Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 55
MINNINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
✝
Ásgeir Andra-
son fæddist í
Reykjavík 9. mars
1967. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 21.
október 2022 eftir
stutta en erfiða
baráttu við
krabbamein.
Foreldrar hans
voru Andri Sig-
urður Jónsson, f. 4.
október 1934, d. 14. apríl 1997,
og Hjördís Heiða Björnsdóttir,
f. 2. apríl 1938, d. 3. júní 2007.
Systkini Ásgeirs eru: 1)
Guðrún Edda, f. 20. september
1958, eiginmaður hennar er
Gunnlaugur Ingvarsson. Dæt-
ur hennar eru: a) Anja Ísa-
bella, f. 7. júní 1984, eigin-
maður hennar er Arnar Fells,
þau eiga tvo syni, Theodór, f.
11. september 2017, og Lúkas,
f. 21. júlí 2019. b) Belinda, f. 6.
mars 1986, eiginmaður hennar
er James Beavan, þau eiga
þrjú börn, Aaron, f. 3. sept-
ember 2010, Oliver, f. 2. apríl
árin vann hann hjá Hvera-
gerðisbæ við akstur fyrir
Birkimörk og dagvist eldri
borgara. Ásgeir stundaði golf
og var varamaður í stjórn
GHG til nokkurra ára og var
virkur í starfi mótanefndar
svo og öðrum verkefnum hjá
GHG.
Árið 1992 kynntist hann eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Önnu
Margréti Þorfinnsdóttur, f. 4.
október 1965. Þau áttu einn son
saman, Andra Þorfinn, f. 10.
apríl 1994. Eiginkona hans er
María Dís Jóhannsdóttir, f. 10.
maí 1995. Þau eiga þrjú börn;
Önnu Jórunni, f. 25. nóvember
2015, Ásgeir Loga, f. 24. nóv-
ember 2016, og Guðrúnu Láru,
f. 16. janúar 2022. Stjúpdóttir
Ásgeirs er Ásdís Alda, f. 18.
nóvember 1986. Sambýlismaður
hennar er Kristján Björnsson, f.
2. janúar 1985. Þau eiga þrjú
börn: Alexander Örn, f. 7. jan-
úar 2012, Helgu Maren, f. 26.
desember 2019, og Viktor
Breka, f. 27. maí 2022. For-
eldrar Önnu Margrétar eru
Þorfinnur Óli Tryggvason, f.
31. ágúst 1939, d. 28. október
2016, og Alda Berg Ósk-
arsdóttir, f. 23. nóvember 1931.
Útför Ásgeirs fer fram í
Hveragerðiskirkju í dag, 3. nóv-
ember 2022, klukkan 13.
2012, og Míu Ísa-
bellu, f. 3. desem-
ber 2014. 2) Sig-
rún Jóna, f. 22.
maí 1960, eig-
inmaður hennar
er Björn Þór Svav-
arsson. Dætur
hennar eru: a) Íris
María, f. 22. októ-
ber 1979, börn
hennar eru Arnar
Már, f. 21. júlí
1999, og Katrín Sunna, f. 21.
desember 2003. b) Hjördís
Heiða, f. 5. janúar 1988, dóttir
hennar er Elísabeth, f. 26.
nóvember 2004. 3) Ásbjörn, f.
4. desember 1962, d. 20. júlí
2017, sambýliskona hans var
Charlotte M. Horndrup, f. 8.
mars 1969, d. 16. maí 2008.
Ásgeir ólst upp í Reykjavík
til 11 ára aldurs, en þá flutti
fjölskyldan til Danmerkur.
Hann kláraði meistaranám í
bifvélavirkjun og flutti aftur
til Íslands 1991 og vann í
nokkur ár á verkstæði lögregl-
unnar í Reykjavík. Síðustu tólf
Enginn veit hver annan gref-
ur eru orð að sönnu, sem oft
hafa leitað á hug okkar síðustu
daga. Í dag kveðjum við litla
bróður okkar Ásgeir. Við slíkan
skilnað, sem svo brátt hefur
borið að, er erfitt að hugsa til
þess að við fáum aldrei að sjá
hann framar. Minningarnar
streyma fram í hugann. Dugn-
aðurinn og hjálpsemin sem var
svo ríkur þáttur í fari hans.
