Morgunblaðið - 22.09.2022, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022
Mikið úrval af borðstofuhúsgögnum frá CASØ
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
„HANN ER ALLT SEM ÞIG HEFUR
NOKKURN TÍMANN DREYMT UM AÐ VERA.“ „ÞÚ STILLTIR ÍSSKÁPINN OF LÁGT –
AFTUR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... kjarninn í sögunni…
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÆTTI ÉG AÐ
HREYFA MIG?
NEIBB!
NEI!
EKKI
SÉNS!
ÞAÐ Á ALLTAF AÐ
HLUSTA Á KROPPINN
ALDREI!
NJÉT
FARÐU HEIM!BRÓÐIR HENNAR HELGU ER
FARINN AÐ VINNA HÉRNA!
ÞJÓNUSTU-
VERKSTÆÐI
HANN ER
DYRAVÖRÐUR!
ER HANN
BARÞJÓNN?
NOTAÐIR
BÍLAR
TILBO
Ð
höfum þar ásamt fjölskyldu Sig-
ríðar ræktað sauðfé og hross. Við
erum samheldin fjölskylda í Mið-
garði og oft erum við mörg saman
og fyrirferðarmikil, gerum nánast
allt saman, allt frá því að ferðast
innan- og utanlands, halda jól og
setja upp girðingar. Við förum
með vinum og fjölskyldu í hesta-
ferðir helst árlega, t.d. í sumar
riðum við úr Borgarfirðinum norð-
ur á Strandir; frábær ferð með
góðum vinum.
Ég hef líka mjög gaman af
smalamennskum en nú er einmitt
sá tími þar sem göngur eru í há-
vegum hafðar. Nú er ég búinn að
fara í leitir tvær helgar í röð og
næstu helgi verður svo farið í
þriðju leitina.“
Fjölskylda
Eiginkona Davíðs er Sigríður
Arnardóttir, f. 4.10. 1983, grunn-
skólakennari og gáfnaljós. Þau eru
búsett í Miðgarði í Stafholts-
tungum. Foreldrar Sigríðar voru
Örn Einarsson bóndi, f. 31.12.
1947, d. 20.10. 2005, og Sigríður
Númadóttir starfsmaður í eldhúsi,
f. 30.1. 1948, d. 23.11. 2018, bænd-
ur í Miðgarði.
Synir Davíðs og Sigríðar eru
Kristófer Daði, f. 6.4. 2004, nemi í
Menntaskólanum á Akureyri; Sig-
urður Örn, f. 31.8. 2007, nemi í
Grunnskóla Borgarfjarðar, og
Skarphéðinn Karl, f. 14.6. 2018,
nemi í leikskólanum Uglukletti.
Systkini Davíðs eru Jens Sig-
urðsson, f. 10.8. 1984, sjómaður;
María Sigurðardóttir, f. 13.8. 1990,
íþróttafræðingur, og Sveinbjörn
Sigurðsson, f. 22.5. 1999, háskóla-
nemi.
Foreldrar Davíðs: Hjónin Sig-
urður Einarsson, f. 12.4. 1961, d.
29.9. 2018, vélstjóri og bóndi á
Hellubæ í Hálsasveit, og Gíslína
Jensdóttir, f. 4.10. 1962, bóka-
safnsfræðingur í Snorrastofu,
Reykholti og bóndi á Hellubæ.
Davíð
Sigurðsson
Gíslína Magnúsdóttir
húsfreyja á Hofstöðum
Höskuldur Eyjólfsson
bóndi á Hofstöðum í Hálsasveit
Gíslína Perla Höskuldsdóttir
bóndi á Hellubæ
Jens Pétursson
húsasmiður á Hellubæ og í Reykjavík
Gíslína Jensdóttir
bókasafnsvörður í Snorrastofu og
bóndi á Hellubæ
Stefanía Jensdóttir
húsfreyja á Hjöllum
Pétur Finnbogason
útvegsbóndi á Hjöllum í
Ögursveit, N-Ís.
María Markúsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Guðbrandur Pálsson
sjómaður í Hafnarfirði
Klara Guðbrandsdóttir
húsfreyja í Laugardælum
Einar Einarsson
verkstjóri á Laugardælum í Flóa
Katrín Vigfúsdóttir
ljósmóðir í Nýjabæ
Einar Einarsson
bóndi í Nýjabæ undir Eyjafjöllum
Ætt Davíðs Sigurðssonar
Sigurður Einarsson
vélstjóri og bóndi á Hellubæ
í Hálsasveit, Borg.
Ingólfur Ómar Ármannsson orti á
Boðnarmiði á mánudag ljóðið
„Haustkyrrð“:
Sólargeislum fækka fer
fölnar jarðarbráin.
Ilm af lyngi blærinn ber
blikna hagastráin.
Sveipar fjöllin rökkrið rótt
ríkir kyrrð á haustin.
Lækjarsytra hjalar hljótt
hljóðnar fuglaraustin.
Og enn yrkir hann:
Þegar neyðin ógnar önd
auðnu deyðir treginn.
Þá er leiðin löngum vönd
lífs um breiða veginn.
Og enn:
Kulið andar, hvolfin blá
klæðast rökkurhjúpi.
Mánasilfrið sindrar á
sævar myrku djúpi.
Hallmundur Guðmundsson
skrapp í gleðskap fyrir sunnan um
helgina, en er nú kominn heim:
Þrautum píndur, þunnur mjög
ég þurfti að keyra norður.
Liggjandi nú legg ég drög
að líf mitt fall’ í skorður.
Sigtryggur Jónsson kveður og
kallar Haust:
Farinn er runninn að roðna
og rökkva um miðaftans bil.
Smáblóm í sverðinum koðna,
sólin þó enn veitir yl.
„Sumar og haust í september“
eftir Þórunni Hafstein:
Er sumarið komið að sunnan?
Því sólin hún blikar um runnann.
Haustlitir nú heilsa oss fríðir
og himinninn blár loftið prýðir.
Jón Atli Játvarðarson skrifaði á
miðvikudag: „Í tilefni þess að ís-
lenskar prjónakonur vilja halda hit-
anum á úkraínskum hermönnum,
með því að prjóna á þá sokka, þá
fór ég að hugsa um sokkaplögg fyr-
ir Putin á hinstu göngu hans á vit
forfeðra sinna. Hvað hann óskaði
sér og hvað væri við hæfi“:
Bölvaldsins mikla mál þarf að flokka,
moldum þann dauðans fýr.
Til göngunnar síðustu gefins fær sokka
úr görnum og sprengivír.
Pétur Stefánsson yrkir og kallar
„Júlí 1929“:
Um Skagafjörð skrafhreifinn rabba vil,
skrautlegrar sögu ég labba til;
er amma sig lagði
með afa, að bragði
bjuggu þau blessaðan pabba til.
„Í vondu skapi“ eftir Davíð
Hjálmar Haraldsson:
Tóta sig töluvert æsti,
hún tuldraði, rumdi og dæsti
og komst í slíkt skap
að hún karlinn sinn drap
og kallaði kolbrjáluð: „Næsti!“:
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort á haustdögum