Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 holabok.is • holar@holabok.is HRAFNINN Stórbrotin bók, stútfull af fróðleik, fyndnum sögum og glæsilegu myndefni af einu gáfaðasta dýri á þessari reikistjörnu. DAGMÁL Gísli Freyr Valdórsson Karítas Ríkharðsdóttir Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, og Guðlaugur Þór Þórðar- son, umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra og mótframbjóðandi hans um formannsstólinn, mættust í Dag- málaþætti dagsins þar sem þeir tak- ast á um ólíka sýn á grasrótarstarf, ásýnd og stöðu flokksins. Þátturinn er sýndur og aðgengi- legur í opinni dagskrá á mbl.is. Í þættinum er vikið að ríkisstjórn- arsamstarfinu og hlutverki Sjálf- stæðisflokksins í því. Í kjölfar þess að Guðlaugur Þór bauð sig fram hef- ur verið rætt um það hvort til greina komi að slíta samstarfi við Vinstri græna og Framsóknarflokkinn eða hvort að samstarfinu verði jafnvel sjálfhætt, þar sem ekki ríki sama traust á milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðlaugs Þórs og gerir á milli Katrínar og Bjarna. Guðlaugur Þór segir þó að Sjálf- stæðisflokknum bera skylda til að vinna af einurð að þeim stjórnarsátt- mála sem búið er að vinna að og sam- þykkja. Hann segir að flokkurinn muni klára kjörtímabilið í þessari ríkisstjórn. Þegar Bjarni er spurður um það hvort honum líði vel í samstarfinu, mögulega of vel, svarar hann því til að samstarfið hafi ekki alltaf verið auðvelt og það hafi verið mörg átakamál innan ríkisstjórnarinnar. „Við vorum lengi að setja saman þennan stjórnarsáttmála vegna þess að við vissum að það voru mál sem flokkarnir áttu erfitt með að koma sér saman um á fyrra kjörtímabili. En það sem reið á endanum bag- gamun var að það var traust á milli forystumanna og einlægur vilji til að ná sem mestum árangri á grundvelli þess trausta umboðs sem við höfum. Við höfum ríkan meirihluta á Alþingi og það gefur mikla möguleika til að hrinda í gegn breytingum,“ segir Bjarni. Hann segist, aðspurður, hafa lagt áherslu á að Sjálfstæðisflokkurinn fengi forsætisráðuneytið við mynd- un ríkisstjórnar en það hafi ekki náðst samstaða um það. Þess í stað hafi flokkurinn fengið fleiri ráðherra og aukið val um ráðuneyti, sem hafi orðið til þess að auðveldara var að koma stefnumálum flokksins að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Stétt með stétt Guðlaugur Þór er spurður um orð sem hann lét falla í fyrrnefndri fram- boðsræðu sinni um meinta yfirstétt og það að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að taka aftur upp gamla slagorðið sitt um stétt með stétt. Þegar hann er beðinn um að útskýra þessi orð sín betur, vísar hann til þess að tölu- verður fjöldi fólks hafi yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn á liðnum árum og tekur dæmi um að flokkurinn höfði ekki lengur til þeirra sem reka lítil og meðalstór fyrirtæki. Þessu mótmælir Bjarni og bendir á að slagorðið kristallist í stefnu og verkum flokksins. Þannig hafi tölu- vert verið gert til að veita þeim fyrir- tækjum aðstoð í gegnum kórónu- veirufaraldurinn. Hann segir að hugtakið endurspeglist ekki bara í stefnu flokksins heldur þeim áhrif- um sem flokkurinn hefur haft í sam- félaginu, þar sem jöfnuður sé mikill og almenn hagsæld dreifð á fjölda fólks. Ekki áhyggjur af þingflokki Meirihluti þingflokks Sjálfstæðis- flokksins hefur nú þegar lýst yfir stuðningi við Bjarna, þannig að ljóst er að ef Guðlaugur Þór ber sigur úr býtum í komandi formannskjöri mun hann – að öllu óbreyttu – eiga í erfið- leikum með það að stokka upp í ráð- herraskipan flokksins, þar sem þing- flokkurinn þarf að