Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 53
ið þátt í að aðstoða við flutninga. Hann flutti oft á tímabili og við grínuðust oft með það að ef hann flytti ekki a.m.k. árlega væri eitthvað að. Eins að hann hlyti að hafa týnt íbúðinni sem hann átti í einhverjum þessara flutn- inga þegar hann var kominn tímabundið á leigumarkaðinn! Í einum af þessu flutningum gaf hann okkur eldri bræðrunum, sem þá vorum 18 og 16 ára, bar og barstóla sem hann átti. Þessi bar og barstólarnir voru miklir glæsigripir úr gegnheilum pali- sander-viði. Áttum við þennan bar í tæp 20 ár þegar við skil- uðum honum aftur til varðveislu til Jónasar. Megi minningin um Guðmund Friðrik lifa. Innilegar samúðarkveðjur til Jónasar, Magnúsar Friðriks, fjölskyldna þeirra og annarra ástvina. Torfi, Erlendur og Pétur Markússynir. Það er með djúpstæðri sorg og söknuði sem ég kveð góðan vin, Guðmund Friðrik Sigurðs- son. Ég hef þekkt Guðmund í rúm 36 ár þar sem fyrirtæki hans sá um bókhald fyrir veitingastað- inn minn og eftir að ég flutti til Kanada buðust þau til að halda því áfram. Guðmundur var alltaf yndis- legur maður og umhyggjusamur gagnvart öllum og svo fullur af lífsgleði. Ég er svo þakklát fyrir þær dýrmætu stundir sem ég átti með Guðmundi og fjölskyldu hans síðastliðið sumar. Ferðin með Guðmundi og hans stórfjöl- skyldu til Færeyja og um Vest- firði Íslands sem við vorum að fara í fyrsta skipti er ógleym- anleg, minninguna um þessa ferð mun ég geyma sem dýr- mætan fjársjóð í hjarta mínu. Guðmundur elskaði golf og sner- ist líf hans mikið um það. Það er kannski huggun í því að vita að hans síðasta stund var á golfvell- inum, á hans uppáhaldsstað. Hann reyndi að komast á alla golfvelli sem hann vissi um. Von- andi eru góðir golfvellirnir á himnum. Guðmundur elskaði og lifði fyrir fjölskyldu sína, sorgin er mikil hjá þeim. Ég votta mína dýpstu samúð til sona hans, Jón- asar og Magnúsar, barnabarna, einnig systkina hans og annarra aðstandenda. Kæri Guðmundur, þín verður sárt saknað af okkur öllum. Hvíl í friði kæri vinur. Þín vinkona Anna Peggy Friðriksdóttir. Með Guðmundi Friðriki er genginn góður vinur. Vinskapur sem varði í áratugi og er því margs að minnast; ógleymanleg- ar golfferðir um Bretlandseyjar, Suður-Evrópu og Flórída, auk ótal golfhringa á okkar frábæra Hvaleyrarvelli og víðar um land allt. Guðmundur Friðrik var svo sannarlega á heimavelli á Hval- eyrinni, enda formaður klúbbs- ins um árabil. Hann var einnig formaður handknattleiksdeildar Hauka á sínum tíma og mætti á leiki þegar tími gafst til. Hann sat einnig í stjórn GSÍ og HSÍ og lét að sér kveða á báðum stöðum, enda ákveðinn og fastur fyrir. Guðmundur Friðrik missti sína ástkæru eiginkonu, Krist- ínu Pálsdóttur, í september 2020 og var missir hans mikill, hún hafði verið hans stoð og stytta í lífinu. Hann sóttist eftir félagsskap okkar vinanna í sorg sinni og fórum við fjölmargar gönguferðir um Fjörðinn fagra sem honum þótti svo vænt um, enda borinn og barnfæddur Gaflari. Hans verður sárt saknað nú á aðventunni, en á Jómfrúnni höf- um við vinirnir hist undanfarin ár til að efla vinskapinn og gera okkur glaðan dag. Aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning þín kæri vinur og hvíl í friði. Magnús Hjörleifsson, Guðmundur Haraldsson, Ingimar Haraldsson. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Haukum Í dag þegar við kveðjum góð- an vin og félaga koma fyrstu kynnin upp í hugann. Það var fyrir um 50 árum að kynni okkar hófust er Guðmundur mætti á handboltaæfingu hjá félaginu. Ekki fór mikið fyrir afrekum á handboltavellinum en þeim mun meir í störfum fyrir félagið. Hann var kjörinn í stjórn hand- knattleiksdeildar félagsins 1972 og sat þar nær samfellt til 1985, þar af formaður í 10 ár og sat þá jafnframt í aðalstjórn félagsins. Það voru uppgangstímar í félag- inu á þessum árum. Íþróttahúsið við Strandgötu var tekið í notk- un og öll aðstaða íþróttafólks breyttist til hins betra. Góður gangur var í handboltanum, þá sérstaklega í kvennaboltanum. Að lokinni setu í stjórnum fé- lagsins tóku við störf við fjár- hagsbókhald félagsins sem hann sinnti af kostgæfni um áratuga skeið. Eftir stjórnarstörf í Haukum átti golfið hug hans all- an. Frá 1992 hafa Haukar haldið árleg golfmót þar sem Guð- mundur hefur hefur haldið um stjórnvölinn og stofnað „Hauka í holu“, þar sem margir Hauka- félagar eru félagar. Það var á golfvelli sem kallið kom skyndi- lega og hann kvaddi þessa jarð- vist í örmum félaga sinna. Nú að leiðarlokum þakkar sá er þetta ritar langa vináttu og félagið þakkar góð störf í sína þágu og sendir fjölskyldu Guð- mundar innilegar samúðar- kveðjur. Megi minning um góð- an dreng lifa. Fyrir hönd Knattspyrnu- félagsins Hauka, Bjarni Hafsteinn Geirsson. Við Guðmundur kynntumst um páskana 1977. Við áttum sameiginlegan vin, Sverri Her- mannsson, og þar sem við vorum ungir ákafamenn vildum við gera eitthvað eftirminnilegt. Ákváðum við að fara á skíðum forna gönguleið yfir Fönn, þús- und metra háan jökul á milli Norðfjarðar og Fljótsdalshér- aðs. Stutt leið en ill og ógreiðfær og sjaldan farin. Við Sverrir vorum vanir skíðamenn en Guðmundur hafði aldrei stigið á skíði. Gengum við á skíðum sem leið lá inn í Fanna- dal. Veðrið var dásamlegt, sól og stilla, en snjóþungt og nokkuð kalt. Eftir nestispásu héldum við áfram í átt að Fönn. Bárum þá skíðin á bakinu og þar sem snjórinn var ekki þéttur, þá sukkum við upp að hné í hverju skrefi. Við reyndumst illa búnir, höfðum engin landakort, vorum í gallabuxum og ókunnugir á þessum slóðum. Ég hafði þó tek- ið með mér blýantsyddara með litlum kompási. Gangan sóttist seint og í um 700 metra hæð var veðrið farið að versna. Við vorum alls ekki vissir um leiðina en héldum áfram. Að lokum töldum við okk- ur komna upp á hábunguna, en sáum þó aðeins örfáa metra frá okkur. Var nú haldinn fundur um næstu skref, enda vissum við af miklum klettum víða. Úr varð að ganga í engu skyggni í suð- vestur eftir kompásnum. Loks hallaði undan fæti. Er við kom- um niður úr snjókófinu blasti sæluhúsið á Eskifjarðarheiði við okkur í 300 m fjarlægð, þreytt- um og köldum eftir tíu klukku- stunda göngu. Komið var mikið frost og máttum við þakka fyrir að finna sæluhúsið. Við skriðum í kojurnar og sofnuðum fljótt. Á páskadagsmorgun vöknuð- um við í logni og glampandi sól. Fengum okkur að borða og drukkum úr síðustu pilsner- flöskunni. Ferðaútvarp