Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 72
VERÖLD HVÍLDAR BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Verð 10.900 kr. www.betrabak.is STORMUR HEILSUINNISKÓR Með NÍU svæða nuddinnleggi nærðu slökun og vellíðan sem dregur úr spennu og örvar blóðflæði. Heilsuinniskórnir eru fallegir, hlýir og einstaklega þægilegir. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 MJÓBAK & HRYGGUR NÝRU & HNÉ STUÐNINGUR VIÐ LANG- BOGANN & MJÓBAK LUNGU, HJARTA & FRAMRISTARBEIN ENNISHOLUR HÖFUÐ HÁLS AUGU EYRU 9 SVÆÐA NUDD- INNLEGG ÚR LEÐRI Verð 13.900 kr. SILKIKODDAVER 100% Mulberry silki með koparögnum. 50x70 cm. Hvítt, blátt eða grátt. JOOP RÚMFÖT Vönduð og glæsileg rúmföt. 100% egypsk bómull. Hnökrar ekki og er silkimjúk viðkomu. Straufrí. 140x200 cm. Verð frá 28.900 kr. BELLA DONNA Þegar mjúkt á að vera mjúkt. Bómullin fær dekurmeðferð og er blönduð með Aloe Vera geli. Lökin halda sér ár eftir ár. 97% bómull og 3% elastin. Verð frá 7.900 kr. Verð 25.900 kr. BOSS SENSE Baðsloppur, ljósgrár eða dökkgrár. S, M, L og XL FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Félag sýningarmanna, síðar sýning- arstjóra við kvikmyndahús, var stofnað 1945. Bandaríski herinn fór frá Íslandi 2006 og þar með lauk kvikmyndasýningum í sal þeirra, Andrews Theatre, og eiginlega um leið sýningum upp á gamla móðinn. „Tæknin hefur tekið við, núna er nánast enginn sýningarstjóri í kvik- myndahúsum og ég var eiginlega síðasti móhíkaninn sem sýndi á filmu,“ segir Kristinn Eymundsson, sem lauk ferlinum í Andrews Theatre og sneri sér þá að öðru. „Eina sýningarvélin fyrir filmu á Reykjavíkursvæðinu er í sal 2 í Smárabíói og aðrar á Kvikmynda- safninu en annars eru allar sýningar stafrænar.“ Kristinn lærði í Tónabíói 1970 og vann þar og víðar. Gert var ráð fyrir að námið tæki eitt ár og þurftu menn að skila að lágmarki 500 klukkutím- um í sýningarklefa, taka 30 tíma nám í rafmagsnfræðum og annað eins í útvarpsfræðum. „Við vorum alltaf í klefa með sýningarstjóra og fengum engin laun á námstímanum.“ Hann rifjar upp að á tíma sínum í Tónabíói hafi verið sýningar klukkan 17, 19, 21 og 23 auk barnasýninga á sunnudögum, að hámarki tvær til þrjár myndir á mánuði. „Ég keyrði 175 myndir í gegn á einu ári í And- rews Theatre, þar sem myndir voru iðulega sýndar einu sinni til tvisvar og mest fimm til sex sinnum.“ Halda hópinn Sýningarstjórn var venjulega aukastarf hjá mönnum, en viðveran var engu að síður mikil. „Við vorum fastir í klefanum svo klukkutímum skipti,“ vekur Kristinn athygli á. „Ég er bifvélavirkjameistari og þegar ég var með bílaverkstæði var þetta lúx- us, hætti að vinna klukkan hálffjögur á daginn, fór heim í bað, skipti um föt og var svo mættur í bíóið hálffimm.“ Sýningarklefarnir hafi samt verið misstórir og þar hafi stundum verið erfitt að athafna sig, ekki síst í þeim minnsta. „Þegar ég var sýningar- stjóri í Hafnarbíói sagði ég eitt sinn við Jón Ragnarsson, eiganda bíósins, að ég væri orðinn þreyttur á að borða bara flatkökur, en það væri það eina sem maður gæti tekið með sér upp í klefann.“ Seinna hafi Jón brugðist við og opnað fyrsta fjölsala- bíóið í Regnboganum. Sýningarstjórar voru afar fáir og þar af tvær konur, fimm ættliðir, feðgar og bræður í gegnum tíðina, en ýmsan fróðleik um söguna má sjá á netinu (t.d. https://www.rafis.is/ fsk/15ara.htm), en félagið samein- aðist Félagi tæknifólks í rafiðnaði í fyrra og síðan eru lærðir sýningar- stjórar tæknistjórar. Sýningarstjórar hafa reglulega komið saman á fundum, haldið upp á stórafmæli félagsins, farið í ferðir til útlanda og meðal annars skoðað kvikmyndaver, kvikmyndahús og einkum fjölsalabíó. Fyrir skömmu héldu þeir fyrsta golfmót félags- manna sem lauk með sigri Kristins. Spilaðar voru 18 holur í Þorlákshöfn, höggleikur með og án forgjafar. „12 skráðu sig í mótið en svo fór að sjö hófu keppni, einn hætti eftir níu hol- ur og sá áttundi tók myndir,“ segir hann. „Ég er heldri maður á uppleið, er með 20,5 í forgjöf og fór á 85 högg- um brúttó, en þegar best var var ég með rúmlega 10 í forgjöf.“ Heldri maður á uppleið - Sýningarstjórn í kvikmyndahúsum gjörbreytt frá fyrri tíð - Kristinn sigraði á fyrsta golfmóti Félags sýningarstjóra Ljósmyndir/Sigurjón Jóhannsson Sýningar Kristinn Eymundsson við gamla vél á Kvikmyndasafninu. Hópur Þorvaldur Árnason, Jón Eiríkur Jóhannsson, Heiðar Friðjónsson, Kristinn Eymundsson og Friðjón Guðmundsson. Viggó Bjarnason var farinn. Pólsk-kanadíski píanóleikarinn Jan Lisiecki kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30. Hann mun flytja píanókonsert nr. 1 eftir Chop- in. Hljómsveitin flytur konsertforleik eftir Szyman- owski, sinfóníu nr. 1 eftir Lutosławski og Adagio fyrir flautu, hörpu, píanó og strengi eftir Jón Nordal. Í til- kynningu segir að þótt Lisiecki sé ekki nema 27 ára gamall hafi hann verið meðal eftirsóttustu píanista heims í rúman áratug en hann hóf að hljóðrita fyrir Deutsche Grammophon fimmtán ára gamall. Píanóleikarinn Lisiecki leikur Chop- in með Sinfóníuhljómsveit Íslands FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 822 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Stiven Tobar Valencia, vinstri hornamaður Vals, segir Valsmenn staðráðna í að fylgja eftir fullkominni byrjun liðsins í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Valur bar sigurorð af Ferencváros og Benidorm í fyrstu tveimur leikjum sínum í B-riðli keppninnar, sem telur sex lið, og freistar þess að verða eitt af fjórum lið- um riðilsins sem komast áfram í 16-liða úrslit Evrópu- deildarinnar. »63 Ætla sér í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar ÍÞRÓTTIR MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.