Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN
FAGLEG RÁÐGJÖF VIÐ KAUPOG SÖLU
HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & ESJUBRAUT 49 AKRANESI - SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS
Fyrirspurnafargan
Þingmönnum fyrirspurna-
flokkanna var mikið niðri
fyrir á Alþingi í fyrradag og
ræddu þeir skort
á svörum við
fyrirspurnum
sínum. Hanna
Katrín Friðriks-
son, þingmaður
Viðreisnar, hóf
umræðuna. Hún
hafði ekki fengið
svar við þýðingar-
miklum fyrirspurnum og óskaði
liðsinnis forseta þingsins.
Björn Leví Gunnarsson, þing-
maður Pírata og ofurspyrj-
andi, steig í pontu og sagði að
þetta væri „uppáhaldsfundar-
stjórnin“ sín. Hann hefði keyrt
upp forrit sitt sem sýndi stöðu á
meðalsvartíma fyrirspurna, sem
væri 20 dagar, sem hann sagði
tiltölulega stuttan, en að ekki
væri langt liðið á þingið. Svo fór
hann nánar yfir dagafjöldann og
sagði loks af þunga: „Viðmiðið
er 15 dagar, 15 virkir dagar, ekki
20, ekki 25, hvað þá 40 eins og
háttvirtur þingmaður vísaði í
áðan.“
Björn er nýbúinn að leggja
fram 13 fyrirspurnir um
áskriftir ráðuneyta og þings
að dagblöðum, tímaritum og
öðrum miðlum, sem er aðeins
hluti af þeim brýnu fyrirspurn-
um sem hann hefur lagt fram
í haust. Hvernig væri að hann
spyrði næst að því hvað þessar
fyrirspurnir hans og annarra
úr fyrirspurnaflokkunum kosta
skattgreiðendur og hverju þær
skila? Margar þeirra eru ýmist
algerlega óþarfar eða þess eðlis
að hægt er að fletta þeim upp
í opinberum gögnum og ein-
göngu til þess ætlaðar að vekja
athygli á fyrirspyrjandanum. Ef
þingmenn stilla sig um óþarfar
spurningar er ef til vill hægt að
svara hinum hraðar.
Björn Leví
Gunnarsson
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Gagnrýnir fjarvistarskráningar
lUmboðsmaður barna vill að komið sé
til móts við lýðræðislega þátttöku
Settur umboðsmaður barna,
Guðríður Bolladóttir, hefur sent
mennta- og barnamálaráðherra
Ásmundi Einari Daðasyni bréf
þar hann er hvattur til þess að til
þess „að taka til skoðunar, hvernig
hvetja má ungmenni til frekari lýð-
ræðislegrar þátttöku og styðja við
hana, sem hluti af alhliða menntun
þeirra sem hefur auk þess ótvírætt
samfélagslegt gildi.“
Tilefni bréfsins er að umboðs-
manni hafa borist „fjölmargar
ábendingar frá ungmennum, er
varða þátttöku þeirra í lýðræðislegu
starfi, eins og t.d. starfi ungmenna-
ráða sveitarfélaga, stofnana og
frjálsra félagasamtaka. Lúta
ábendingarnar helst að því að engar
heimildir eru fyrir framhaldsskóla
til þess að taka tillit til slíkrar
þátttöku við skráningu fjarvista, en
fundir og viðburðir eiga sér iðulega
stað á skólatíma.“
Vísað er í aðalnámskrá grunn-
skólanna þar sem m.a. kemur fram
að „rækta beri með markvissum
hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf
sem styrkir getu einstaklinga í
framtíðinni til að verða gagnrýnir,
virkir og hæfir þátttakendur í jafn-
réttis- og lýðræðissamfélagi.“ Þá er
einnig bent á að framhaldsskólar
hafi heimild til þess að veita ungu
afreksfólki í íþróttum svigrúm til
þess að sinna þeim.
ragnheidurb@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lýðræðisþátttaka Frá Barnaþingi
sem haldið var í Hörpu í vor.
Herjólfur III kominn
til Færeyja að nýju
Herjólfur III er kominn til Færeyja að
nýju eftir að hafa siglt milli lands og Eyja
þær vikur sem Herjólfur nýi var í slipp
í Hafnarfirði.
Í júní í sumar leigði Vegagerðin Herj-
ólf III til Strandfaraskip Landsins,
ríkisstofnunar Færeyja, sem sér um
almenningssamgöngur. Tiltekið var í
samningnum að hann yrði jafnframt
varaskip fyrir nýja Herjólf.
Samningurinn gildir til 1. september
2023 og hljóðar hann upp á 1,7 milljón-
ir evra, jafnvirði rúmlega 250 milljóna
íslenskra króna. Herjólfur III siglir á
svokallaðri Suðureyjarleið, frá Þórs-
höfn til Suðureyjar. Skipið er aðallega
nýtt sem vöruflutningaskip en verður
einnig afleysingaferja með farþega ef
þörf krefur. Skipið liggur nú við bryggju
í Þórshöfn en byrjar áætlunarsiglingar
eftir helgi, að því er fram kemur á vef
færeyska útvarpsins.
Til stendur að Herjólfur III taki við
siglingum á Breiðafirði í lok leigutímans
nema annað hentugra skip finnist í stað
Baldurs. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Herjólfur III Kom frá Færeyjum í haust og leysti nýja skipið af um tíma.