var með í för til að hlýða á útsendingu frá tónleikum Pólyfónkórsins á ór- atoríunni Messias eftir Handel. Við skíðuðum létt ísi lagða Ey- vindará við þessa dásamlegu tónlist og komum til Egilsstaða um miðjan dag. Okkur var vel fagnað af tengdafjölskyldu minni á Eiðum. Eitthvað gerðist í þessari frækilegu för sem batt okkur sterkum vinaböndum. Við Guð- mundur áttum frábært sam- starf. Hann sá um bókhald fyrir mig og mín fyrirtæki alla tíð. Hann var fagmaður fram í fing- urgóma, nákvæmur og vand- virkur. Ekki er hægt að skilja við Guðmund án þess að minnast á golfið. Eftir að hann kynntist þeirri íþrótt varð ekki aftur snú- ið. Áttum við margar frábærar stundir saman í golfinu. Lengi verður í minnum höfð dásamleg tíu daga golfferð okkar Guð- mundar til Orlando í vor er við dvöldum í góðu yfirlæti á heimili Jónasar sonar hans. Guðmundur missti síðari eig- inkonu sína Kristínu Pálsdóttur fyrir tveimur árum. Saknaði hann hennar mjög. Þau undu sér vel saman á golfvellinum, en hún var í fremstu röð hér á landi á sínum yngri árum. Þegar við Ólöf kvöddum Guð- mund rétt fyrir golfferð til Spánar í haust var bjart yfir honum og hann fullur eftirvænt- ingar. Við kvöddumst með faðm- lagi og ætluðum að hittast strax er hann kæmi heim. Elsku vinur, farðu vel, takk fyrir allt. Við Ólöf sendum Jónasi, Magnúsi, systkinum Guðmund- ar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Örn Óskarsson. Kveðja frá Golf-Haukum Með Guðmundi Friðriki er genginn gegnheill og traustur félagi sem naut sín hvergi betur en í góðra vina hópi. Við félagar og vinir í Golf-Haukum nutum forystu hans og leiðsagnar, hvort heldur var innan eða utan vallar og þar fór foringi sem kunni vel til verka. Hann var skeleggur, ráðagóður, ákveðinn og fylginn sér, en umfram allt jákvæður, hvetjandi og gleði- gjafi á góðri stund. Guðmundur Friðrik var í for- ystusveit handknattleiksdeildar Hauka á áttunda áratug síðustu aldar þegar félagið var að vakna á ný til stórra afreka, bæði í meistaraflokkum karla og kvenna. Metnaður og framsýni Guðmundar skipti þar miklu. Hann sat í stjórn HSÍ, tók síðar við formennsku hjá Golfklúbbn- um Keili á miklum uppbygging- artímum og átti einnig sæti í stjórn Golfsambands Íslands um árabil. Guðmundur Friðrik lagði mikið upp úr því að halda góðum tengslum við félaga sína úr handknattleiksdeildinni og aðra forystumenn úr stjórnarstarfinu hjá Haukum. Hann hafði for- göngu um árlegt golfmót Hauka og stofnaði síðan fyrir rúmum áratug golfhópinn Golf-Hauka. Sú öfluga sveit var honum kær- kominn félagsskapur sem hann stýrði af miklum eldmóð. Það er ekki ofsögum sagt að Guðmundur Friðrik naut þess svo eftir var tekið að vera með Golf-Haukum og sínu nánasta fólki á golfvellinum. Hann var vinamargur, félagslyndur og vinsæll maður. Hann var fyrir- mynd hins háttvísa keppnis- manns, einbeittur en líka kapp- samur og vildi sjá árangur og framfarir hjá bæði sjálfum sér og sínum félögum. Nú er skarð fyrir skildi þegar foringinn er farinn. Kvaddi á grænum velli með kylfu í hendi. Fyrirvaralaust var ferðinni heit- ið á aðrar lendur þar sem hans bíða ástvinir og góðir félagar. Við sem stöndum eftir vitum að minning Guðmundar Friðriks í okkar hjörtum verður best heiðruð með því að halda merki Golf-Hauka áfram hátt á lofti. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu, vandamanna og vina. Blessuð sé minning Guðmundar Friðriks Sigurðssonar. Lúðvík Geirsson. Við Guðmundur Friðrik kynntumst ungir menn á ensku- námskeiði í Brighton sumarið 1964. Þar var góður hópur ung- menna frá Íslandi. Bítlarnir að verða frægir í heimalandinu og mikið að gerast. Maður segir helst ekki frá því að hafa látið tónleika með þeim í Brighton fram hjá sér fara, ekki tíu skild- inga virði. Við Guðmundur end- urnýjuðum kynnin sumarið 1967 en þá var hann orðinn aðalbók- ari hjá Flugfélagi Íslands í Kaupmannahöfn og ég almenn- ur sumarstarfsmaður. Hann leigði herbergi hjá íslenskum hjónum og ég var svo heppinn að fá þar leigt herbergi líka. Sam- skipti okkar þetta sumar voru því náin bæði í vinnu og frítíma. Í lok sumars stóð starfsmönnum flugfélaga til boða að fara í ferð- ir og við vorum þrjú hjá Flug- félaginu, sem ákváðum að skella okkur í vikuferð til Beirut í Líb- anon. Þetta var nokkrum mán- uðum eftir sex daga stríðið svo- nefnda og ferðamenn fáir á ferli. Við bjuggum þarna við strönd- ina en vorum einnig dugleg að skoða okkur um. Á aðaltorginu kom auga á okkur teppasali nokkur, sem fór með okkur í verslun sína og síðar á tollsvæði við höfnina. Þar voru teppi frá Íran dregin fram fyrir okkur í tugatali. Eftir töluvert andóf vorum við Guðmundur farnir að trúa því að okkur vantaði teppi og keyptum sitt teppið hvor á það góðum kjörum að mati teppasalans að hann taldi sig eiga rétt á að fá íslensku konuna, svona í sölulaun. En það varð nú ekki. Eftir þetta sumar urðum við vinir til hinstu stundar. Guðmundur var mikið snyrti- menni og alltaf vel klæddur svo eftir var tekið. Hann keypti helst ekki skyrtu nema hún hefði eitthvað alveg sérstakt við sig. Hann var mjög sterkur fé- lagslega enda léttlyndur og já- kvæður og átti auðvelt með hin mannlegu samskipti. Þessir eig- inleikar leiddu hann til forystu í stórum félagasamtökum. Fyrir mig sá hann um bókhald og framtöl árum saman. Á góðri stundu kom fyrir að við tækjum lagið. Ég man hvað hann var hrifinn af laginu við texta Davíðs Stefánssonar, Þú komst í hlaðið á hvítum hesti. Þar segir einnig: Ég heyri álengdar hófadyninn, ég horfi langt á eftir þér, og bjart er allt- af um besta vininn og blítt er nafn hans á vörum mér. Síðast- liðið vor hittumst við á tónleik- um Bocelli í Kópavogi. Eins og jafnan tók hann þétt utan um vini sína. Það varð honum mikið áfall að missa Kristínu og voru síðustu misserin honum erfið. Hann hafði þó mikinn stuðning frá vinum og sínum nánustu. Og golfið var honum alltaf dýrmætt. Far vel vinur. Innilegar samúð- arkveðjur sendi ég sonum, barnabörnum, systkinum og öðrum vandamönnum. Gestur Þorgeirsson. Fréttin að Guðmundur Frið- rik skólabróðir okkar og vinur hefði orðið bráðkvaddur í fríi á Spáni kom illa við okkur vini og skólabræður hans. Hann sem var svo vel á sig kominn og glað- ur að fara með vinum sínum í golf til Spánar. Hann er fimmti félaginn úr þessum litla vinahópi sem kveður þessa jarðvist. Við vorum 16 skólabræður úr Versl- unarskólanum sem höfðum bundist góðum vinaböndum