Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 45
UMRÆÐAN
45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022
Biblían er mögnuð
bók og þar kemur fyrir
setningin „komið eig-
umst lög við“ til að eiga
samræður, samtal milli
Guðs og manna. Það
merkilega er að fram-
setning efnis Biblíunn-
ar er einmitt á lög-
fræðilegum grunni.
Við erum meðvituð
um að lög og reglur er
alls staðar að finna og
jafnhliða því birtist líka
„meðfæddur eiginleiki“ manna að
brjóta lögin. Ekki er látið þar við
sitja því lögbrjótarnir eru sóttir til
saka. Þá er reynt að sanna sökina út
frá orðum og gerðum og þrátt fyrir
hinn „meðfædda eiginleika“ að
brjóta lögin er ávallt reynt að setja
okkur nákvæm og skýr lagaboð.
Breytir þá litlu hvernig einstakling-
urinn bregst við. Við notum lögreglu
og dómstóla til að koma skikki á
„meðfæddan eiginleika“ mannsins!
Lögfræðingurinn Jón Sigur-
geirsson færði fram sína lögfræði-
legu ályktun í Morgunblaðinu 18.
október um meðferð mína á bibl-
íutextum og orðum Jesú Krists.
Auðvitað eru menn eins og ég oft
settir í flokk farísea og hræsnara.
En látum vera þó að aðrir hafi nei-
kvæða skoðun á mér, tökumst frekar
á málefnalega þó svo að „fræði-
mennska“ mín sé álitin lítilsigld.
Að „eigast lög við“ er niðurlag á
stuttri orðræðu Guðs við spámann-
inn Jesaja. Guð segir: „Takið illsku-
breytni yðar í burt frá augum mín-
um. Látið af að gjöra illt, lærið gott
að gjöra!“ (Jes. 1:16.) Átjánda versið
er einmitt: „Komið eigumst lög við!“
Það sem haft er eftir Jesú er ritað
nokkrum árum eftir burtför hans af
jörðinni og því freist-
andi að efast um orð-
rétta framsetningu. En
þegar mönnum ber
saman, og það fleiri en
tveimur, þá liggur fyrir
„rökstuddur grunur“
um sannleiksgildi
orðanna og þegar orð-
ræðan er höfð innan
gæsalappa („“) er
næsta víst að orðrétt er
haft eftir. Reyndar not-
ast grískan ekki við
greinarmerki eins og
gæsalappir, það eru
tákn sem koma ekki inn í ritmálið
fyrr en um og eftir 1350 e.kr.
En textinn sem ég vísaði í (sjá
grein í Mbl. 4. okt. sl.) og tel orðrétt
hafðan eftir Jesú Kristi fjallar ein-
mitt um það sem er „meðfæddur eig-
inleiki“ og býr í hjarta mannsins eins
og Jesús Kristur teflir fram.
Jón Sigurgeirsson lögfræðingur
og Jesús Kristur spila í sama dúr.
Þarna er ekki ágreiningur þeirra í
millum. Annar segir „hjarta“ en Jón
talar um „meðfæddan eiginleika“!
Þá kemur hitt sem Jón gerir
ágreining um og það er orð Páls
postula sem birtist í íslenska orðinu
„saurlifnaður“! Hvaða merking ligg-
ur í skilningi íslenskumælandi
manna á orðinu „saurlifnaður“? Ég
gæti trúað að menn vildu gjarnan
grípa til orðabókar til að fá úr því
skorið hver raunveruleg merking
þessa orðs er. Í Orðabók Menning-
arsjóðs frá 1963 er þessi skýring:
„fúllífi, ólifnaður, lausung“. Þessar
merkingar voru notaðar til að þýða
úr grísku orðið „pornea“. Oddur
Gottskálksson valdi „frillulífi“ í Nýja
testamentinu árið 1540. Hinn „með-
fæddi eiginleiki“ er þá augljós sam-
kvæmt orðanna hljóðan. Því er það
óumdeilanlegt að Jesús notaði í sín-
um málflutningi orð sem mæla gegn
„samkynhneigð, lauslæti, frillulífi og
saurlifnaði“. „Samkynhneigð“ er ný-
yrði í íslensku og var auðvitað ekki
tiltækt 1540.
Páll postuli tjáði sig um þessi mál,
kominn í grískan menningarheim,
líklega upp úr 54 e.kr. sem er talinn
ritunartími Korintubréfanna. Þar
segir Páll – sem samdi óðinn til kær-
leikans – í fyrra bréfinu kafla 6 og
vers 9: Vitið þér ekki að ranglátir
munu ekki Guðs ríki erfa! Villist
ekki! Hvorki munu saurlífismenn …
(svo kemur upptalning lasta sem ég
hvet Jón Sigurgeirsson og aðra til að
kynna sér svo ganga megi úr skugga
um hvor fer með rangt mál og hvor
okkar er lögfræðingur og farísei).
Að lokum er vert að benda á orð
Péturs postula. Hann segir: „Verið
eins og hlýðin börn og látið eigi
framar lifnað yðar mótast af þeim
girndum (n.b. meðfæddir eig-
inleikar) er þér áður létuð stjórnast
af í vanvisku yðar,“ og: „Hann
brenndi borgirnar Sódómu og Gó-
morru til ösku og dæmdi þær til eyð-
ingar og setti þær til viðvörunar
þeim er síðar lifðu óguðlega.“ Þessa
prédikun heyrði hann líka frá frels-
aranum Jesú Kristi sbr. Matt. 11:23.
