Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 36

Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Saltver ehf. í Reykjanesbæ hefur fest kaup á línu- og netabátnum Mars RE-270 sem hefur verið í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. Í fundargerð borgarráðs Reykjavík- urborgar kemur fram að kaupverðið sé 70 milljónir króna og að viðskipt- unum fylgi engar aflaheimildir. „Nú fer Mars í smá yfirhalningu. Það er verið að koma honum í gegn- um allar skoðanir sem hann á eftir að fara í gegnum og svo á hann eftir að fara upp í Njarðvíkurslipp í breytingar til að gera hann að al- vörunetabát. Þessi Mars verður svo nýr Erling,“ segir Guðmundur Jens Guðmundsson útgerðarstjóri hjá Saltveri ehf. Nokkrar breytingar hafa orðið á skipakosti félagsins á þessu ári en sú vegferð hófst þegar eldur kviknaði um borð í Erlingi KE á fyrstu dög- um þessa árs þegar skipið lá bundið við bryggju í Njarðvíkurhöfn. Ljóst var að skipið, sem smíðað var 1964, var ónýtt og var á endanum sent til Belgíu í brotajárn. Í janúar keypti Saltver línu- og netabátinn Langa- nes GK af Maron ehf. í Njarðvík og fékk skipið nafnið Erling eins og fyr- irrennarinn. „Langanesið var bara redding eft- ir að Erling brann. Þetta var bara til að klára eina vertíð,“ segir Guð- mundur. Langanesið var smíðað 1974 og því tíu árum yngra en skipið sem brann, en þó komið til ára sinna. „Langanesið er fínasti bátur en okk- ur fannst betri kostur að yngja upp en að fara að gera upp eldri bát og Útgerðarfélag Reykjavíkur var tilbúið að selja þennan [Mars].“ 300 tonna niðurskurður Guðmundur segir ætlunina með nýjum Erlingi (Mars) að gera meira út á ufsa, en gera má ráð fyrir að þörf verði á að leigja einhverjar heimildir í þorski. „Það hefur verið niðurskurður í þorski hjá okkur eins og öllum öðrum. Kvótinn hjá okkur hefur rýrnað um einhver 300 tonn síðastliðin þrjú ár og það er ekkert útlit fyrir að það eigi að auka kvót- ann. Með þessum kaupum er hugs- unin að lengja vertíðina,“ útskýrir hann. Mars, sem áður bar nafnið Sól- borg RE-27 og mun brátt fá nafnið Erling, var smíðaður hjá Kar- stensens Skibsværft í Skagen í Dan- mörku árið 1988 og er því töluvert yngra skip. Verðandi Erling (Mars) er 29 metrar að lengd og mælist 465 brúttótonn en gamli Erling var 366 brúttótonn og 40 metrar að lengd. Langanesið (núverandi Erling) er 255 brúttótonn og lengdin 35,3 metr- ar. Saltver festir kaup á Mars - Línu- og netabáturinn Mars RE verður brátt nýr Erling KE - Kemur í stað Langanessins - Gert meira út á ufsa Morgunblaðið/sisi Netabátur Mars RE-270 hefur verið seldur Saltveri og verður nýr Erling KE. Skipið er 24 árum yngra en núverandi Erling sem hét Langanes GK. „Allt var svart og á kafi í sóti.“ Þannig lýsti Halldór Guðjón Halldórsson, skipstjóri á Erling KE, aðkomunni 2. janúar síðastliðinn í samtali við Morgunblaðið fyrr á árinu. Eldur hafði kviknað þegar skipið lá við bryggju í Njarðvíkurhöfn. „Brunatjón varð einkum í setustofu framan við borðsal- inn, en sót var um allt; í íbúðum og uppi í brú,“ sagði Halldór. Rannsóknarnefnd samgönguslysa taldi í skýrslu sinni að upptök elds- ins hefðu verið í eða við hleðslu AIS-staðsetningarbúnaðar í afturhorni setustofu. Búnaðurinn