Hann var sannur vinur, sem
ávallt var hægt að leita til.
Hann var með hjartað á réttum
stað og var alltaf boðinn og bú-
inn að leysa hvers manns
vanda.
Minningarnar munu ylja
okkur í framtíðinni um glað-
væran bróður, sem átti gott
með að sjá björtu hliðarnar á
lífinu og ætíð var stutt í húm-
orinn hjá honum. Þær eru líka
margar æskuminningarnar sem
litli bróðir okkar er ómissandi
hluti af.
Í þeim stuttu en snörpu veik-
indum sem hann átti við að etja
síðastliðna mánuði stóð konan
hans Anna sem klettur. Við
sendum henni, börnum þeirra,
barnabörnunum sem og fjöl-
skyldunni allri okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og megi
Guð styrkja þau á þessum erf-
iðu tímum.
Einhvern veginn er það svo,
að við hugsum sjaldan um það
að sérhver samverustund
manna hér á jörð kann að vera
sú síðasta. Hans verður sárt
saknað af okkur systrum, eig-
inmönnum okkar, systradætr-
unum fjórum og fjölskyldum
þeirra. Blessuð sé minning okk-
ar yndislega bróður.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Edda og Sigrún.
Það var mikið lán fyrir íbúa
og starfsfólk á Heimilinu Birki-
mörk þegar Ásgeir Andrason
réð sig sem bílstjóra til að aka
þjónustubíl fyrir fatlaða íbúa í
Hveragerði. Alveg frá upphafi
líkaði öllum vel við Ásgeir, enda
ekki annað hægt. Í samskiptum
sýndi hann virðingu með hæfi-
legri blöndu af umhyggju, gríni
og hvetjandi viðmóti. Hann var
hvers manns hugljúfi og íbúar
voru fljótir að setja traust sitt á
hann. Ásgeirs verður því sárt
saknað hér í Birkimörk.
Við kveðjum í dag góðan
dreng og samstarfsfélaga með
þakklæti og hlýju.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Ástvinum Ásgeirs sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
F.h. íbúa og starfsfólks
Heimilisins Birkimarkar,
Steinunn
Jónsdóttir.
Ég ætla hér í fáum orðum að
minnast Ásgeirs Andrasonar en
hann burtsofnaði 21. október
síðastliðinn, allt of ungur, að-
eins 55 ára, á sjúkrahúsinu á
Selfossi eftir illvíg veikindi.
Hann var mér afar kær og
verður sárt saknað.
Fjölskyldur okkar Ásgeirs
bjuggu í „Heiðnahverfinu“ í
Reykjavík á sjöunda áratug síð-
ustu aldar, þegar vegir okkar
lágu fyrst saman. Við á Braga-
götunni og þau á Nönnugöt-
unni. Vorum við krakkarnir í
hverfinu oft að leika okkur
saman, þá gjarnan í „kýló“ á
horni þessara gatna.
Ásgeir var aðeins hvítvoð-
ungur þegar við Sigrún systir
hans hófum skólagöngu okkar í
Miðbæjarskólanum og síðar í
Austurbæjarskólanum. Við vor-
um saman í bekk allan grunn-
skólann. Vinaböndin urðu afar
sterk árin fyrir fermingu, en þá
voru nokkur ár liðin síðan þau
fluttu á Grettisgötuna. Ég var
eins og grár köttur inni á heim-
ili þeirra og var mér tekið sem
ég væri ein úr fjölskyldunni og
svo hefur verið síðan.
Vinahópur okkar Sigrúnar
hittist oft heima hjá þeim og
var þá Ásgeir litli gjarnan að
skottast í kringum okkur, með
glampa í augum og bros á vör.
Það var aldrei neitt vesen á Ás-
geiri, bara gleði og hjartahlýja.
Og þannig var hann alla tíð, já-
kvæður, blíður og með eindæm-
um bóngóður. Hann leit á erf-
iðleika sem verkefni sem leyst
voru af æðruleysi.