Ekki verður annað séð en að Jesús,
Mattheus, Pétur og Páll séu allir á
sömu nótum. Þar ætla ég að halda
mig þó svo að það hljómi illa í sam-
tímanum, hann er ekki eilífur.
Meðfæddur eiginleiki!
Snorri Óskarsson » Við notum lögreglu
og dómstóla til að
koma skikki á „með-
fæddan eiginleika“
mannsins!
Snorri
Óskarsson
Höfundur er fyrrverandi
safnaðarhirðir og kennari.
Stríðið í Úkraínu er
tapað. Það er tapað
eins og önnur stríð sem
háð hafa verið, sama
hvernig það fer.
Hvorki lönd né þjóðir
verða unnin með hern-
aði, ekki fremur að
friðsamlegu og öruggu
þjóskipulagi verði
komið á með vopna-
valdi.
Það er bara til einn
varanlegur sigur og hann verður
ekki unninn með hernaði. Hann verð-
ur einungis unninn með orðum. Orðið
er það eina vopn sem sigrað getur í
deilum og átökum. Viðskipti, sam-
vinna og víðtækt samneyti á öllum
sviðum er öruggasta trygging fyrir
friði sem til er. Einangrun og víg-
væðing er jafn örugg ávísun á hið
gagnstæða.
Íslendingar eru herlaus þjóð sem
lengst af hefur talið sig hlutlausa
þegar kemur að hernaðarbrölti. Nú
hefur þó orðið breyting þar á. Ráða-
menn á Íslandi hafa nú skipað sér í
raðir stríðsæsingamanna sem hrópa
á sigur með eyðileggingar- og dráps-
tólum.
Eitt af því sem Íslendingar hafa
stært sig af öðru fremur er að rödd
þeirra heyrist og að vægi þeirra í al-
þjóðaumræðu sé ekki minna en stór-
þjóða heimsins. Vegna þeirrar sér-
stöðu sinnar að vera herlaus þjóð
ættu þeir í því ljósi að vera í betri að-
stöðu en aðrir til að tala fyrir friði.
Nú geta þeir og eiga að taka sér það
hlutverk. Þá kemur í ljós hvort það á
við rök að styðjast að á
þá sé hlustað.
Með fundi æðstu
manna mestu stórvelda
heims sem haldinn var á
Íslandi 1986 mörkuðu
Íslendingar sér sér-
stöðu í sátta- og friðar-
málum. Þá buðu þeir
fundarstað sem var þeg-
inn. Þá vakti stuðningur
Íslands við sjálfstæðis-
baráttu Eystrasalts-
þjóðanna alheims-
athygli. Augu heimsins beindust að
Íslandi. Íslendingar voru komnir á
kortið í friðarmálum heimsins.
Raddir sátta og friðar heyrast
hvergi vegna stríðsins í Úkraínu og
engu líkara en friðarhreyfingar
heimsins séu ekki lengur til. Þess
vegna eiga Íslendingar nú að taka
sér stöðu og hefja upp raust sína um
að friður komist á í Úkraínu og hann
verði tryggður. Íslendingar geta sem
hægast haft forgöngu um að ná til
viðræðna öllum þjóðum sem leggja
vilja sáttum og friði liðsinni sitt. Tím-
inn er orðinn naumur ef ekki á mjög
illa að fara.
Vilji er allt sem þarf.
Ófriðurinn
í Úkraínu
Ámundi
Loftsson
Ámundi
Loftsson » Íslendingar geta sem
hægast haft for-
göngu um að ná til við-
ræðna öllum þjóðum
sem leggja vilja sáttum
og friði liðsinni sitt.
Höfundur er fv. sjómaður og bóndi.
Síðumúli 13, 108 Reykjavík | S. 577 5500 | atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
VÖLUTEIGUR 7-11, 270 MOSFELLSBÆR
Atvinnueign sérhæfir sig í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Halldór Már
Löggiltur
fasteignasali
s. 898 5599
Evert
Löggiltur
fasteignasali
s. 823 3022
Ólafur Ingi
Löggiltur
fasteignasali
s. 847 7700
Ólafía
Löggiltur
leigumiðlari
s. 864 2299
Davíð Jens
Löggiltur
leigumiðlari
s. 846 7495
Húsnæðið er á tveim hæðum. Fjórar iðnaðarhurðir eru inn í rýmið, þrjár eru ca. 3m. á hæð og ein hurðin er 3,8m. á hæð.
Hægt er að keyra í gegnum húsnæðið. Jarðhæðin er 266 m2 með epoxy gólfi, nýtist vel sem lager eða vinnusalur.
Önnur hæðin er 178 m2 skrifstofurými sem skiptist opið rými, skrifstofur, eldhús, salerni og fundarherbergi.
Mjög þægileg aðkoma er að húsinu, malbikað plan bæði framan og aftan við hús og gott útipláss sem rúmar nokkra gáma.
Allar nánari upplýsingar veitir: Halldór Már Sverrisson lögg. fasteignasali, viðskiptafr. og leigumiðlari í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is
Til leigu 442 fm. iðnaðar-, skrifstofu-, og lagerhúsnæði. Skannaðu
kóðannog
skoðaðu
eignina