Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 60

Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 60
DÆGRADVÖL60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 „TÍMALAUS AUGNABLIK“ SÝNINGAR Í GALLERÍ FOLD OPNUN LAUGARDAGINN 5. NÓVEMBER KL. 14 · VERIÐ VELKOMIN! Einar Guðmann og Gyða Henningsdóttir „HIMINNINN YFIR PANGEU“ Náttúruljósmyndir Margrét E. Laxness Málverk Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur – 60 ára Látum draumana rætast H elgi Grímsson er fæddur 3. nóvember 1962 á Héraðshælinu á Blönduósi og fram til 1964 átti hann heima í Grímstungu í Vatnsdal eða þar til fjölskyldan fluttist á Bragagötu í Reykjavík. „Ég naut bernskunnar í miðbæn- um og klifraði í trjám og stillönsum, fór upp á þök og skúra, teikaði bíla og renndi mér á sleða niður Braga- götuna og Arnarhól þegar snjór var. Þá þótti sjálfsagt að gera bjölluat, skauta á Tjörninni, veiða hornsíli og fleyta flekum á Norrænahús- tjörninni. Þá var farið í alls kyns njósnaleiðangra upp í Öskjuhlíð í hernaðarmannvirkin þar. Ég lærði einnig samkvæmisdans, lengst í dansskóla Hermanns Ragnars Stefánssonar og einnig spilaði ég á þverflautu með Lúðrasveit drengja. Ég byrjaði að bera út Morgun- blaðið 8 ára gamall og var sendill á Þjóðviljanum, Tímanum og í Félagsprentsmiðjunni á aldrinum 11-13 ára. Ég átti sæludaga í sveit á Seli í Grímsnesi og einnig fór ég oft í heimsókn í Grímstunguna.“ Helgi fór í í vorskóla í gamla Miðbæjarskólanum og fór síðan í Austurbæjarskóla. Þá tók við nám í Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði hann félagslífið af miklum móð og var meðal annars forseti ferðafélagsins og fulltrúi nemenda í skólastjórn. Á unglingsárum og fram eftir aldri var Helgi mjög virkur í skáta- hreyfingunni. Fyrstu árin var hann í skátafélaginu Landnemum og fór í fjölmargar ævintýraferðir á þeirra vegum í skátaskálann Þrymheima á Hellisheiði. Helgi starfaði í sumarbúðum skáta á Úlfljótsvatni samtals í níu sumur. Þá var Helgi um nokkurra ára skeið félagsfor- ingi skáta í Garðabæ, fræðslustjóri skáta og aðstoðar skátahöfðingi. „Þegar ég var fimmtán ára ákvað ég að verða kennari, þótt það þýddi að eignast aldrei bíl og leigja bara litla íbúð. Þessa ákvörðun tók ég eftir fyrsta sumarið við störf í sumarbúðum skáta.“ Eftir menntaskóla kenndi Helgi eitt ár í Brekkubæjarskóla á Akranesi og byrjaði svo í Kennaraháskólanum. Með kennaranáminu starfaði hann í Félagsmiðstöðinni Þróttheimum og var orðinn forstöðumaður hennar á lokaári í Kennó. Seinna lauk Helgi meistaragráðu frá Menntavísinda- sviði HÍ í stjórnun menntastofnana og skrifaði M.ed ritgerð um hönnun grunnskóla. Helgi kenndi við Ölduselsskóla í nokkur ár samhliða því sem hann stýrði þar lítilli félagsmiðstöð. Árið 1996 varð Helgi aðstoðarskólastjóri í Grandaskóla í eitt ár og að því loknu starfaði hann hjá Krabba- meinsfélagi Reykjavíkur sem fræðslufulltrúi og svo sem fræðslu- stjóri hjá Bandalagi íslenskra skáta. Árið 2001 var Helgi ráðinn skóla- stjóri Laugarnesskóla og 2005 varð hann fyrsti skólastjóri Sjálands- skóla í Garðabæ. Hann starfaði þar til ársins 2015 eða þar til hann tók við starfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. „Undir sviðið heyra allir leikskól- ar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, tónlistarskólar og skólahljómsveitir í Reykjavík. Ef litið er á sviðið sem vinnustað þá er þetta 6.000 manna vinnustaður og þetta eru um 22.000 fjölskyld- ur sem við tengjumst og sinnum menntunar- og frístundastarfi þessara barna. Það er mikil tenging hjá okkur við fagvettvanginn og markmiðið er að byggja upp farsælt skóla- og frístundastarf til framtíð- ar. Við höfum stuðst dyggilega við okkar menntastefnu sem ber yfir- skriftina Látum draumana rætast, og vísar til þess að hvert barn eigi að njóta hins besta í starfi á okkar vegum.