var tengdur í tvö fjöltengi með slökkvirofum. Tíu hleðslustæði fyrir tækin voru undir borðinu og staðsetningartæki voru í þeim öllum en ekki lá fyrir hvað mörg þeirra voru í sambandi. Út frá hleðslutæki BRUNI UM BORÐGunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Samgöngustofa og Rannsókn- arnefnd samgönguslysa (RNSA) kynntu nýtt miðlægt skráningarkerfi sjóslysa „ATVIK – sjómenn“ á blaða- mannafundi í Sæbjörg, skólaskipi Slysavarnaskóla sjómanna, í gær. Kerfið gerir útgerðum kleift að til- kynna slys og atvik tengd sjómönn- um rafrænt og auðveldar útgerðum að uppfylla lagalega tilkynning- arskyldu sína en auk þeirra geta sjó- menn sjálfir, bæði yfir- og undir- menn, skráð slys og næstum því slys á sjó. Voru á blaðamannafundinum sýnd dæmi um atvik þar sem litlu má muna að verði slys og vakin athygli á að atvikaskráningar hafa verið bundnar við meiðsl á fólki. Þá var bent á mikilvægi þess að skrá atvik þar sem nærri því verða slys á fólki því það hjálpi til við að koma í veg fyrir að atvik af þeim toga endurtaki sig, en vel á annað hundrað slys verða á fólki á sjó á hverju ári. Grundvöllur færri slysa Skráningarnar hafa jafnframt ver- ið hjá þremur aðilum – RNSA, lög- reglu og Sjúkratryggingum Íslands – en með tilkomu „ATVIK – sjómenn“ verður öll skráning nú miðlæg hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Kerfið hefur verið gert aðgengilegt öllum útgerðum landsins og veitir yf- irsýn yfir atvik, hættur og slys um borð í skipum. Þá verður með miðlægri skrán- ingu til heildstæður gagnagrunnur með mikilvægum upplýsingum um atvik, hættur og slys til sjós sem hægt verður að nýta í gagnadrifið forvarnastarf. Bundnar eru vonir við að kerfið verði til þess að slysum fækki á sjó. Nokkur saga er á bak við kerfið en tryggingarfélagið VÍS bjó til og þró- aði kerfið 2017 og veitti RNSA að gjöf. Frá þeim tíma hefur kerfið ver- ið lagað að kerfum RNSA með stuðn- ingi Siglingaráðs og innviða- ráðuneytisins. Samgöngustofa mun sjá um notendaþjónustu þess. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sæbjörg Frá blaðamannafundinum um borð í Sæbjörg í gær þegar nýja miðlæga skráningarkerfið var kynnt fyrir fulltrúum notenda. Kynntu miðlægan gagnagrunn - Öll atvik á sjó verði skráð hjá RNSA Afurðaverð á markaði 2. nóvember,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 392,62 Þorskur, slægður 474,87 Ýsa, óslægð 359,79 Ýsa, slægð 329,82 Ufsi, óslægður 211,18 Ufsi, slægður 229,45 Gullkarfi 318,59 Blálanga, slægð 141,00 Langa, óslægð 350,91 Langa, slægð 353,42 Keila, óslægð 142,94 Steinbítur, óslægður 186,27 Steinbítur, slægður 493,81 Skötuselur, slægður 537,21 Grálúða, slægð 275,22 Skarkoli, óslægður 12,00 Skarkoli, slægður 567,89 Þykkvalúra, slægð 641,45 Langlúra, óslægð 276,00 Sandkoli, óslægður 174,76 Skrápflúra, óslægð 12,00 Gellur 1.233,67 Hlýri, óslægður 339,89 Hlýri, slægður 414,62 Lúða, slægð 460,74 Lýsa, óslægð 63,67 Lýsa, slægð 17,00 Sandhverfa, slægð 1.398,00 Skata, óslægð 33,00 Skata, slægð 64,15 Tindaskata, óslægð 14,61 Undirmálsýsa, óslægð 42,74 Undirmálsýsa, slægð 68,83 Undirmálsþorskur, óslægður 234,39 Undirmálsþorskur, slægður 266,80

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.