Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 64

Morgunblaðið - 03.11.2022, Page 64
MENNING64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2022 Þetta er saga okkar í Pussy Riot og hún er farin að teygja sig langt aftur, ein 11 ár. Því fer fjarri að við höfum verið einu aktivistarnir í Rússlandi á þessum tíma, margir þekkja sögur fjölda annarra lista- manna og andófsfólks eins og Alexeis Navalnís og samstarfsfólks hans en stjórnvöld í Rússlandi hatast við allt sem er öðruvísi en þau vilja nákvæmlega hafa það og berja á öllum sem gagnrýna þau.“ Maria „Masha“ Alyokhina sýnir mér uppkastið að umfangsmikilli sýningu sem verður opnuð í Kling & Bang í Marshall-húsinu 24. þessa mánaðar og verður fyrsta yfirlits- sýningin sem nokkru sinni hefur verið sett upp með gjörningum og uppákomum hennar og sam- starfsfólksins í hinum umtalaða rússneska gjörninga- og andófshópi Pussy Riot. Daginn eftir opnun sýningarinnar treður Pussy Riot síðan upp á sviði Þjóðleikhússins með tónleikaviðburð sem þau ferðast þessa mánuðina með um Evrópu, til stuðnings barnaspítala í Úkraínu, landinu sem stjórnvöld í heimalandi þeirra herja nú á. Þegar her Rússa réðst inn í Úkra- ínu batt Ragnar Kjartansson mynd- listarmaður strax enda á viðamikla sýningu á list sinni sem hafði verið sett upp í hinni nýju GES-2 lista- miðstöð í Moskvu. Og skömmu síð- ar var greint frá því í The New York Times að Ragnar hefði aðstoðað Möshu Alyokhinu, forsprakka Pus- sy Riot, við að komast úr landi. Nú erum við hér í vinnustofu Ragnars, sem Alyokhina hefur lagt undir sig og með aðstoð myndlistarfólksins Ragnars og Ingibjargar Sigurjóns- dóttur, eiginkonu hans, fært upp á veggina hundruð mynda sem sýna gjörninga Pussy Riot allt frá byrjun og viðbrögð yfirvalda við þeim. Masha Alyokhina er 34 ára göm- ul, lágvaxin og fíngerð, en algjör nagli. Það fer ekki á milli mála. Enda hefur hún ekki gefið neitt eftir þótt hún hafi tvisvar sinnum verið dæmd til fangavistar í refsiný- lendu, hafi nokkrum sinnum farið í hungurverkfall og síendurtekið verið hneppt í varðhald. Hún hefur skrifað um baráttuna umtalaða og athyglisverða bók, Riot Days, sem fékk frábæra dóma í fjölmiðl- um víða um lönd. Hún segir að á síðustu árum hafi þau félagarnir í Pussy Riot verið ítrekað, í boði rússneskra stjórnvalda, hneppt í það sem hún kallar „hringekjuna“. Fyrir minni brot má mest dæma fólk í Rússlandi í 15 daga varðhald en þau hafa verið dæmd í slíkt aftur og aftur; þegar þau koma út eftir 15 daga bíða lögreglumenn eftir þeim og þeim er stungið strax inn aftur. Alyokhina segir að eftir því sem Pútín hafi hert tökin á stjórn landsins hafi harkan gagnvart andófi einnig aukist. „Við erum að tjá skoðanir sem eru andstæðar við stefnu stjórnvalda og þau leggja ansi mikið á sig til að þagga niður í andófi,“ segir hún glottandi og sýnir mér myndir á einum veggnum af fjölda ómerktra bifreiða með lögreglumönnum sem hafa reynt að fylgja þeim í Pussy Riot eftir. „Á sýningunni verða þessar myndir allar og sagan sögð. Líka myndbönd af uppákomum okkar af ýmsu tagi og sum þeirra eru mjög fyndin,“ segir hún. Pussy Riot vakti fyrst verulega athygli árið 2012 með pönkgjörningi í Dómkirkju Krists frelsara í Moskvu, sem kirkjunnar menn í Rússlandi voru æfir yfir. Þá var stuðningi kirkjunnar við Pútín mótmælt. Hópurinn hefur til að mynda einnig verið með uppákom- ur til að vekja athygli á kröfum hinsegin fólks sem beitt er harð- ræði í landinu, sem lið í feminískri baráttu, en ekki síst í andófi gegn Pútín. Þau hafa til að mynda verið með gjörninga á Rauða torginu og í Sochi þegar vetrarólympíuleikarnir voru haldnir en þar börðu kósakkar þau með svipum. Þráir að sjá breytingar „Þetta er orðinn meira en ára- tugur,“ segir Alyokhina þegar hún lítur yfir söguna sem myndirnar á veggjunum segja. „Hvers vegna við höfum staðið í þessu?