Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 68
MENNING68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is Jólagjafir gæludýranna færðu hjá okkur E llin bíður, þung og hrörleg“, syngja glað- hlakkanlegir stúdentar á þröskuldi fullorðinsáranna. Og svo reyna þeir að bægja hugsun- inni frá sér, og öllu sem öldrun hef- ur í för með sér. Að missa fegurð og færni, að verða upp á aðra kominn, að þurfa að hírast á stofnunum sem sífellt er í fréttum að séu að sligast undan álagi og ráði eiginlega ekki við að veita þá þjónustu sem þarf, og vitaskuld ekkert umfram það. En sumir hætta að bægja og byrja að skoða. Setja sig í spor gamlingjanna. Horfa fram á veginn og mæta augum fólksins sem þar stendur og horfir í gagnstæða átt og veltir fyrir sér hvað hafi orðið um lífið, og hvenær þau voru eiginlega hamingjusöm. Það hefur Matthías Tryggvi Haraldsson gert, og afraksturinn er Síðustu dagar Sæunnar. Ungs manns sýn á ógnir ellinnar. Sæunn og Trausti eru komin á stofnun. Trausti er að mestu horf- inn inn í þokuheim heilabilunar- innar og er jafnvel orðin konu sinni hættulegur en Sæunn þrjóskast við og harðneitar að láta koma honum fyrir annars staðar. Þess í stað drepur hún það sem eftir er af tímanum við að ráðstafa reytun- um, skipuleggja útförina, rýna í gamlar myndir, reyna að lokka soninn Lárus í heimsókn og þreifa eftir leifunum af bónda sínum til að hjálpa honum á ráfinu um þokuna. Þetta er ákaflega vel unnið verk hjá Matthíasi Tryggva. Eins og megnið af leikritum sem eru frumflutt þessi árin, nokkurn veg- inn sama hver það gerir, eru hér lærdómar frá leikhúsi fáránleikans nýttir til að gefa raunsæislegum efnivið og framvindu lyftingu. Gott ef ekki má rekja rætur þessa bræðings í íslensku leikhúsi allt aftur til Jökuls Jakobssonar. Hér má heyra enduróm af Samuel Beckett, þeim meistara hrörnunar- innar, í samtölum hjónanna og að sjálfsögðu í bjástri Sæunnar með kassettutækið, sem hún notar til að geyma nýjustu tilbrigði sín við útför og ráðstöfun eignanna. Öllu óvæntara, og sérlega gleði- legt, var þegar kostulegar einræð- ur Sæunnar um dramatíska bálför og sonarson í lífsháska í Heiðmörk- inni minntu einna helst á eintöl Darios Fo. Öllum þessum vopnum sveiflar Matthías Tryggvi fimlega og í þágu erindis síns. Textinn er skemmtilega skrifaður og skilar ótal hlátursköstum þó efnið sé ekkert léttmeti. Óneitanlega býr samt absúrd- tónninn til vissa fjarlægð á inni- haldið. Hreinræktað raunsæisverk hefði til dæmis sagt okkur eitthvað um hvað bjátar á í sambandi Sæunnar við son sinn. Við hefðum fengið að vita meira um hvernig samlífi hjónin lifðu, hverskonar maður Trausti var áður en hugur hans veðraðist þannig að ekkert stóð eftir nema gamlar fyllerí- issögur úr Menntaskólanum á Laugarvatni. Við hefðum vitað hvað Sæunn fékkst við í lífinu, hvort hún vann úti og við hvað. Og hvað gerðist eiginlega í Borgar- nesi? Síðustu dagar Sæunnar einangr- ar viðfangsefni sitt við stöðu mála Trausta og Sæunnar hér og nú og hugleiðingar um lífsgönguna og hamingjuleitina sem svo auðveld- lega getur misheppnast. Og reifar þau mál þannig að umhugsunar- vert er. Nær semsagt markmiðum sínum. Sviðsetning Unu Þorleifs- dóttur leiðir að því er best verður séð fram eiginleika og kjarna verksins á sannfærandi hátt. Hún hefur einnig augljóslega unnið firnagott starf með leikurunum í mótun persónanna. Guðrún S. Gísladóttir skapar verulega eftirminnilega persónu úr Sæunni, bæði sérkennilega og dæmigerða konu sem leitar með vaxandi örvæntingu að meiningu með lífi sínu og ummerkjum um hamingju. Hæst reis túlkunin í eintölunum fyrrnefndu, og ógleym- anlegu atriði þar sem Sæunn ímyndar sér aðkomu starfsmanns að sér dáinni. Ég gæti síðan trúað að túlkun Jóhanns Sigurðarsonar á hinum næstum horfna Trausta verði með langlífari sköpunarverkum hans í mínu leikhúsminni. Ótrúlega fínleg, en jafnframt stór í sniðum. Trúverðug mynd af heilaglöpum, en jafnframt svipmyndir af þeim manni sem Trausti eitt sinn