Ég votta Önnu, Andra og Ás-
dísi Öldu og börnum þeirra og
systrunum Sigrúnu og Eddu og
afkomendum þeirra innilega
samúð mína.
Sorginni verður ei vísað á bug
vorkulið á okkur dynur.
Með kærleik í brjósti, klökkva í hug
við kveðjum þig, frændi og vinur.
Áfram við lifum í einlægri trú,
þó ævisól hnigi til viðar.
Þú ert horfinn til Austursins eilífa nú
og við óskum þér birtu og friðar.
(Séra Hjálmar Jónsson)
Kæri Ásgeir, minning þín
mun lifa í hjörtum okkar allra.
Bára Grímsdóttir.
Ásgeir
Andrason
✝
Aðalheiður
Auður Finn-
bogadóttir fæddist
á Sólvöllum í Mos-
fellssveit 24. mars
1936. Hún lést á
Vífilsstöðum í
Garðabæ 24. októ-
ber 2022.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Finnbogi Helgi
Helgason, bóndi á
Sólvöllum í Mosfellsbæ, f. 7. maí
1901, d. 11. júlí 1993, og Ingi-
björg Bjarnadóttir húsfreyja, f.
23. ágúst 1901, d. 1. júní 1979.
Aðalheiður var yngst fjög-
urra systkina. Systurnar voru
Ingunn Finnbogadóttir, f. 14.
apríl 1929, d. 1. ágúst 2022 og
Soffía Petra Finnbogadóttir, f.
20. desember 1930, d. 25. júní
2019. Hálfbróðir Aðalheiðar var
Bragi Reynir Friðriksson, f. 15.
mars 1927, d. 27. maí 2010.
Aðalheiður giftist Ingþóri
Þórðarsyni, vél-
stjóra úr Reykja-
vík, 18. ágúst 1962,
f. 1935, d. 1986.
Aðalheiður giftist
seinni eiginmanni
sínum, Skúla Jóns-
syni, bónda á Sela-
læk á Rangárvöll-
um, 10. september
2005, en hann lést
7. nóvember 2005.
Börn Aðalheiðar
og fyrri manns hennar, Ingþórs,
eru: 1) Guðrún Þóra, bóndi á
Háafelli í Dalasýslu, f. 1962, gift
Finni Þór Haraldssyni. 2) Ing-
unn, sjúkraliði, f. 1964, búsett í
Mosfellsbæ. 3) Þórður, þroska-
þjálfi, f. 1966, búsettur í Kópa-
vogi. 4) Ómar, landslagsarki-
tekt, f. 1970, búsettur í
Mosfellsbæ.
Útför Aðalheiðar fer fram í
dag, 3. nóvember 2022, kl. 13
frá Lágafellskirkju í Mosfells-
bæ.
Ég kynntist Öllu þegar ég var
fimmtán ára. Við unnum saman á
Álafossi í Mosfellssveit sem var
góður vinnustaður. Þar fengum
við fæði og húsnæði og við Alla
bjuggum saman um tíma í
Barnakoti. Á þessum árum vann
þarna stór hópur af ungu fólki á
okkar aldri og óhætt er að segja
að félagsskapurinn hafi verið frá-
bær.
Löngu seinna tókum við upp
þráðinn aftur og fórum saman í
ferðir, bæði innanlands og utan,
ásamt Huldu Jakobsdóttur. Það
eru ógleymanlegar ferðir.
Ekki datt mér í hug þegar ég
heimsótti Öllu á Vífilsstaði fyrir
stuttu að við myndum ekki hitt-
ast aftur en minningin um góða
vinkonu lifir.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(H.S.M)
Valborg (Vallý).
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.
(Har. S. Mag.)
Alla mín, mig langar að minn-
ast þín í fáeinum orðum. Þegar ég
flutti í Mosó var þetta sveit og fá-
ir bæir í nágrenninu, og þótti mér
örlítið einmanalegt þar sem ég
þekkti engan. En þá birtist þú og
bauðst mig velkomna í nágrennið
og upp frá því áttum við margar
góðar stundir saman. En nú ert
þú komin í sumarlandið og bið ég
góðan Guð að blessa þig og varð-
veita á nýjum slóðum.