“ Hún hlær að spurningunni. „Hvers vegna ekki!? Vegna þess að ég óska þess að landið mitt sé öðruvísi en það er, að því sé ekki stjórnað af þessum vitleysingum sem sitja í Kreml núna, heldur af góðu alvörufólki. Í landinu er fjöldi fólks sem er hugrakkt og heiðarlegt. Stjórnvöld hafa, með áróðursvél sinni, hertekið orðið föðurlandsvinur og nota það bara yfir þá sem skreyta sig með nýnasistamerkinu Z en í Rússlandi er vitaskuld fjöldinn allur af öðru- vísi fólki. Ég þrái að sjá ástandið breytast.“ Og nú hafa Alyokhina og margir félagar hennar yfirgefið Rússland og ferðast um Evrópu með tónleika til styrktar Ohmatdyt-barnaspítal- anum í Úkraínu en þar eru með- höndluð börn sem hafa verið illa leikin í innrás Rússa. „Ég sé enga aðra leið til að leggja mitt af mörkum en að styðja við fórnarlömb Rússa í Úkraínu, segir hún. „Í mörg ár höfum við lent í öllu því sem má sjá hér á myndunum; síendurteknu ofbeldi, það hefur verið eitrað fyrir sumum okkar og svo hafa verið pólitísk morð, eins og þegar Boris Nemtsov var myrtur í miðborg Moskvu árið 2015; við höfum tekið þátt í fjölda mótmæla- funda, en þar til á þessu ári höfðum við aldrei lent í því að vakna við þá hræðilegu tilfinningu að landið okkar væri helsta ruddaríki jarðar, hið nýja nasistaríki. Sem ræðst á annað ríki. Það er hræðileg ný lífsreynsla. Ég þekki marga Rússa sem eru nú í fangelsi, aðra sem ná að aðstoða þá með lítt áberandi hætti og svo eru líka margir Rússar nú utan heimalandsins að safna fé fyrir Úkraínu, vinna sem bloggarar eða fréttamenn og allt hefur það áhrif. En áhrifin virðast samt lítil þegar maður sér fréttir af enn einni drónaárás Rússa á borgir í Úkraínu – svona er kerfið þeirra, það er skapað til að láta okkur finnast við vera lítil og ómerkileg, en það er allt blekking.“ Úr einræði í alræði Masha Alyokhina gagnrýnir fjöl- miðla og stjórnmálamenn á Vestur- löndum fyrir að hafa ekki veitt stjórn Pútíns meira aðhald og sett á raunverulegar viðskiptaþving- anir þegar stjórnvöld gengu sífellt lengra, með innlimun Krímskagans og eitrað var fyrir pólitískum and- stæðingum þeirra og þeir myrtir. „Það er mikilvægt að gera eignir þessara manna á Vesturlöndum upptækar. Ef bankareikningar þeirra eru frystir og glæsihúsin þeirra og skemmtisnekkjur gerð upptæk, þá finnst fólki sem er í fangelsi í Rússlandi að það sé einhver von. Þeir reyna að brjóta niður andstöðu heima fyrir með því að fangelsa fólk, að láta því finnast það vera eitt og gagnslaust. En alþjóðasamfélagið þarf að berjast saman gegn Pútín og hans mönnum og það er gert með því að stöðva fjárstreymi til þeirra; án peninga mun kerfið þeirra liðast sundur. Það er engin hugmyndafræði að baki þessari stjórn, þetta snýst bara um peninga og að halda sér þeirra vegna á valdastólum til eilífðar- nóns. Þetta Rússland er feik.“ Alþekkt er að einræðisstjórnvöld hatast við frjálsa og óháða lista- menn. Hver vegna eru listamenn svo ógnandi í augum valdhafanna? „Listamenn geta gefið aðra mynd af því hvernig heimurinn getur orðið og verið,“ svarar Alyokhina og segir skáldsöguna 1984 eftir George Orwell klassískt dæmi um það. „Heimur Rússlands í dag er „orwellískur“. Við upphaf stríðsins tók náungi í lítilli rússneskri borg sig til og keypti hundrað eintök af 1984, setti þau á borð á gangstétt og tók að gefa vegfarendum eintök. Hann var handtekinn fyrir að gera lítið úr rússneska hernum!“ Hún hlær og hristir höfuðið yfir fárán- leikanum. „Á borðinu var engin auglýsing, enginn texti, hann var bara að gefa klassískt bókmennta- verk. Listin spyr oft óþægilegra spurn- inga. Þær vilja stjórnvöld alls ekki heyra. Það fyrsta sem Pútín gerði þegar hann komst til valda var að murka lífið úr frjálsri fjölmiðlun. Síðan hefur hann með hverju skref- inu á fætur öðru breytt stjórn sinni úr einræði í alræði.“ Masha Alyokhnina segist gjarnan vilja geta snúið aftur heim til heimalandsins og Moskvu en nú verði hún að leggja sitt af mörk- um í baráttunni, segja frá reynslu þeirra í Pussy Riot og krefjast þess með eins háværum hætti og hún getur að stífar viðskiptaþvinganir verði settar á rússnesk stjórnvöld. „Í Rússlandi væri heldur enginn möguleiki á að safna fé fyrir Úkra- ínu eins og við gerum nú, það væri eins og að safna fyrir eigin fanga- vist!