var. Snorri Engilbertsson var líka sannfærandi og nett-skopfærður sálfræðingur að reyna að hjálpa, eða rugla Sæunni, og hæfilega hlutlaus starfsmaður stofnunar- innar sem hýsir þau hjónin. Allur samleikur lipur og vel tímasettur, sem skapaði oft kátínu í salnum og er til marks um góða samvinnu Unu leikstjóra og þessa vel sam- setta leikhóps. Umgjörðin er verk Elínar Hans- dóttur. Að mestu raunsæislega hugsuð og stofnanaleg eftir því. Háir bakveggirnir eru ekki síst ætlaðir til að varpa á þá mynd- böndum sem lífga óneitanlega upp á þá og skapa stemningu. Sama er tónlist Gísla Galdurs Þorgeirsson- ar ætlað að gera, en notkun hennar þótti mér ekki gera mikið gagn, þó stefin væru sum falleg, sérstaklega í lokamyndinni. Búningar Elínar eru vel hugsaðir, Sæunn í trú- verðugum fötum eldri konu sem er annt um útlit sitt, en eiginmað- urinn í mun „leikbúningalegri“ múnderingu, enda kominn lengra á veg út úr raunverulegu lífi. Það eru góðir tímar í íslenskri leikritun þessi misserin. Áber- andi mörg vel lukkuð leikverk litu dagsljósið, eða sviðsljósið öllu heldur, á síðasta leikári og það sem nú stendur yfir fer vel af stað. Í Síðustu dögum Sæunnar vinnur Matthías Tryggvi Haraldsson af miklu öryggi með form og texta, sem skilar sér í áhrifaríkri, um- hugsunarverðri og skemmtilegri sýningu um áleitið efni. Leið ermér hver ævistundin Ljósmynd/Grímur Bjarnason Öryggi Í leikritinu Síðustu dögum Sæunnar vinnurMatthías Tryggvi Haraldsson af miklu öryggi með form og texta, skrifar gagnrýnandi. LEIKLIST ÞORGEIR TRYGGVASON Borgarleikhúsið Síðustu dagar Sæunnar Eftir Matthías Tryggva Haraldsson. Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir. Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson. Leikmynd, búningar og myndbönd: Elín Hansdótt- ir. Lýsing: Pálmi Jónsson. Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson. Myndvinnsla: Elmar Þórarinsson. Leikgervi: Elín. S. Gísladóttir. Frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins föstudaginn 27. október 2022. Flytja tónverk eftir Benny Andersson Tónleikar verða haldnir í Víðistaða- kirkju í kvöld kl. 20 í tilefni af Vetrardögum. Á þeim verður flutt kórtónlist, þjóðlagatónlist og dægurtón- list eftir Benny Andersson sem er þekktur sem einn liðsmanna ABBA-flokksins og hefur líka samið kór- og þjóðlagalög. Kór Víðistaðasóknar kemur fram með Kór Seljakirkju og Barböru- kórnum, hljómsveit leikur með og einsöngvarar verða Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Benedikt Sigurðsson og söngvarar úr röðum kórfélaga. Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson. Jóhanna Vigdís Arnardóttir Hlutu verðlaun Norðurlandaráðs Verðlaun Norðurlandaráðs voru afhent í fyrrakvöld og eins og fjallað var um á forsíðuMorgun- blaðsins í gær hlaut íslenska kvikmyndinDýrið eftir leikstjór- ann Valdimar Jóhannsson, sem skrifaði handritið með Sjón, kvikmyndaverðlaunin. Um- hverfisverðlaunin hlaut sveitar- félagið Mariehamn á Álands- eyjum fyrirNabbens våtmark og bókmenntaverðlaunin hin danska Solvej Balle fyrir skáldsöguna Om udregning af rumfang I, II, III. Tónlistarverðlaunin hlaut sænska tónskáldið Karin Rehnqvist fyrir verkið „Silent Earth“ og norski rithöfundurinn Nora Dåsnes hlaut barna- og ung- lingabókmenntaverðlaunin fyrir myndasögunaUbesvart anrop. Ljósmynd/ Magnus Fröderberg/norden.org Norsk Dora Åsnes hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaunin. Morgunblaðið/Árni Sæberg HátíðarstundKira Kira í Lucky Records í gær, á upphafsdegi hátíðar. Hátíð hefst í höfuðborginni Tónlistarhátíðin Iceland Air- waves hófst í Reykjavík í gær með fjölda svokallaðra „off venue“- tónleika, þ.e. tónleika þar sem aðgangur er ókeypis. Voru einir slíkir haldnir í plötuversluninni Lucky Records, tónleikar Kiru Kiru sem er listamannsnafn tón- listarkonunnar Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur. Dagskrá hátíðarinnar má finna á icelandairwaves.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.