“ Í gegnum árin hefur Helgi skrifað fjölmargar námsbækur fyrir grunn- skólanemendur og einnig leið- beiningar fyrir kennara og skáta. Ber þar fyrst að nefna bækurnar Auðvitað! sem er námsefni í eðlis-, efna- og jarðfræði fyrir miðstig grunnskóla og svo bókaflokkurinn Heimur í hendi en bækur í þeim flokki helgast af áhugasviðum barna. Helgi fékk íslensku mennta- verðlaunin árið 2009 sem náms- efnishöfundur og árið 2011 fékk Sjálandsskóli menntaverðlaunin sem þróunarskóli. Helgi hefur í gegnum tíðina stundað mikla útivist, þá sérstak- lega fjallgöngur og hjólreiðar, en einnig kajakróður. „Það er stutt í veiðimanninn í mér þó svo að ég verði seint kallaður afreksmaður á því sviði. Seint og um síðir gekk ég til liðs við Hjálparsveit skáta í Garðabæ, eða árið 2008 og sinnti nýliðaþjálfun þar í nokkur ár. Ég hef yndi af því að ferðast bæði innanlands og erlendis og nýt þess að elda og borða góðan mat.“ Hjónin Helgi og Freyja stödd í fornu borginni Machu Picchu í Perú. Með börnunum Frá vinstri eru Sigríður, Daði, Helgi og Hafdís. AfmælisbarniðHelgi í Grímstungu. Þar ólst hann upp tvö fyrstu árin. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Sara Björt O. Aðalsteinsdóttir 30 ÁRA Sara er úr Þorláks- höfn en býr í Hafnarfirði. Hún hefur unnið síðustu tíu ár hjá Linde Gas, sem hét áður Ísaga. Áhugamál hennar eru útivist, hreyfing og ferðalög. FJÖLSKYLDAMaki Söru er Arnar Steinn Sturluson, f. 1990, hátæknifræðingur og vinnur hjá Teledyne Gavia. Börn þeirra eru Elva Karen, f. 2019, og Hafsteinn Orri, f. 2022. Foreldrar Söru eru Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, f. 1972, vinnur hjá Skarðs- hlíðarleikskóla, og Aðalsteinn Jóhannsson, f. 1976, deildar- stjóri hjá Linde Gas. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Nýr borgari Hafnarfjörður Hafsteinn Orri Arnars- son fæddist 6. september 2022 kl. 16.47 í Reykjavík. Hann vó 3.480 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Sara Björt O. Aðalsteinsdóttir og Arnar Steinn Sturluson. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Þú heldur aftur af þér með að stríða vini. Þú lætur þér í léttu rúmi liggja þó einhverjar kjaftasögur séu á kreiki um þig. 20. apríl - 20. maí B Naut Reyndu að eyða ekki of miklum peningum í dag. Þú þarft ekki alltaf að eiga síðasta orðið. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Þótt þú sért að farast úr forvitni skaltu ekki skipta þér af því sem þér kemur ekki við. Þegar þú hættir að pæla í hvað öðrum finnst um þig þá ertu komin/n langt á þroska- brautinni. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Leiðin sem þú vilt fara er bein og breið, en það sama verður ekki sagt um þinn besta vin. Það eru ekki öll kurl komin til grafar í gömlu deilumáli. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Þú ert í toppformi bæði andlega og líkamlega. Láttu þolinmæðina fleyta þér áfram. Þú ert með báða fætur á jörðinni. 23. ágúst - 22. september F Meyja Þér finnst eins og þú vitir ekki alveg hvar þú hefur vinnufélaga þína. Sýndu því öllum virðingu og umburðar- lyndi. 23. september - 22. október G Vog Það er ekkert að því að verðlauna sig þegar maður hefur staðið sig vel. Að staðna er ekki til í þinni orðabók. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Þú ert aldrei of gamall/ gömul til þess að læra. Margir þurfa á nærveru þinni að halda og þú þarft einnig á öðrum að halda. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Óvænt atvinnutilboð gæti borist í dag. Settu hnefann í borðið ef einhver ætlar að sýna þér yfirgang. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Félagslífið blómstrar þessar vikurnar. Frestaðu ónauðsynlegum innkaupum til morguns. Hlustaðu, þótt þú sért ekki á sama máli. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Það eru miklar breytingar í gangi og þú verður að hafa þig alla/n við til þess að fylgjast með og læra. Reyndu að forðast árekstra við börnin þín. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þetta er góður dagur til að kafa í ákveðin málefni. Skemmtu þér vel í kvöld, þú hefur svo sannarlega unnið fyrir því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.