Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Færeyjum, og lofaði hann að Jónas fengi að fylgjast með framvindu málsins. Færeyingarnir létu vita áður en þeir héldu til Íslands til að skoða að- stæður á Reyðarfirði og Seyðisfirði og ræða við forráðamenn bæjar- félaganna. Til stóð að byrja á Seyð- isfirði. Ófært var yfir Fjarðarheiði og fór Jónas með snjóbíl fullum af fólki sem ætlaði með sömu flugvél og Færeyingarnir komu með. Snjó- bíllinn bilaði á heiðinni, fór út af öðru beltinu. Jónas segist hafa verið óþolinmóður og margspurt bílstjór- ann hvað það tæki langan tíma að gera við. Hann segist muna það eins og gerst hafi í gær þegar bílstjórinn opnaði verkfærakistuna, leit niður á bringu sér og sagði: Hér hverfur allt nema Snjólfur. Hinn bílstjórinn hafði sem sagt tekið tjakkinn og önnur áhöld sem þurfti til að koma beltinu aftur á bílinn. Mikil töf var fram undan á meðan beðið væri eftir öðrum bíl. Jónas tók hins vegar það ráð að ná í bílstjóra á Héraði í gegn- um talstöð snjóbílsins og fá hann til að sækja sig. Hann hljóp niður fjall- ið til móts við bílinn. Flugvélin var lent og þegar þeir komu að vegamót- um Reyðarfjarðarvegar sáu þeir kaupfélagsstjórabílinn bruna fram hjá, fullan af fólki. Þá vissi hann að Færeyingarnir hefðu gefist upp á að bíða eftir honum og þegið boð Þor- steins Sveinssonar kaupfélagsstjóra um að skoða sig fyrst um á Reyð- arfirði. Jónas notaði kvöldið til að und- irbúa daginn eftir vel og það skilaði sér. Hann treysti ekki á snjóbílinn og fékk læknabílinn til að fara með sig og færeysku sendinefndina yfir Fjarðarheiði. „Svo gerðist það skemmtilega sem sló Reyðfirðingum alveg við. Þegar við komum á fjalls- brúnina Seyðisfjarðarmegin flaug þyrla upp fyrir framan bílinn. Jón heitinn Heiðberg selflutti okkur nið- ur. Það var blankalogn og ekki ský- hnoðri á lofti og Seyðisfjörður eins og hann getur fallegastur orðið. Jón flaug með farþegana út á fjörðinn og við sýndum þeim allt það sem við höfðum undirbúið til að taka á móti skipinu, ef af yrði. Þetta var ævin- týri líkast,“ segir Jónas. Jónas fór með færeysku sendi- nefndina um bæinn og sýndi þeim möguleika á móttöku sjúklinga, fé- lagsaðstöðu og gömlu húsin. Síðan var haldin heljarins veisla í veitinga- húsinu Öldunni þar sem vel var veitt. Samið hafði verið við Jón Heiðberg um að fljúga með gestina til baka og fara þá inn á Hallorms- stað og sýna þeim Héraðið. „Ég heyrði svo ekkert í þeim í mánuð eða svo og ég varð vondaufur því það þurfti að undirbúa ýmislegt til að taka á móti skipinu. En ég hafði þetta. Thomas hringdi og sagði: Þá var það Seyðisfjörður, gamli.“ Strandferðaskip landsins keyptu notaða ferju sem fékk nafnið Smyrill og það kom í fyrsta sinn til landsins í júní 1975. Margir tollverðir fóru til að toll- afgreiða Smyril úti í Selstaðavík og áttu sumir þeirra í erfiðleikum með að komast upp kaðalstigann um borð. „Það veittist okkur Þorvaldi Jóhannssyni, formanni hafn- arnefndar Seyðisfjarðar, hins vegar létt verk enda ungir og sprækir Sigl- firðingar. Smyrill sigldi svo til hafn- ar fánum skrýddur. Einhvern veg- inn fékkst leyfi til að opna skipið fyrir gestum og gangandi. Öll börn fengu Mackintosh-sælgæti og súkkulaði. Við Þorvaldur og Theo- dór Blöndal, sem manna mest höfð- um unnið að undirbúningi málsins, og fleiri ónefndir gæddum okkur hins vegar á einhverjum drykk sem