Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 22.09.2022, Qupperneq 46
Elna Ólöf Guðjónsdóttir, línumaður kvennaliðs HK í handknattleik, mun að öllum líkindum ekkert leika með liðinu fyrr en eftir áramót eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné. Þetta staðfesti hún í samtali við Handbolta.is. Því býst hún við að verða frá keppni þar til á nýju ári. HK leikur í úrvalsdeild kvenna, Olís- deildinni, þar sem Elna Ólöf hefur verið lykilmaður liðsins, sér í lagi í vörninni. „Liðþófinn var saumaður sem þýðir að endurhæfingartíminn verður lengri en ef ekki hefði komið til þess,“ útskýrði Elna Ólöf. Elna leikur ekki meira á árinu Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Slösuð Elna Ólöf Guðjónsdóttir leikur ekki fyrr en eftir áramót. 46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2022 Meistaradeild kvenna 2. umferð, fyrri leikir: Valur – Slavia Prag .................................. 0:1 _ Seinni leikurinn fer fram í Prag næst- komandi miðvikudag. Brann – Rosengård ................................. 1:1 - Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn með Brann og skoraði. - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. Rosenborg – Real Madrid....................... 0:3 - Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 76 mínúturnar með Rosenborg. París SG – Häcken................................... 2:1 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir var allan tímann á bekknum hjá París SG. Þjóðadeild karla B-deild, 1. riðill: Skotland – Úkraína .................................. 3:0 _ Staðan: Skotland 9, Úkraína 7, Írland 4, Armenía 3. Svíþjóð Bikarkeppnin, 32-liða úrslit: Norrköping – Hammarby....................... 0:1 - Diljá Ýr Zomers lék fyrstu 76 mínúturn- ar með Norrköping. Vináttulandsleikur U19-ára karlar: Noregur – Ísland...................................... 1:3 _ Ísland mætir Svíþjóð í vináttuleik á laug- ardaginn kemur. >;(//24)3;( Meistaradeild karla A-RIÐILL: Porto – Veszprém................................ 28:35 - Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir Veszprém. _ Veszprém 4 stig, GOG 2, París SG 2, Magdeburg 2, Wisla Plock 2, Dinamo Búk- arest 0, Zagreb 0, Porto 0. B-RIÐILL: Elverum – Aalborg.............................. 25:33 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði 1 mark fyrir Elverum. - Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. _ Aalborg 4 stig, Kiel 2, Kielce 2, Barce- lona 2 Celje 2, Nantes 0, Pick Szeged 0, El- verum 0. Danmörk Tvis Holstebro – Skjern...................... 26:26 - Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar- þjálfari Holstebro. - Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Skjern. Skanderborg – Esbjerg ...................... 26:33 - Steinunn Hansdóttir skoraði eitt mark fyrir Skanderborg. Noregur Bikarkeppnin, 32-liða úrslit: Falk – Drammen.................................. 23:41 - Óskar Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir Drammen. Levanger – Volda ................................ 23:30 - Rakel Sara Elvarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Volda, Dana Björg Guðmundsdóttir 3 og Katrín Tinna Jensdóttir 1. Halldór Stef- án Haraldsson þjálfar liðið. Sarpsborg – Fredrikstad.................... 17:34 - Alexandra Líf Arnarsdóttir skoraði ekki fyrir Fredrikstad. Elías Már Halldórsson þjálfar liðið. Oppsal – Storhamar............................ 