Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 56

Morgunblaðið - 22.09.2022, Page 56
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 *Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. KENNEDY 3ja sæta sófi. Ljóst áklæði. Einstaklega mjúkur . 223.992 kr. 279.990 kr. STANLEY TBR-552 Rafdrifinn lyftistóll sem hjálpar þér á fætur. Ljóst áklæði. 159.992 kr. 199.990 kr. AMERÍSKIR DAGAR 20% AFSLÁTTUR og þægilegur HARBOUR TOWN TBR-532 Rafdrifinn hægindastóll með bólstruðum viðarörmum. Þessi hjálpar þér að standa á fætur. 159.992 kr. 199.990 kr. CLARKSTON 35T-577 Einstaklega notalegur 3ja sæta sófi. Sveif á hlið leggur sæti aftur og lyftir um leið upp fótaskeemli. 229 × 104 × 104 cm. 351.992 kr. 439.990 kr. PINNACLE 10T-512 AV Hægindastóll með sveið á hlið sem leggur stólinn aftur og lyfir um leið fótskemli. 151.992 kr. 189.990 kr. Tónleikasýningin The Greatest Showman verður haldin í Háskólabíói á laugardag kl. 19.30 og 21. Á tónleik- unum verður tónlistin úr kvikmyndinni The Greatest Showman frá 2017 flutt, en meðal þekktra laga mynd- arinnar eru „A Million Dreams“, „Never Enough“, „This Is Me“ og „Rewrite The Stars“. Aðalsöngvarar tónleik- anna eru Magni Ásgeirsson, Greta Salóme, Króli, Björg- vin Franz og Svala Björgvins. Þar að auki leikur hljóm- sveit undir stjórn Óskars Einarssonar ásamt kór Lindakirkju, Stúlknakór Reykjavíkur og dönsurum. Miðar fást á vefnum tix.is. The Greatest Showman á tónleikum FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Í dag mætir Ísland liði Venesúela í vináttulandsleik í knattspyrnu karla. Leikurinn fer fram í Wiener Neu- stadt í Austurríki og hefst klukkan 16 að íslenskum tíma. Ísland hefur aldrei áður mætt Venesúela í lands- leik og því um fyrstu viðureign liðanna í sögunni að ræða í dag. Aðeins ein breyting hefur verið gerð á íslenska leik- mannahópnum frá því að hann var upphaflega kynntur hinn 16. september. Höskuldur Gunnlaugsson kom inn í staðinn fyrir Alfons Sampsted. »46 Mæta Venesúela í Austurríki ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fólk sankar að sér ýmsum hlutum, eins og gengur. Sumir safna penn- um, aðrir frímerkjum, servíettum, þjóðbúningadúkkum, útskornum fuglum, jólaskeiðum og bollum, svo dæmi séu tekin. Til eru þeir sem safna málverkum, fasteignum, bílum og peningum en Jóhann Hákonarson er ólíkur flestum ef ekki öllum söfn- urum því hann safnar fílum! Félagarnir Jóhann og Ágúst Gunnarsson eiga og reka innflutn- ingsfyrirtækið Dan-inn ehf. Þeir eru með umboð fyrir margar danskar vörur og starfsins vegna hafa þeir oft verið í Danmörku undanfarna ára- tugi. Sagt hefur verið um marga Vestur-Íslendinga að þeir séu ís- lenskari en margur landinn og með sanni má segja að Jóhann sé dansk- ari en margur Daninn. Afdrifarík fyrsta ferð Hann fylgir dönskum hefðum út í ystu æsar. Fyrir jólin í fyrra héldu þeir Ágúst til dæmis upp á það að þá hefðu þeir gert vel við sig að hætti Dana 800 sinnum við borð númer 16 á Jómfrúnni í Lækjargötu í Reykja- vík í hádeginu á föstudögum frá aldamótum. Geri hreinræktaðir Danir betur! Jóhann segir að hann hafi fallið fyrir danska smurbrauðinu og fíln- um eða Elefant-bjór í fyrstu ferðinni til Kaupmannahafnar. „Brauðið og bjórinn smellpössuðu fyrir mig og þessi næring hefur verið mitt uppá- hald síðan,“ segir hann um helstu hefðina í mat og drykk. Bætir við að þegar bjórinn hafi verið leyfður á Ís- landi hafi Elefant ekki staðið til boða og hann hafi þurft að bíða nokkuð lengi eftir því að næra sig á Íslandi eins og hann hafði vanist í Dan- mörku en biðin hafi ýtt undir áhug- ann á Elefant og þar með fílum. „Þegar ég fór í kynnisferð í Carls- berg-verksmiðjuna í Kaupmanna- höfn sá ég stórar styttur af fílum í fyrsta sinn, heillaðist algerlega og síðan hafa fílar haft þessi áhrif á mig, ég sé þá í hverju horni og ræð ekki við mig þegar þeir eru annars veg- ar.“ Fullvaxinn fíll er ekki barna- meðfæri. Þess vegna hefur Jóhann verið lítillátur og safnað litlum fílum. „Í hjörðinni eru yfir 100 dýr og safn- ið því langt því frá að vera í útrým- ingarhættu,“ segir hann og bendir á að hann lumi líka á mörgum mismun- andi Elefant-flöskum og -dósum. „Þessi árátta hefur smitað út frá sér og afastrákurinn Dagur Snær skar til dæmis út Elefant-fótboltavöll þegar hann var í Melaskólanum.“ Jóhann komst í feitt þegar hann frétti af fílaverslun í Lyngby fyrir tæpum 20 árum. „Ég svaf ekki af spenningi og aldrei þessu vant fór ég með frúna í verslun en ekki öfugt. Það hefði ég ekki átt að gera, því hugur minn stóð til að kaupa tveggja tonna fílsstyttu, en þá sagði konan hingað og ekki lengra. „Ertu galinn,“ sagði hún og dró mig að annarri meðfærilegri styttu. „Keyptu þessa,“ sagði hún og ég lét undan, með semingi þó. En þar fór söfnunin samt á hærra stig.“ Styttan er úr graníti, 500 kg að þyngd. Samskip fluttu hana til Ís- lands þar sem hún var sett á bíl með krana og síðan komið fyrir framan við sumarbústað hjónanna í Vaðnesi. „Ég var þar með kominn með fíls- unga með skögultennur og vissi að hann gæti ekki verið lengi frá mömmu sinni. Þau eru enn aðskilin en koma tímar og koma ráð.“ Aðskilin í tæp 20 ár - Draumur Jóhanns er að sameina ungann og mömmuna Gaman Börnin tóku vel á móti fílsunganum í Vaðnesi. Aðdráttaraflið Fíllinn hjá Carlsberg heillaði Jóhann í fyrstu ferð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.