og fórum að hittast reglulega. Síð- an þá höfum við hist einu sinni í mánuði yfir vetrartímann og gerum enn. Við tókum upp á því að kalla þennan vinahóp „Versló ’66“. Þegar árin liðu fór stór hluti hópsins að leika golf sam- an, fara í ferðalög innanlands og utan ásamt mökum okkar og þar þróaðist einnig góð vinátta. Eft- ir því sem árin liðu jókst með hópnum einlægni og kærleikur og alltaf var Guðmundur samur við sig eða hrókur alls fagnaðar. Guðmundur Friðrik eins og hann vildi alltaf láta kalla sig var félagsmálamaður í þá veru að hann hafði mikinn áhuga á íþróttum, einkanlega handbolta þar sem hann var mikill Hauka- maður og var um árabil for- maður handknattleiksdeildar Hauka. Golfið var samt hans að- aláhugamál þegar árin liðu. Hann var m.a. formaður Golf- klúbbsins Keilis um tíma. Þá sátum við þrír félagarnir úr hópnum saman í stjórn Golfsam- bands íslands, þeir Jón Ásgeir forseti GSÍ, Eggert Ágúst gjald- keri og Guðmundur Friðrik for- maður mótanefndar en hann hafði mikla þekkingu á golf- íþróttinni og mótahaldi. Okkur eru minnisstæðar ferðir til út- landa, til Tyrklands, Danmerk- ur, Englands, Skotlands, Lúx- emborgar og Ítalíu, að ógleymdri siglingu um Miðjarð- arhafið fyrir nokkrum árum. Guðmundur Friðrik giftist ungur Bryndísi Torfadóttur en þau slitu síðan samvistir. Hann kvæntist síðar Kristínu Páls- dóttur, fyrrverandi Íslands- meistara í golfi, og var golfið þeirra sameiginlega áhugamál. Hann eignaðist tvo syni, þá Jón- as Hagan og Magnús Friðrik. Við félagarnir munum sakna hans mikið eins og er með þá fé- laga okkar sem horfnir eru á braut. Við höfum nú misst góðan félaga og samferðamann sem alltaf var einlægur og hreinskil- inn og hafði góða kímnigáfu. Við þökkum honum vináttu og sam- fylgd í 60 ár. Við sendum fjöl- skyldu Guðmundar Friðriks okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd félaga úr Versló ’66, Eggert Ágúst Sverrisson, Jón Ásgeir Eyjólfsson. Á þessu hausti voru liðin sex- tíu ár frá því að rúmlega hundr- að unglingar gengu upp tröpp- urnar í gamla skólahúsi Verslunarskóla Íslands við Grundarstíg til að hefja þar framhaldsnám. Þarna skipaðist saman í bekki ungt fólk úr öllum áttum og ólíkrar gerðar, einhverjir með markmið fyrir lífshlaupið en fleiri þó óráðnir og leitandi. Í þessum skara var Guðmundur Friðrik Sigurðsson. Í þröngu anddyrinu gamla skólahússins hékk skólabjallan og innrömmuð áminningin úr Hávamálum um að vits er þörf þeim er víða ratar. Þessi dagur er enn minnis- stæður. Hann markaði á svo margan hátt nýtt upphaf og líka upphaf nýrra vinabanda. Margir reyndu að ná sæti sem aftast í skólastofunni. Guðmund- ur Friðrik vakti hins vegar at- hygli mína af því að hann gekk rakleitt að borðinu framan við kennarapúltið. Guðmundur var gæddur góð- um námshæfileikum og náði góðum árangri í náminu. En ástæðan fyrir því að hann kaus fremsta sætið var skert heyrn hans fremur en kapp um fremsta sætið í einkunnaröðinni. Þennan dag hófust kynni okk- ar. Þó að annar sæti aftast og hinn fremst þennan fyrsta vetur í skólanum var þarna sáð til þess sem síðar varð að traustri vin- áttu. Við vorum sextán skólabræð- ur úr þessum árgangi, sem hóf- um að koma saman aftur þegar