kallaðist Cuba libre og reyndist gör- óttur í meira lagi og því áttu ein- hverjir erfitt með að fóta sig niður landganginn að veisluhöldum af- stöðnum,“ segir Jónas. Tvær Norrænur tóku við Fyrst var aðeins siglt á sumrin. Eftir deilur í Færeyjum um þennan þátt í rekstri ríkisfélagsins var stofnað almenningshlutafélagið Smyril line um millilandasigling- arnar á árinu 1983 og hafði Óla Hammer framkvæmdastjóri félags- ins forgöngu um það. Landsstjórn Færeyja tók þátt í því ásamt Aust- fari og fleirum en Austfar annaðist afgreiðslu ferjunnar. Jónas beitti sér fyrir stofnun Austfars og yfirgaf stól bæjarstjóra 1984, eftir tíu ára starf, til að annast reksturinn. Sama ár var keypt bílferja, Norræna, og hafnar vikulegar siglingar yfir sum- armánuðina milli Íslands, Færeyja og meginlands Evrópu. Nýtt glæsi- legt skip tók við keflinu á árinu 2003 og þá var farið að sigla allt árið. Þurfti að auka hlutaféð til að gera drauminn að veruleika. Jónas bauð hlutabréf í Smyril line til sölu með loforði um að innleysa þau þegar „Þá var það Seyðisfjörður, gamli“ - Jónas Hallgrímsson og félagar skutu Reyðfirðingum ref fyrir rass og fengu Færeyinga til að gera Seyðisfjörð að Íslandshöfn ferjunnar - Gerðist baráttumaður fyrir jarðgöngum eftir fyrstu ferðina til Færeyja og segir að stjórnvöld verði að standa við jarðgöng til Seyðisfjarðar og heilsársveg um Öxi Morgunblaðið/Hákon Ánægja Ágústa Inga Pétursdóttir og Jónas Hallgrímsson una hag sínum vel á Úlfsstöðum á Völlum en hafa einnig afdrep í höfuðborginni. VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fallegur vetrardagur og landslagið í Seyðisfirði sem fulltrúar Færeyinga fengu að skoða úr þyrlu og dýrleg veisla bæjarstjórnarinnar réðu úr- slitum um það að Færeyingar völdu Seyðisfjörð sem Íslandshöfn sína þegar áætlunarsiglingar hófust á árinu 1975, að sögn Jónasar Hall- grímssonar sem þá var bæjarstjóri og síðar umboðsmaður farþegaferj- unnar á Seyðisfirði. En baráttan var hörð því Reyðfirðingar með öflugum stuðningi Kaupfélags Héraðsbúa sóttust einnig eftir að fá Smyril line í viðskipti. Jónas Hallgrímsson hætti fyrir nokkrum árum afskiptum af af- greiðslu Norrænu. Hann var um tíma stór hluthafi í Smyril line og formaður stjórnar og tók þátt í margra ára lífróðri fyrirtækisins eft- ir að það varð fyrir alvarlegum áföll- um. Fyrirtækið var þá skuldugt vegna smíði Norrænu og varð að leigja skip á meðan gert var við ferj- una. Hann segir að sú barátta hafi gengið nærri þeim mönnum sem stóðu í stafni en samstaðan hafi skil- að þeim í höfn. Heilluðu sendinefndina Aðdragandinn að ákvörðun fær- eysku útgerðarinnar að velja Seyð- isfjörð sem áfangastað á Íslandi var sögulegur. Jónas, sem þá var nýlega tekinn við sem bæjarstjóri á Seyðis- firði, fékk haustið 1974 á laun upp- lýsingar um að Færeyingar væru að íhuga að sigla á einhverja höfn á Austurlandi. Hann bað Jóhönnu Jó- hannesson, færeyska konu sem bú- sett var á Seyðisfirði, að vera sér innan handar um upplýsingar og reyndist það honum vel. Komst hann í samband við Thomas Arabo, síðar þingmann, sem þá var nýtek- inn við Strandferðaskipum landsins í Sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Brynja mun áfram vera á brynja.is Brynja kveður Laugaveginn Við þökkum viðskiptavinum okkar nær og fjær viðskiptin síðustu 103 árin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.