Þegar lífsins leiðir skilja
læðist sorg að hugum manna.
En þá sálir alltaf finna
yl frá geislum minninganna.
(Helga frá Dagverðará)
Börnum Öllu og allri fjölskyld-
unni vottum við hjónin okkar
dýpstu samúð.
Elín Magnúsdóttir.
Aðalheiður Auður
Finnbogadóttir
Sofnar drótt, nálgast
nótt,
sveipast kvöldroða
himinn og sær.
Allt er hljótt, hvíldu rótt.
Guð er nær.
Samferðafólki okkar fækkar
ört. Ein af bestu dætrum Akra-
ness hefur kvatt í hárri elli.
Mig langaði að minnast hennar
í nokkrum orðum.
Leiðir okkar Auðar lágu
fyrst saman í kvenskátafélagi
Akraness þar sem hún var ein
af máttarstólpunum og fé-
lagsforingi á sínum tíma. Auður
var sannur skáti og mikil og
góð fyrirmynd og hafði stefnu
skáta, sem er í raun mannrækt-
arstefna, ætíð að leiðarljósi.
Allt sem hún tók að sér var
leyst af reisn.
Auður var svo mörgum kost-
um búin að of langt er upp að
telja. Hún var mikill náttúru-
unnandi og sérstakur dýravinur
og þvílíkur hafsjór af fróðleik
sem hún miðlaði okkur og sagði
alltaf svo skemmtilega frá.
Seinna urðum við Auður líka
Auður Ásdís
Sæmundsdóttir
✝
Auður Ásdís
Sæmundsdóttir
fæddist 2. ágúst
1925. Hún lést 10.
október 2022.
Auður var jarð-
sungin 21. október
2022.
nágrannar þegar
við bjuggum báðar
á Heiðarbrautinni.
Þau voru frábærir
nágrannar og sam-
skiptin á milli fjöl-
skyldnanna voru
mikil og góð. Þeg-
ar þau fluttu svo
að Ási í Melasveit
fórum við stundum
í heimsókn og allt-
af var okkur tekið
opnum örmum. Ég man svo vel
eftir honum Lassa, fallega
hundinum þeirra, sá átti nú
ekki leiðinlega ævi. Þetta voru
yndisstundir.
Það er mikill sjónarsviptir að
Auði og við í Svanna- og
Rekkasveitinni munum sakna
hennar sárt. Hún sótti fundi í
félaginu eins lengi og hún hafði
heilsu til og við minnumst
hennar með þakklæti og virð-
ingu.
Að leiðarlokum vil ég þakka
bæði vináttu og tryggð og
ómetanlegar stundir. Minningin
um góða og elskulega mann-
eskju lifir. Ég votta ástvinum
öllum innilega samúð. Blessuð
sé minning mætrar konu.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert ein af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Hulda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞÓRÐUR RÚNAR VALDIMARSSON
framreiðslumaður,
Lækjargötu 32, Hafnarfirði,
lést á Tenerife fimmtudaginn 27. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Svanhildur Ísleifsdóttir
Ásdís Þórðardóttir Hörður Davíð Harðarson
Þórhildur Þórðardóttir Hafsteinn P. Vattnes
Guðný Hrund Þórðardóttir Sigurður Örn Arnarson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín og systir,
JÓHANNA KRISTÓFERSDÓTTIR,
Hraunvangi 7,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði 24. október.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 9. nóvember klukkan 13.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Báruhrauns fyrir
einstaka umönnun.
Kristófer Þórir Kjartansson
Jóhannes Kristófersson Sigríður Árný Kristófersdóttir
Gunnar Kristófersson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR SVEINBJARNARDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
29. október. Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju miðvikudaginn 16. nóvember
klukkan 13.
Soffía Árnadóttir Sigurður K. Karlsson
Árni Kjartansson
Þór Sigurðsson
María Sigurðardóttir Kjartan Hrafn Kjartansson
Ómar K. Sigurðsson Svanhvít Arnardóttir
barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURBJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR,
Strikinu 4,
lést laugardaginn 29. október á
Landspítalanum Vífilsstöðum.
Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir
Helga Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir Unnar Reynisson
Hrefna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn