Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 63

Morgunblaðið - 03.11.2022, Síða 63
ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Að vinna við að skrifa um íþróttir eru forréttindi, og þá sér- staklega þegar vel gengur hjá lið- um sem maður ber taugar til. Síðustu tvær beinar lýsingar sem bakvörður dagsins hefur séð um á mbl.is eru annars vegar leikur Liverpool og Leeds á An- field í ensku úrvalsdeildinni í fót- bolta og hins vegar útileikur Vals gegn Benidorm í Evrópudeild karla í handbolta. Leeds vann óvæntan 2:1- útisigur á Liverpool á laugardags- kvöld og viðurkennir bakvörður fúslega að hann átti erfitt með að greina lesendum frá sigurmarki Leeds, þar sem hann langaði helst að fagna eins og hann hefði skorað sigurmarkið sjálfur. Að lokum tókst það þó vel og mátti vart sjá á lýsingunni að ofanrit- aður hefði haft eins gaman af sig- urmarkinu og raun bar vitni. Fag- mennskan í fyrirrúmi. Svipað var uppi á teningnum þegar Valur vann stórglæsilegan 32:29-útisigur á Benidorm í Evr- ópudeildinni í handbolta á þriðju- dag. Þegar spænska liðið Beni- dorm var komið óþægilega ná- lægt Val undir lok leiks, var bak- vörður dagsins orðinn stress- aðari en leikmenn Íslands- meistaranna. Eitursvalir Valsmenn sýndu stáltaugar og unnu magnaðan sigur, eftir góðan lokakafla. Glæsilegt afrek á erfiðum útivelli. Að vinna við að fjalla um við- burði sem skilja eftir sælutilfinn- ingu í hjartanu eru algjör forrétt- indi. Sem betur fer eru leikmenn með betri taugar en bakvörður dagsins. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.isÞýska liðið Leipzig tryggði sér í gær sæti í 16-liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu í fótbolta með 4:0-útisigri á Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Christopher Nkunku, André Silva og Dominik Szoboszlai komu Leipzig í 3:0 og fjórða markið var sjálfsmark undir lokin. Real hafði þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum. Hákon Arnar Haraldsson jafnaði fyrir FC Kaupmannahöfn gegn Dortmund, 1:1, en þeim leik var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Nánar er fjallað um keppnina á mbl.is/sport/fotbolti. Leipzig fylgdi Real áfram AFP/Janek Skarzynski Sigur André Silva og Emil Forsberg fagna marki þess fyrrnefnda í gær. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen hef- ur ákveðið að nýta sér uppsagnar- ákvæði í samningi sínum við Ís- lands- og bikarmeistara Vals og er því frjálst að róa á önnur mið. Samningur hinnar 21 árs gömlu Sólveigar átti að gilda út næsta tímabil. Hún leikur oftast í stöðu kantmanns og á að baki 76 leiki í efstu deild og 15 í næstefstu deild. Hún hefur auk Breiðabliks og Vals leikið með HK/Víkingi, Fylki og Aftureldingu í efstu deild, en hún var að láni í Mosfellsbænum fyrri hluta nýafstaðins tímabils. Morgunblaðið/Árni Sæberg Farin Sólveig Jóhannesdóttir hefur rift samningi sínum við Val. Sólveig rifti samningnum KÖRFUBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Grindavík vann afar sterkan 84:80- útisigur á deildarmeisturum Fjölnis í áttundu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í Dalhúsum í Grafarvoginum í gærkvöldi. Grindavík byrjaði af miklum krafti og var með 21:12-forskot eftir fyrsta leikhlutann. Fjölniskonur minnkuðu muninn hægt en örugglega og úr varð mikil spenna í lokin. Grindvík- ingar fögnuðu hins vegar sætum sigri og hefur liðið unnið tvo leiki í röð. Deildarmeistararnir hafa tapað fjórum í röð og eru í vandræðum. Danielle Rodriguez skoraði 27 stig fyrir Grindavík og Elma Dautovic bætti við 17 stigum og 13 fráköstum. Dagný Lísa Davíðsdóttir, fyrirliði Fjölnis, skoraði 23 stig og tók níu fráköst. Taylor Jones skoraði 21 stig, tók 13 fráköst og gaf átta stoðsend- ingar. Risasigur Hauka á ÍR Haukar völtuðu yfir stigalausa ný- liða ÍR á útivelli, 93:49. Ljóst var í hvað stefndi frá fyrstu mínútu, því Haukar skoruðu fyrstu 26 stigin og ÍR gerði aðeins eitt stig í öllum fyrsta leikhlutanum. Leikurinn jafn- aðist töluvert eftir því sem leið á, en eftirleikurinn var auðveldur fyrir Haukakonur. Haukar hafa nú unnið fimm leiki í röð, en ÍR tapað öllum leikjum sínum til þessa. Sólrún Inga Gísladóttir var stiga- hæst hjá Haukum með 21 stig og þær Eva Margrét Kristjánsdóttir og Keira Robinson gerðu 17 hvor. Greeta Uprus skoraði 15 stig fyrir ÍR-inga. Fjórði sigur Vals í röð Valur vann sinn fjórða sigur í röð í deildinni, er liðið fór illa með Breiða- blik á útivelli, 90:63. Breiðablik hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikj- um. Valur var með undirtökin allan tímann og var staðan í