Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL 47
ALLT Í FLOTI
Flotblöndur fyrir öll verkefni,
stór sem smá.
Breiðhöfða 3 | 110 Reykjavík
Sjafnargötu 3 | 603 Akureyri
Múrverslun BMVallá
fáar og of stuttar, en sumarið er
tíminn á Íslandi. Við höldum okkur
því mest hérlendis á sumrin. Við
þvælumst við með fellihýsið okkar
um landið á sumrin og krakkarnir
segjast hafa séð allt á Íslandi, að
minnsta kosti tvisvar sinnum. Við
systkinin eigum saman sumarbú-
stað við Laugarvatn, á æskuslóðum
mömmu, þar sem okkur þykir gott
að vera. Ætli næsta skref sé ekki
að leita leiða til að koma okkur
upp eigin aðstöðu þar sem við
mamman, pabbinn, börnin og dýrin
okkar getum átt notalegt athvarf til
framtíðar.“
Fjölskylda
Eiginkona Helga er Guðrún
Hildur Pétursdóttir, f. 1.2. 1973,
bókari hjá Verslunartækni. Þau eru
búsett í Krikahverfinu í Mosfellsbæ.
„Það er frábær staður. Reiðstígar
úr hesthúsahverfinu liggja hingað
heim til okkar.“ Foreldrar Guðrúnar
voru hjónin Pétur Axelsson, útibús-
stjóri KEA á Grenivík, f. 21.2. 1931 d.
13.11. 2012 og Erla Friðbjörnsdóttir
húsmóðir, f. 21.1. 1933, d. 23.12. 2018.
Börn Helga og Guðrúnar eru 1)
Andri Páll f. 14.12. 1998, háskóla-
nemi; 2) Erla María f. 28.10. 2003,
framhaldsskólanemi, unnusti: Vikt-
or Ingi Þrastarson; 3) Ásdís Halla, f.
11.10. 2007, grunnskólanemi.
Systkini Helga eru 1) Áslaug f.
1954, fyrrv. bankamaður, búsett á
Selfossi; Jón f. 1959, framkvæmda-
stjóri, búsettur á Akranesi; Sigríður
f. 1964, bóndi og sjúkraliði, búsett á
Ósi rétt utan Akranes.
Foreldrar Helga voru hjónin Helgi
Jónsson, útibússtjóri, f. 9.2. 1928, d.
14.7. 2020 og Hallbjörg Teitsdóttir,
f. 18.3. 1933, d. 30.3. 1998 húsmóðir.
Þau voru síðast búsett á Akranesi.
Helgi Teitur
Helgason
Bóthildur Ísleifsdóttir
húsfreyja í Stíflisdal
Jón Ásmundsson
bóndi í Stíflisdal í Þingvallasveit
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Eyvindartungu
Teitur Eyjólfsson
bóndi í Eyvindartungu í Laugardal,
Árn., síðar sveitarstjóri og
framkvæmdastjóri í Hveragerði
Hallbjörg Teitsdóttir
húsmóðir, síðast búsett á Akranesi
Ásbjörg Þorláksdóttir
húsfreyja í Eskihlíð
Eyjólfur Teitsson
bóndi í Eskihlíð í Reykjavík
Steinunn Eiríksdóttir Stephensen
húsfreyja á Auðnum
Ólafur Magnússon Stephensen
prestur og síðast bóndi á Auðnum
á Vatnsleysuströnd
Áslaug Ólafsdóttir Stephensen
húsfreyja á Selfossi
Jón Pálsson
dýralæknir á Suðurlandi,
búsettur á Selfossi
Elínborg Stefánsdóttir
húsfreyja í Tungu
Páll Þorsteinsson
hreppstjóri og bóndi í Tungu í Fáskrúðsfirði
Ætt Helga Teits Helgasonar
Helgi Jónsson
útibússtjóri og svæðisstjóri
Landsbankans á Ísafirði, Akranesi
og Akureyri, síðast búsettur á
Akranesi
Vísnahorn
Brugðið fyrir sig fæti
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Allvel kenndur er hann nú.
Erfið reynist brekka sú.
Þennan á ég undirmér.
Einnig geymi vínlögg hér.
Nú brá svo við í fyrsta skipti, að
engin rétt lausn barst en Guð-
mundur skýrir gátuna þannig:
Kominn fótur í hann er.
Öll á fótinn brekka hér.
Fótur uppi búkinn ber.
Brestur vínfót síst hjámér.
Þá er limra:
Sigurður gamli séra
er sífellt að vísitera
og líður um stræti
léttur á fæti,
en er löngu búinn að vera.
Síðan er ný gáta:
Upp ég glenni augnaskjá,
ekki dorma lengurmá,
gátuna hef saman sett,
súmun þykja býsna létt:
Skáld, er Keltum skemmtir vel.
Skegg á kjálkum þessi ber.
Hann í skó ég henta tel.
Hákarl stór og grimmur er.
Mér finnst við hæfi að rifja upp
stöku eftir Sigurð Pétursson í
Stellurímum:
Því stoðir læra tók hann tvær,
tilvaldastar í eigu hans,
og réð færa ofan á þær
allan þunga líkamans.
Jóhann frá Flögu segir, að efni
vísunnar megi segja í stuttri setn-
ingu: Hann stóð upp.
Hér er önnur staka eftir Sigurð:
Þó að égmissi fótinnminn
mín ei rénar kæti;
hoppað get ég í himininn
haltur á öðrum fæti.
Kærleiksþel eftir Jónas Árna-
son:
Hann Friðþjófur fornbókabindari
vakti kærleik hjá Kölska sem syndari.
Ogmenn hafa þá trú
að hann starfi nú
fyrir vin sinn hannKölska semkyndari.
Einar Þórðarson Innri-Skelja-
brekku orti:
Ærslahlátur, að því gá,
eykur grát og trega.
Best er að láta lampa á
logamátulega.
Oft er strand við úfið hraun,
oft er grand að klifa.
Oft er blandinævi raun
oft er vandi að lifa.
„ER ÞETTA NÚ RÁÐLEGT, VINUR? ÞÚ NÆRÐ
ÞESSU ALDREI MEÐ ÞESSU JÁRNI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... mamman sem þú
elskar mest af öllum.
ÉG HEF VERIÐ Í AÐ-
HALDI Í ALLAN DAG
MÉR FINNST ÉG
SJÁ Á MÉR MUN
PUTTARNIR Á MÉR
VIRÐAST GRENNRI
MÉR FINNST FÖTIN MÍN HAFA
ÞRENGST! LÍKLEGA ÞVEGIN Í
OF HEITU VATNI!
OF MARGAR GLÓÐHEITAR PÍTSUR!
FARIÐ HEFUR FÉ BETRASAMÚÐARKVEÐJUR
KORT
TIL MÖMMU
TIL HAMINGJU MEÐ
MÆÐRADAGINN
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is