samþykkja hana. Spurður um þetta segist Guðlaugur Þór ekki hafa áhyggjur af því. Þá svarar hann því ekki hvort hann hyggist sitja áfram sem umhverfis- ráðherra, verði hann formaður flokksins. Frá því hefur verið greint að þeir Bjarni og Guðlaugur Þór hafi fundað í aðdraganda þess að Guðlaugur Þór tilkynnti formannsframboð sitt og að hann hafi gert þá kröfu að verða fjármálaráðherra. Guðlaugur Þór neitar því í viðtalinu að hafa gert slíka kröfu en segir að þeir Bjarni hafi vissulega rætt um þá stöðu sem komin var upp og þá gagnrýni sem hann hafði á starfsemi og áherslur flokksins. „Ég held að það henti hvorugum okkar að fara út í smáatriði í samtali sem var á milli okkar tveggja,“ segir Bjarni, aðspurður um þetta, en bæt- ir þó við að rætt hafi verið um hvern- ig Sjálfstæðisflokkurinn eigi að starfa sem stjórnmálahreyfing, verkaskiptingu innan flokksins og fleira. Nú séu þeir hins vegar báðir komnir í framboð og þeir séu báðir að einbeita sér að því. Í viðtali Dagmála er jafnframt vik- ið að því hvernig framboð Guðlaugs Þórs kom til og hvort Bjarni hafi vanmetið meinta óánægju með störf sín og forystunnar innan flokksins, um það hvort að Bjarni hafi lagt of mikla áherslu á störf sín sem fjár- málaráðherra og frekar tekið af- stöðu með kerfinu umfram skatt- greiðendur og áherslur flokksins í ríkisfjármálum, um fjárhagslega stöðu þeirra beggja, tengsl við at- vinnulífið og margt fleira. Klára kjörtímabilið í ríkisstjórn - Kappræður frambjóðenda til formennsku í Sjálfstæðisflokknum í opnu streymi á mbl.is - Traust á milli oddvita í meirihluta forsenda samstarfs - Guðlaugur vill ekki slíta samstarfinu Morgunblaðið/Eggert Formaður Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson mættust í Dagmálum. Þá greinir á um það hvernig stjórna skuli Sjálfstæðisflokknum. Umræður Ríkisstjórnarsamstarfið, forsendur framboða og flokkaumhverfið var rætt meðal annars. Formannskjör í Sjálfstæðisflokknum ’ Ég kannast ekki við að það að tala fyrir því að við séum búin að hámarka okkur í fylgi. Það er útúr- snúningur að halda því fram að það sé það sem ég er að segja. Það sem ég er að segja er; Það dugar ekki að stíga fram og segja „Við ætlum að vera langstærsti flokkurinn“. Þetta er bara innihaldslaust upphróp. Bjarni Benediktsson ’ Er eitthvað sem bendir til þess að tími óvæntra kosningaúrslita sé liðinn? Eigum við að fara yfir ná- grannalöndin, vestanhafs og austan? Guðlaugur Þór Þórðarson ’ Planið sem ég er með er að skila árangri fyrir fólk, þannig að það sjái það. Bjarni Benediktsson ’ Niðurstaðan var sú að við sett- umst niður, fyrst niðri í fjármála- ráðuneytinu og síðan á heimili Bjarna og ræddum, eðlilega, stöðuna sem upp var komin. Það voru ekki kröfur gerðar af minni hálfu um eitt eða neitt – en hins vegar ræddum við mjög margt. Guðlaugur Þór Þórðarson ’ Það er samkeppnishæfni landsins sem verður að stýra för í ákvarð- anatöku og þar eru möguleikarnir endalausir. Þeir eru í græna hagkerf- inu, þeir eru í auðlindahagkerfi Ís- lands, alveg sama hvort að við erum að tala um orkuna, fiskinn eða orku- frekan iðnað. Það eru endalaus tæki- færi. Bjarni Benediktsson ’ Ráðdeild og lágar álögur er tíma- laust og það er eilífðarverkefni. Það er í mörg horn að líta og þannig verður það alltaf. Ég tel að við getum gert miklu betur að hafa flokkinn dýnamískari til að nýta fólkið sem þar er til að koma að stefnumótun. [...] Við megum ekki sofna á verðinum þó að við séum í ríkisstjórn vegna þess að það er stutt í næstu kosningar. Guðlaugur Þór Þórðarson Nokkur ummæli formannsfram- bjóðendanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.