nokkuð var liðið frá námslokum. Þannig höfum við um langan tíma haldið hópinn í félagsskap, hist reglulega, borðað saman, ferðast saman og spilað golf saman heima og erlendis. Af vísi þeirra kynna, sem stofnað var til þennan haustdag fyrir sextíu árum, hefur sem sagt vaxið sterkur stofn bræðra- lags og fjölskyldutengsla. Vin- áttan hefur orðið okkur því meira virði sem hún hefur staðið lengur. Guðmundur Friðrik var jafn- an hrókur alls fagnaðar í þessum hópi. En umfram allt hafði hann næma tilfinningu fyrir þeim böndum um vinarþel og trúnað, sem haldið hafa hópnum saman. Nú hefur Guðmundur Friðrik kvatt skjótt og óvænt. Við stönd- um andspænis köldu tómi. Það verður aðeins fyllt með þeirri hlýju velvild og þeim góðu minn- ingum, sem hann skilur eftir í okkar litla félagsskap. Guðmundur Friðrik var um árabil einn af forystumönnum golfíþróttarinnar á Íslandi. Hann steig svo síðustu skrefin á golfvelli. Örlög hans voru þau að hníga á efsta degi til þeirrar moldar, sem hann unni. Á kveðjustund, þegar Guð- mundur Friðrik er borinn síð- asta spölinn, deila margir sam- ferðamenn eftirsjá með fjölskyldu hans, sem syrgir mik- inn dánumann. Þorsteinn Pálsson. Kveðja frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar Í dag kveðjum við góðan fé- laga í Rótarýklúbbi Hafnar- fjarðar. Guðmundur Friðrik var félagi í klúbbnum okkar allt frá 29. nóvember 1979 en hann gekk fyrst í Rótarýhreyfinguna ári áður og þá í Rótarýklúbb Húsa- víkur. Guðmundur var mjög öfl- ugur í Rótarý og gegndi hann mörgum störfum fyrir klúbbinn þau ár sem hann var félagi. Hann var forseti starfsárið 1998-1999 og gegndi áður störf- um ritara og gjaldkera. Í for- setatíð Guðmundar Friðriks var m.a. farið í minnisstæða ferð til Færeyja í maí 1999 og er sú ferð alloft rifjuð upp af félögum. Guð- mundur Friðrik var formaður golfnefndar klúbbsins í fjölmörg ár og sat í golfnefnd umdæm- isins og kom þannig að skipu- lagningu golfmóta Rótarýklúbb- anna á Íslandi. Átti það vel við enda var hann mikill golfari og voru þau Kristín Pálsdóttir, eig- inkona hans heitin, afar sigursæl á golfmótum og unnu til margra verðlauna. Þau hjón tóku fyrst félaga þátt í Norðurlandamóti Rótarý í golfi sem haldið var í Svíþjóð árið 1997. Kristín hlaut þá verðlaun fyrir besta skor í hópi maka. Þá var Guðmundur Friðrik annar af tveimur endur- skoðendum fyrir klúbbinn til margra ára. Guðmundur Friðrik var sæmdur Paul Harris-orðu Rót- arý árið 2001 og síðar safír Paul Harris í virðingarskyni fyrir ómetanleg störf í þágu klúbbs- ins. Þá var hann gerður að heið- ursfélaga á 75 ára afmælishátíð klúbbsins 16. október 2021. Guðmundur Friðrik var góður félagi sem sinnti starfinu af heil- um hug og var mjög virkur. Hann var einstaklega góður og skemmtilegur félagi sem alltaf tók virkan þátt í samræðum. Hann var sterkur og eftirminni- legur persónuleiki sem alltaf var hreinn og beinn og sagði það sem honum bjó í brjósti. Hann var góður maður sem vildi öllum vel og minning um góðan Rót- arýfélaga mun lifa í hjörtum okkar allra. Við sendum innilegar samúð- arkveðjur til fjölskyldu og að- standenda hans. Kolbrún Benediktsdóttir, forseti Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.