Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 34
34 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hið fræga aflaskip Gullborg RE var
málað í sumar og er nú eins og nýtt.
Skipið var farið að láta verulega á
sjá, málning flögnuð og ryðblettir
sáust víða. Því var kominn tími til að
flikka upp á skipið.
Gullborgin setur mikinn svip á
Gömlu höfnina, þar sem hún stendur
við Sjóminjasafnið í Vesturbugtinni.
Faxaflóahafnir sf. eignuðust skipið
2008 og var það tekið upp í Daníels-
slipp í Reykjavík þar sem það var
teiknað inn í deiliskipulag svæðisins.
Rekstri Daníelsslipps var hætt árið
2006 og hann rifinn.
Á heimasíðu Faxaflóahafna má
lesa að Gullborgin er eikarskip,
smíðað árið 1946 í Nyborg Skibs-
værft, Danmörku, og er 94 tonn að
stærð. Hún var endurbyggð í Báta-
lóni, Hafnarfirði, 1967 og fékk þá
meðal annars nýtt stýrishús.
Vestmannaeyingarnir Binni í Gröf
skipstjóri og Einar Sigurðsson út-
gerðarmaður, kallaður ríki, keyptu
Gullborgina 1955. Binni var síðan
með skipið á árunum 1955 til 1972.
Sonur Binna, Friðrik, sótti sjóinn
með föður sínum og tók síðan við
skipinu og var með það til 2000.
Ævintýralegt fiskirí
„Ási í Bæ söng um Binna í Gröf og
sagði hann hafa fiskað 60.000 tonn
úr sjó á Gullborginni. Ætla má að
Friðrik hafi fiskað svipað, þannig að
Gullborgin hefur skilað í kringum
100.000 tonnum á land undir stjórn
þeirra feðga. Þó eru þetta ekki ná-
kvæmar tölur,“ segir í samantekt
Faxaflóahafna.
Benóný Friðriksson (1904-1972),
betur þekktur sem Binni í Gröf, var
landsfrægur aflaskipstjóri á síðustu
öld. Hann fæddist í Vestmanna-
eyjum og var kenndur við húsið sem
hann ólst upp í, Gröf.
Binni hóf að sækja sjóinn aðeins
12 ára gamall. Hann var með af-
brigðum góður sjó- og aflamaður,
einhver sá mesti sem fiskað hefur
við Vestmannaeyjar. Binni reri
fyrstu vertíðir sínar með vélbátnum
m/b Nansen. Á árunum 1926-54 var
hann skipstjóri á ýmsum bátum.
Eftir það keypti hann m/b Gullborg
og varð landsþekktur fyrir for-
mennsku sína.
Binni varð aflakóngur í Vest-
mannaeyjum árið 1954 og hélt þeim
titli samfellt í sex vertíðir. Hann
fékk aflakóngstitilinn oft til viðbótar
síðar á ævinni. Nokkrum sinnum
varð hann hæstur yfir landið á vetr-
arvertíðum. Á þessum árum fylgdist
öll þjóðin með fréttum af aflabrögð-
um og aflaklær urðu þjóðhetjur.
Binni hafði ávallt úrvalsmenn í
skipshöfn enda margir sem sóttust
eftir plássi hjá honum. Hann var
sæmdur hinni íslensku fálkaorðu af
forseta Íslands árið 1971.
Eiginkona Binna var Sigríður
Katrín Sigurðardóttir og áttu þau
átta börn. Binni féll í höfnina í Vest-
mannaeyjum á leið í bátinn sinn og
lést rúmri viku síðar á sjúkrahúsi
Vestmannaeyja, hinn 12. maí 1972.
Gullborgin komin „í sparifötin“
- Eitt frægasta
aflaskip sögunnar er
geymt við Gömlu
höfnina í Reykjavík
Morgunblaðið/sisi
Gamla höfnin Búið er að mála Gullborgina og er hún nú hin glæsilegasta þar sem hún stendur við Sjóminjasafnið í Vesturbugt við Gömlu höfnina.
Binni í Gröf Aflaskipstjórinn mikli horfir út um brúarglugga Gullborgar.
Mest selda LIÐBÆTIEFNI á Íslandi
Vantar þig öflugan
LIÐSTYRK?
Styrkur frá sjóðnum Alcoa Found-
ation, til að efla ungmenni, var ný-
verið afhentur af fulltrúa Alcoa-
Fjarðaáls til Fjarðabyggðar og
Múlaþings. Verkefni vegna styrks-
ins hafa staðið yfir frá árinu 2020
en alls er um að ræða 150 þúsund
dollara eða um 21 milljón íslenskra
króna sem nýtt hefur verið til að
standa fyrir sjálfstyrkjandi verk-
efnum fyrir ungmenni í sveit-
arfélögum.
Styrkurinn var veittur til tveggja
ára en vegna Covid-19 frestuðust
sum verkefnanna og verður því hald-
ið áfram að ljúka þeim á næsta ári.
Sjóður Alcoa hefur áður veitt
styrki til sveitarfélaganna vegna
skólamála. Grunnhugmynd verkefn-
isins nú er að ná til ungmenna á
aldrinum 13-16 ára á Austurlandi
með það að leiðarljósi að efla and-
lega líðan, sjálfsmynd og sjálfs-
öryggi. Þáttur í verkefninu eru
margvíslegar smiðjur og námskeið
fyrir ungmenni, kennara og leið-
beinendur félagsmiðstöðva á svæð-
unum.
Austurland Fulltrúar sveitarfélaga taka við styrk Alcoa Foundation.
Alcoa styrkir ung-
menni í heimabyggð
- Alls 21 milljón undanfarin tvö ár