22:36 - Axel Stefánsson þjálfar kvennalið Stor- hamar. E(;R&:=/D Subway-deild kvenna Grindavík – Fjölnir............................... 87:75 Haukar – ÍR........................................ 104:53 Keflavík – Njarðvík ........................... (42:34) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Staðan fyrir leik Keflav. og Njarðv.: Haukar 1 1 0 104:53 2 Valur 1 1 0 84:46 2 Grindavík 1 1 0 87:75 2 Keflavík 0 0 0 0:0 0 Njarðvík 0 0 0 0:0 0 Fjölnir 1 0 1 75:87 0 Breiðablik 1 0 1 46:84 0 ÍR 1 0 1 53:104 0 1. deild kvenna: Þór Ak. – Ármann ................................ 63:58 Snæfell – KR......................................... 76:78 >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Ísafjörður: Hörður – KA........................... 18 Vestmannaeyjar: ÍBV – ÍR ...................... 18 Úlfarsárdalur: Fram – Afturelding .... 19.30 Hertz-höll: Grótta – Stjarnan.............. 19.30 Ásvellir: Haukar – Selfoss ................... 19.40 Í KVÖLD! Íslenska U19 ára landslið karla í fótbolta vann í gær sterkan 3:1- sigur á Noregi í vináttuleik í Sví- þjóð. Hilmir Rafn Mikaelsson, Eggert Aron Guðmundsson og Bjarni Guð- jón Brynjólfsson gerðu mörk Ís- lands á 67., 75. og 85. mínútu og komu liðinu í 3:0. Norðmenn minnkuðu muninn í uppbótartíma. Ísland mætir Svíþjóð í öðrum vin- áttuleik á laugardag. Leikið verður í Rudevi og verður flautað til leiks klukkan 13. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Mark Stjörnumaðurinn Eggert Ar- on Guðmundsson skoraði í gær. Íslenskur sigur á Norðmönnum FÓTBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Í dag mætir Ísland liði Vene- súela í vináttulandsleik í knatt- spyrnu karla. Leikurinn fer fram í Wiener Neustadt í Austurríki og hefst klukkan 16 að íslenskum tíma. Ísland hefur aldrei áður mætt Venesúela í landsleik og því um fyrstu viðureign liðanna í sög- unni að ræða í dag. Aðeins ein breyting hefur verið gerð á íslenska leikmannahópnum frá því að hann var upphaflega til- kynntur þann 16. september. Hægri bakvörðurinn Alfons Samp- sted þurfti skömmu síðar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og kallaði Arnar Þór Viðarsson lands- liðsþjálfari Höskuld Gunnlaugsson, fyrirliða Breiðabliks, inn í hópinn í hans stað. Eftir vináttulandsleikinn gegn Venesúela ferðast íslenska liðið til Albaníu, þar sem það mætir heimamönnum í lokaleik beggja liða næstkomandi þriðjudag. Sá leikur gæti reynst gífurlega mik- ilvægur í baráttunni um toppsæti riðils 2 í B-deild Þjóðadeildar UEFA. Því má vænta þess að Arnar Þór dreifi álaginu í leik dagsins sem best hann getur á þá 23 leikmenn sem eru í hópnum að þessu sinni. Það liggur þá í augum uppi að Venesúela muni gera slíkt hið sama enda leikur liðið einungis vináttuleiki í þessum lands- leikjaglugga. Alls valdi José Pek- erman, landsliðsþjálfari Venesúela, 29 leikmenn fyrir leiki liðsins gegn Íslandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Talsverð reynsla í Evrópu Þekktasti leikmaður Venesúela er án efa sóknarmaðurinn Salomón Rondón, leikmaður enska úrvals- deildarfélagsins Everton. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í Bítla- borginni en hefur áður leikið með og staðið sig vel hjá West Brom- wich Albion og Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni, Rubin Kaz- an, Zenit St. Pétursborg og CSKA Moskvu í rússnesku úrvalsdeild- inni og Málaga í spænsku 1. deild- inni. Rondón, sem er 33 ára gamall, á að baki 89 landsleiki fyrir Vene- súela og hefur skorað í þeim 35 mörk, sem gerir hann að marka- hæsta leikmanni þjóðarinnar frá upphafi. Fyrirliði liðsins, miðjumaðurinn Tomás Rincón, á sömuleiðis góðan feril að baki í Evrópuboltanum þar sem hann leikur nú með Samp- doria í ítölsku A-deildinni og hefur áður verið á mála hjá Torino, Ju- ventus og Genoa í sömu deild. Rincón, sem er 34 ára, hóf feril sinn í Evrópu með Hamburg þar sem hann lék í þýsku 1. deildinni um fimm ára skeið. Hann er næst- leikjahæsti leikmaður landsliðs Venesúela frá upphafi með 118 landsleiki. Leikjahæstur er Juan Arango með 129 leiki, en hann hætti knattspyrnuiðkun árið 2017 og því ekki ósennilegt að Rincón slái metið. Flestir leika í heimalandinu Hann er annar tveggja leik- manna sem spila á Ítalíu en flestir úr leikmannahópnum leika í efstu deild í heimalandinu, tíu talsins. Fjórir af þeim eru nýliðar, en ný- liðarnir hjá Venesúela eru alls fimm. Næstflestir leika hins vegar í Bandaríkjunum, alls sjö leikmenn. Aðrir leikmenn dreifast víðar um Suður- og Norður-Ameríku og Evrópu. Þrír leika í Brasilíu, tveir í Mexíkó og einn í Kólumbíu, Portúgal, Belgíu og Ísrael. Aldrei komist á HM Venesúela er sem stendur í 56. sæti á styrkleikalista Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA, sjö sætum ofar en Ísland í 63. sæti. Venesúela er eina Suður- Ameríkuþjóðin sem hefur aldrei komist á heimsmeistaramót. Þrátt fyrir dræman árangur í undankeppni HM í gegnum árin hefur liðið átt það til að standa sig vel í Ameríkubikarnum, Copa Am- érica. Árið 2011 hafnaði Venesúela í 4. sæti í keppninni og í 5. sæti árið 1967, þegar liðið tók þátt í fyrsta skipti. Venesúela hefur þrí- vegis til viðbótar komist í 8-liða úrslit Ameríkubikarsins, árin 2007, 2016 og 2019. Ísland mætir Venesúela í fyrsta sinn Morgunblaðið/Eggert Mark Þórir Jóhann Helgason fagnar marki í leik Íslands gegn Ísrael á Laugardalsvelli í sumar. Hann er á sínum stað í leikmannahópi landsliðsins. - Vináttulandsleikur í Austurríki í dag - Sjö sæti skilja liðin að á lista FIFA Haukar, silfurliðið frá því á síðasta Íslandsmóti kvenna í körfubolta, fara vel af stað á nýju tímabili en lið- ið vann sannfærandi 104:53-sigur á nýliðum ÍR á heimavelli í 1. umferð Subway-deildarinnar í gærkvöldi. Haukar skiptu stigunum vel á milli sín en Sólrún Inga Gísladóttir gerði 22 þeirra. Tinna Guðrún Alex- andersdóttir bætti við 18 og Keira Robinson skoraði 17 stig. Aníka Linda Hjálmarsdóttir skor- aði 16 stig fyrir ÍR og Nína Jenný Kristjánsdóttir gerði 13 stig. Grindavík fer einnig vel af stað en liðið lagði deildarmeistara Fjölnis á heimavelli, 87:75. Grindvíkingar byrjuðu miklu betur, unnu fyrsta leikhlutann 27:16 og var staðan í hálfleik 59:38. Fjölnir lagaði stöðuna í seinni hálfleik en sigur Grindvík- inga var aldrei í hættu. Danielle Rodríguez skoraði 36 stig og tók 9 fráköst fyrir Grindavík og fyrirliðinn Hulda Björk Ólafsdóttir skoraði 13 stig og tók sex fráköst. Urté Slavick- aité skoraði 22 stig fyrir Fjölni og fyrirliðinn Dagný Lísa Davíðsdóttir skoraði 16 stig og tók átta fráköst. _ Leik Keflavíkur og Njarðvíkur í Blue-höllinni í Keflavík var ekki lok- ið þegar blaðið fór í prentun en um hann er fjallað á mbl.is/sport/ korfubolti. Óvænt tap deildar- meistara Fjölnis - Haukakonur völtuðu yfir nýliðana Morgunblaðið/Árni Sæberg Frákast Margrét Blöndal úr ÍR berst um frákast við Keiru Robinson úr Haukum í 1. umferð Subway-deildarinnar í Ólafssal í Hafnarfirði í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.