Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Ljósmyndir/Linda Ben Ofurmorgunverður Grauturinn er fullur af dýrindis næring- arefnum og orkugjöfum sem gefa góða orku út daginn. Í ár kveður við nýjan tón þar sem breytt hefur verið um umbúð- ir. Í staðinn fyrir glerkrukkur eru komnar endurvinnanlegar umbúðir sem eru í senn afar fallegar og meðfærilegar. Ekki spillir fyrir að hægt er að endurvinna þær. Hér getur að líta uppskrift úr smiðju Lindu Ben þar sem haustjógúrtin er í aðal- hlutverki. Um er að ræða morgungraut sem er undirbúinn kvöldið áður. Hann inniheldur hin bráðhollu chiafræ sem þurfa smátíma til að drekka í sig vökva og því er ákaflega heppilegt að undirbúa grautinn kvöldið áður og grípa með sér morg- uninn eftir. Bláberja „yfir-nótt“- chiagrautur 1 msk. chiafræ 2 msk. hafrar 1 dl vatn 200 g íslensk haustjógúrt með íslenskum aðalbláberjum ½ banani 1 msk. möndlusmjör 1 msk. saxaðar döðlur 1 tsk. kókosmjöl Aðferð: Setjið chiafræ og hafra í skál ásamt vatni, hrær- ið og leyfið því að standa í 10 mín. Bætið bláberjajógúrt út á skálina og blandið saman. Hægt er að loka skálinni og láta grautinn bíða yfir nótt inni í ísskáp eða borða strax. Skerið bananann í sneiðar og bætið út á skálina ásamt möndlusmjöri, söxuðum döðlum og kókosmjöli. Nýjar umbúðir hitta í mark Hin sívinsæla haustjógúrt frá Örnu er orðin árviss viðburður og bíða neytendur spenntir eftir þessum ljúfa haustboða sem er sneisafullur af dýrindis vestfirskum aðalbláberjum. Endurvinnanlegar Þó að glerkrukkurnar hafi átt fjölda aðdáenda þá eru nýju umbúð- irnar öllu heppilegri. „Það elska allir skinkuhorn! Hér er ég bæði að prófa mig áfram með deig með hreinu skyri sem kom alveg ótrúlega vel út og svo ákvað ég líka að prófa að setja mexíkóost með skinkumyrjunni og toppa með osti og chili-pítsukryddi. Þessi útkoma er dásamleg og skemmtileg tilbreyting frá þeim klass- ísku!“ segir Berglind og við hvetjum ykkur til að prófa. Skinkuhorn 64 stykki 1.080 g hveiti 2 pk. þurrger (2 x 11,8 g) 50 g sykur 2 tsk. salt 4 egg 260 g hreint Ísey-skyr 110 g smjör við stofuhita 250 ml volgt vatn Fylling og toppur 3 x skinkumyrja 2 x Mexíkókryddostur Rifinn pítsuostur frá Gott í matinn 1 egg + 3 msk. Nýmjólk til að pensla með chili-pítsukrydd (eða annað krydd sem hentar) Aðferð: Setjið þurrefnin í hrærivélar- skálina og blandið saman með krókn- um. Pískið saman egg og skyr og bætið út í ásamt smjöri og volgu vatni. Hnoðið stutta stund og færið svo yfir á borðið og hnoðið betur. Penslið stóra skál með matarolíu og setjið deigkúluna þar ofan í og veltið henni um svo hún hjúpist öll olíunni. Plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund (það ætti að tvö- falda stærð sína). Skiptið þá niður í átta hluta, fletjið hvern út í hring og skerið í átta sneiðar með pítsuskera. Setjið góða teskeið af skinkumyrju á hvern hluta ásamt smá Mexíkóosti, rúllið upp, lokið endunum og raðið á bökunarplötur. Pískið saman egg og nýmjólk og penslið skinkuhornin, setjið næst rifinn ost yfir og smá krydd. Bakið við 190°C í 10-13 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast. Skinkuhornin sem gerðu allt vitlaust Það er fátt sem passar jafn vel í nestisboxið og nýbakað skinkuhorn. Hér erum við með uppskrift frá Berglindi Hreiðarsdóttur sem gerði allt vitlaust þegar hún birti mynd af þeim á samfélagsmiðlum. Hér leikur hún sér á skemmtilegan hátt með óvenjuleg hrá- efni og útkoman er alveg upp á tíu. Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Heppnaðist fullkomlega „Það kom virkilega vel út að setja skyr í deigið, það varð létt og ljúffengt, alveg eins og best verður á kosið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.