hálfleik 41:25. Valskonur héldu áfram að bæta í for- skotið í seinni hálfleik og úr varð stórsigur. Hallveig Jónsdóttir skor- aði 20 stig fyrir Val og Kiana John- son skoraði 16 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Sanja Orozovic skoraði 19 stig og tók 12 fráköst fyrir Breiðablik. Valur er í þriðja sæti deildarinnar með tólf stig eftir átta leiki. Breiðablik er í fimmta sæti með fjögur. Haukar og Valur áfram á sigurbraut Morgunblaðið/Árni Sæberg Smárinn Anna Soffía Lárusdóttir úr Breiðabliki og Elísabet Thelma Róbertsdóttir hjá Val eigast við í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. - Grindavík vann deildarmeistarana yfir því að vera á bekknum. Ég og Viggi [Vignir Stefánsson] erum nán- ir. Ég hef alltaf litið upp til Vigga, það var geðveikt að hafa hann við hliðina á mér. Viggi er sterkur leikmaður okkar þannig að það var gott að fá hann inn. Hann styður alltaf við bakið á mér og ég styð alltaf við bakið á hon- um. Það var líka bara geðveikt að fá aðeins að hvíla,“ sagði hann. Höfum verið vanmetnir Valur er nú búinn að vinna báða leiki sína í B-riðli Evrópudeildar- innar til þessa. Fjögur lið komast upp úr riðlinum og tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum og eru Valsmenn staðráðnir í að gera það. „Við höfum ekki verið taldir sig- urstranglegir í þessum leikjum. Allavega til að byrja með vorum við svolítið vanmetnir. En við erum í þessu til þess að komast áfram, það er ekkert annað í boði. Við erum ekkert í þessu bara til þess að vera með. Við eigum Flensburg í næsta leik og það eina sem við ætlum að gera er að taka þá líka,“ sagði Stiven að lokum í samtali við Morgunblaðið. Í keppninni til að komast áfram Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Evrópa Stiven Tobar Valencia í þann mund að skora gegn Ferencváros í fyrsta leik Vals í B-riðli Evrópudeildarinnar í síðustu viku. - Tveir sigrar Vals í Evrópudeildinni - Stiven segir liðið hafa verið vanmetið EVRÓPUDEILDIN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is „Þetta var svolítið öðruvísi handbolti sem við spiluðum í gær [í fyrra- kvöld], sem við erum óvanir að spila miðað við boltann heima. Þeir voru mikið að spila sjö á sex sem hentaði okkur bara vel. Ég held að við höfum verið bestir í leiknum þegar þeir voru í sjö á sex. Þá náðum við að stela boltanum og komumst vel í bakið á þeim,“ sagði Stiven Tobar Valencia, hornamaður karlaliðs Vals í handknattleik, í sam- tali við Morgunblaðið um frækinn 32:29-sigur liðsins á Benidorm í Evr- ópudeildinni á þriðjudagskvöld. Alltaf litið upp til Vignis Stiven byrjaði á varamanna- bekknum þar sem Vignir Stefánsson hóf leikinn í vinstra horninu. Stiven kom hins vegar afar sterkur inn í síðari hálfleik og skoraði fjögur mörk. „Við erum allir geggjaðir í liðinu þannig að ég var ekkert pirraður Subway-deild kvenna Breiðablik – Valur ................................ 63:90 ÍR – Haukar.......................................... 49:93 Fjölnir – Grindavík............................... 80:84 Njarðvík – Keflavík ........................... (32:44) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir leik Njarðvíkur og Keflavíkur: Keflavík 7 7 0 583:457 14 Haukar 8 7 1 638:477 14 Valur 8 6 2 617:527 12 Njarðvík 7 4 3 549:548 8 Grindavík 8 3 5 595:619 6 Fjölnir 8 2 6 551:605 4 Breiðablik 8 2 6 522:618 4 ÍR 8 0 8 455:659 0 1. deild kvenna Þór Ak. – KR......................................... 71:69 Staðan: Stjarnan 6 6 0 509:363 12 Snæfell 7 6 1 474:368 12 Þór Ak. 7 5 2 504:469 10 KR 7 5 2 546:464 10 Hamar-Þór 7 3 4 524:496 6 Ármann 7 2 5 500:476 4 Aþena/LU 6 2 4 439:436 4 Tindastóll 6 1 5 421:424 2 Breiðablik B 7 0 7 256:677 0 NBA Brooklyn – Chicago............................ 99:108 Miami – Golden State........................116:109 Oklahoma – Orlando ........................ 116:108 Phoenix – Minnesota........................ 116:107 >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Skógarsel: ÍR – Breiðablik ...................18.15 Hlíðarendi: Valur – Þór Þ.....................19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Stjarnan .......20 Keflavík: Keflavík – Haukar ................20.15 1. deild kvenna: Sauðárkrókur: Tindastóll – Stjarnan ..17.15 Þorláks.: Hamar/Þór – Aþena/UMFK19.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Akureyri: KA – Stjarnan ...........................18 1. deild karla, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – Fram ........................19.30 Hlíðarendi: Valur U – Fjölnir ..............21.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.