“ Rússland „orwellískt“ í dag Pussy Riot-hópurinn hefur ferðast um Evrópu með tónleikaviðburði síðan í maí. Alyokhina segir að í Þjóðleikhúsinu 25. nóvember næstkomandi verði fjórir meðlimir Pussy Riot-hópsins mest á sviðinu. „Þau tóku öll þátt með einum eða öðrum hætti í þeim gjörningum sem má sjá hér á veggjunum,“ segir hún. Og þau hafa líka dúsað með henni í varðhaldi á síðustu árum og einn í refsinýlendu. „Við hittumst aftur þar þegar ég var eitt skiptið í hungurverkfalli og dreymdi látlaust um pítsur! En síðasta hungurverk- fallið sem ég fór í var mun auð- veldara fyrir mig og það kom á óvart. Mig dreymdi bara um pítsu fyrstu þrjá dagana en gat svo farið að hugsa um annað. Við skulum ekki segja að ég sé orðin atvinnumaður í hungurverk- föllum þótt ég hafi farið í fjögur, því ég veit um fólk sem hefur farið í fleiri en tuttugu slík mót- mælasvelti.“ Alyokhina skýrir viðburðinn í Þjóðleikhúsinu betur og kallar hann stefnuskrá – manifesto. „Og í raun ákall á uppþot. Viðburðurinn hefur sögulega framvindu og er blanda af hinu talaða orði, tónlist, myndlist sem brugðið er upp, og svo verður nokkuð óvænt sem ég ætla ekki að eyðileggja með því að segja frá. Ingibjörg Sigurjónsdóttir bætir hér við að ólíkt tónleikum Pussy Riot, sem þau hafa nú haldið víða, þá verði sýningin í Kling & Bang einstök. Það verði fyrsta yfirlitssýn- ingin með öllum aðgerðum hópsins í Rússlandi. „Ég tel það vera mjög merkilegan viðburð þar sem fjöldi atburða verður settur í samhengi og hægt verður að sjá þróun þessara mála í Rússlandi og til að mynda hvernig nú er tekið á mótmælum af miklu meiri hörku en fyrir áratug.“ Ragnar grípur orðið og segir: „Eins og sjá má hér á veggjunum þá hefur Pussy Riot verið að skapa frá- bær listaverk á þessum tíma; í öllu þessu brjálæði og andófi og uppá- komum hafa orðið til sannkallaðir demantar. Það er mjög spennandi að geta sýnt þetta allt.“ „Já, það er frábært að sjá koma saman flotta listsköpun og gríðar- lega áhugaverðan pólitískan aktív- isma,“ segir Ingibjörg. Hendurnar og hyggjuvitið Þegar Alyokhina er að lokum spurð að því hvernig þau félagarn- ir í Pussy Riot hafi getað haldið endalaust áfram að kljást við grimm valdaöflin í heimalandinu, þá glottir hún og svarar að það sé ekki svo erfitt. „Maður getur haft ákveðna hæfileika sem gera mann ekki gagnslausan, og svo er alltaf frekar skemmtilegt þegar okkur hefur tekist að gera eitthvað áhrifaríkt og þeir ná manni ekki.“ Hún hlær. „Þeir hafa svo marga starfsmenn, tól og tæki, en við höfum bara hendur okkar, hyggjuvit og hjarta. Það er einstök tilfinning. Og þegar vel hefur tekist til einu sinni þá vill maður endilega halda áfram. Sjáðu,“ segir hún og bendir á ljósmyndirnar sem sýna bíla og fólk sem hefur veitt þeim eftirför. „Þarna er fullt af bílum og fullt af fólki og allir á launum hjá skatt- greiðendum. Þetta er kerfið og það vinnur gegn okkur alla daga.“ „Það er mikið lagt á sig við að fylgjast með nokkrum gjörninga- listamönnum,“ segir Ragnar og skellihlær. „Já, og þegar okkur tekst að gera þá að fíflum þá er það auðvitað svalt,“ svarar Masha Alyokhina. „En þetta er svo sannarlega kafkaískur veruleiki.“ lFyrsta sýning sem sett hefur verið uppumgjörninga rússneska hópsinsPussyRiot verður opnuð íKling&Bang síðar ímánuðinumlTónleikarPussyRiot í Þjóðleikhúsinu 25. nóvember Listin spyr óþægilegra spurninga Morgunblaðið/Einar Falur Saga andófs „Þetta er svo sannarlega kafkaískur veruleiki,“ segir Maria „Masha“ Alyokhina, forsprakki Pussy Riot, um hörkuleg viðbrögð rússneskra stjórnvalda við gjörningum hópsins. Sú saga er sögð hér í myndum. VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is PönkbæninMasha Alyokhina og stallsystur hennar í Pussy Riot í umtöluðum gjörningi sínum í dómkirkju í Moskvu árið 2012.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.