur. Sykurlaust tyggigúmmí, sem ber 13% toll, var rúmlega 84% tyggjóinnflutnings á síðasta ári í tonnum talið sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Sam- kvæmt EES-samningnum og ýms- um fleiri fríverzlunarsamningum sem Ísland hefur gert ber tyggjó hins vegar engan toll. Þannig lagð- ist tollur aðeins á 2,4% af tyggjó- innflutningi síðasta árs, hin 97,6 prósentin komu frá ríkjum sem Ís- land hefur samið við um niðurfell- ingu tollsins. Þar er komið að stóra muninum á tyggigúmmíi og frönskum kart- öflum. Eins og áður segir bera franskar 76% toll. Í fríverzlunar- samningum sem Ísland hefur gert, m.a. við Kanada, Bretland og Evr- ópusambandið, hafa íslenzk stjórn- völd allra náðarsamlegast fallizt á að þær skuli bera „aðeins“ 46% toll. Þessi verndartollur kostar ís- lenzka neytendur hið minnsta 300- 400 milljónir króna á ári. Með öðrum orðum er auðvelt fyrir innflutningsfyrirtæki að flytja inn tyggjó án tolla. Það er hins vegar allsendis ómögulegt að flytja inn franskar kartöflur án þess að borga 46% toll. Það er ástæðan fyrir því að meira er talað um fröllutollinn en tyggjótollinn, þótt það væri að sjálfsögðu æskilegt að losna líka við þann síðarnefnda. Tollverndin mest á Íslandi Framkvæmdastjóri BÍ segir réttilega að tollar séu ekkert sér- íslenzkt fyrirbæri og vitnar til talna, sem samtökin hafa áður haldið á lofti, um að á Íslandi séu 87% þeirra tollskrárnúmera, sem ná til landbúnaðarvara, tollfrjáls í gegnum hina ýmsu viðskiptasamn- inga. Þetta á að sýna að tollvernd búvara sé ekki íþyngjandi á Ís- landi. Það gleymist að nefna að ástæðan er sú að á Íslandi er framleitt mjög þröngt úrval búvara í samanburði við hið ríkulega framboð þeirra á heimsmarkaði. Íslenzk stjórnvöld hafa sem betur fer borið gæfu til að fella niður eða semja um afnám margra verndartolla sem vernda enga inn- lenda framleiðslu, enda væru þeir ástæðulaus skattur á neytendur – rétt eins og fröllutollurinn. Þegar litið er á þá vernd sem tollar veita framleiðendum inn- lendra búvara blasir hins vegar við önnur mynd. Í skýrslu um þró- un tollverndar, sem unnin var á vegum atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins fyrir tveimur árum, kemur skýrt fram að toll- vernd fyrir innlendan landbúnað er ríkust á Íslandi af vestrænum ríkjum samkvæmt gögnum frá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD). Niðurstaða skýrsluhöf- unda er að tollvernd á Íslandi sé langt umfram það sem tíðkast að meðaltali í aðildarríkjum OECD. Þannig var afurðaverð til bænda að jafnaði 77% hærra en innflutn- ingsverð sambærilegrar vöru ef engar hindranir væru á innflutn- ingi á árunum 2017-2019. Þetta er nærri því 20 sinnum meiri toll- vernd en í Evrópusambandinu, þar sem hún nemur 4% samkvæmt sömu reikniaðferð. Í OECD í heild er hlutfallið 12%. Þetta eru hlut- föll sem er gott að hafa í huga þegar við berum Ísland saman við önnur vestræn ríki. Mismunandi túlkanir á toll- skrá eru viðskiptahindrun Loks fjallar Vigdís um mikil- vægi þess að landbúnaðarvörur séu rétt tollflokkaðar og um það getum við verið sammála. Hún nefnir misræmi í hagtölum Evr- ópusambandsins um útflutning bú- vara til Íslands og í tölum Hag- stofunnar um innflutning. Við erum líka sammála um að æskilegt er að finna ástæðurnar fyrir því misræmi. Vigdís segir að oft geti verið um háar fjárhæðir að ræða fyrir ríkissjóð að vörur séu rétt tollflokkaðar. Þar getur líka verið um háar fjárhæðir að tefla fyrir innflutningsfyrirtæki. Því miður eru nýleg, staðfest dæmi um að innflutningsfyrirtæki fái háa bak- reikninga frá Skattinum fyrir að hafa flutt inn vörur á „röngu“ toll- skrárnúmeri, þrátt fyrir að hafa verið í góðri trú þar sem tolla- yfirvöld í ESB töldu flokkunina rétta – og einnig embættismenn Skattsins sem leitað hafði verið ráða hjá. Sömuleiðis liggur fyrir að ágreiningur er á milli Íslands og Evrópusambandsins um toll- flokkun á sumum vörum. Félag at- vinnurekenda og Íslensk-evrópska viðskiptaráðið, sem FA rekur, hafa bent á að ólík túlkun á samræmdu tollskránni sé í raun hindrun í vegi viðskipta á Evrópska efnahags- svæðinu og skorað á stjórnvöld að fara í vinnu við að samræma toll- skrá og tollflokkun á Íslandi og í ESB. Það má vona … Verndartollar á búvörur hverfa ekki á næstunni, en það má vona í fyrsta lagi að Ísland hætti að leggja á verndartolla sem ekkert vernda, í öðru lagi að dregið verði úr mestu tollvernd í hinum vest- ræna heimi og í þriðja lagi að til- högun tolla geri ekki rekstrar- umhverfi innflutningsfyrirtækja flókið og ófyrirsjáanlegt. Franskar, tyggjó og tollar Ólafur Stephensen » Auðvelt er fyrir inn- flutningsfyrirtæki að flytja inn tyggjó án tolla. Það er hins vegar allsendis ómögulegt að flytja inn franskar kart- öflur án þess að borga 46% toll. Ólafur Stephensen Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Atvinna KRINGLAN - SKÓR.ISKRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE SP.1 LITE 11.995 kr. / St. 19 -26 URBAN SNOWBOARDER 14.995 kr. / St. 27-35 URBAN MINI 12.995 kr. / St. 20-27 EXOSTRIKE 19.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 17.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 17.995 kr. / St. 36-40 MIKIÐ ÚRVAL AF ECCO KULDASKÓM SP1 LITE 11.995 kr. / St. 19 -26 URBAN SNOWBOARDER 14.995 kr. / St. 27-35 URBAN MINI 12.995 kr. / St. 20-27 SNOW MOUNTAIN 21.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 - BOA 19.995 kr. / St. 27-35 BIOM K2 - BOA 19.995 kr. / St. 27-35

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.