Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
Sólveig í staðinn
fyrir Berglindi
Knattspyrnukonan Sólveig
Jóhannesdóttir Larsen hefur
skrifað undir samning við sænska
úrvalsdeildarfélagið Örebro.
Samningurinn gildir til ársins
2024. Sólveig kemur til Örebro
frá Val. Hún var að láni hjá
Aftureldingu fyrri hluta síðasta
tímabils, en kom sterk til baka hjá
Íslands- og bikarmeisturunum
seinni hluta leiktíðarinnar. Þá
hefur Berglind Rós Ágústsdóttir
yfirgefið félagið eftir að hafa
leikið með því í tvö tímabil.
Morgunblaðið/Hákon
Svíþjóð Sólveig Jóhannesdóttir
Larsen er komin til Örebro.
Snæfríður bætti
Íslandsmetið
Sundkonan Snæfríður Sól Jór-
unnardóttir bætti í gær eigið Ís-
landsmet í 200 metra skriðsundi í
25 metra laug á móti í Danmörku.
Hún syndi vegalengdina á 1;55,60
mínútu og bætti metið um tæpa
sekúndu, en fyrra met var 1:56,51
sekúnda.
Snæfríður fór alla leið í
undanúrslit í greininni á EM í
Róm á Ítalíu í sumar og keppti
á Ólympíuleikunum í Tókýó á
síðasta ári. Hún er fremsta sund-
kona landsins um þessar mundir.
Ljósmynd/Sziliva Micheller
Íslandsmet Snæfríður Sól bætti
eigið Íslandsmet í Danmörku í gær.
Ég viðurkenni að ég hef oft,
eða réttara sagt alltaf á mínu
æviskeiði, verið spenntari fyrir
heimsmeistaramóti.
HM 2022 í knattspyrnu karla
hefst á morgun í Katar með
líklega minnst spennandi upp-
hafsleik í rúmlega 90 ára sögu
keppninnar, þegar heimamenn í
Katar mæta Ekvador.
Allt í góðu með það, venjan er
sú að gestgjafar spili upphafs-
leikinn og Ekvador hefur
nokkrum spennandi leikmönnum
á að skipa. Meiri athygli vekur
að þegar mótið er ekki hafið
eru hér um bil allar fréttir af því
neikvæðar.
Þekkt er að FIFA úthlutaði
Katar heimsmeistaramótinu
með afar vafasömum hætti, að
þúsundir farandverkamanna
hafa látið lífið við að byggja leik-
vangana fyrir mótið og nátengt
því, hversu mjög mannréttindi
eru fótum troðin í smáríkinu.
Í aðdraganda mótsins hefur
dönsku fjölmiðlafólki verið hótað
að tökuvél þeirra yrði eyðilögð
ef það hætti ekki að mynda auk
þess semmyndskeið af „HM-
þorpi,“ þar sem fólk getur gist í
nokkurra fermetra gámum fyrir
morðfjár, vekja ekki beint mikla
hrifningu.
Vandræðaleg myndskeið
af „stuðningsmönnum“ hinna
ýmsu þjóða, sem virðast ein-
faldlega vera ráðnir Katarar,
hafa vakið kátínu en varpa ljósi
á hversu þvinguð stemningin,
ef stemningu mætti kalla, er í
aðdragandanum.
Þá hafa yfirvöld í Katar þrengt
verulega að áfengissölu með gíf-
urlegri hækkun á verði, tilfærslu
á bjórtjöldum til afskekktari
svæða fjarri leikvöngum og nú
síðast ákvörðun um að banna
bjórsölu á leikvöngunum átta
með öllu.
Þar semmótið fer fram á
miðju tímabili hefur svo fjöldi
stjörnuleikmanna helst úr
lestinni vegna meiðsla. Það er
vonandi að skemmtanagildi
leikjanna verði til þess að bjarga
einhverju, því allt annað virðist
sannarlega í ólestri.
Ég held ekkert niðri í mér
andanum hvað það varðar þar
sem steikjandi hiti mun eflaust
hafa áhrif á gæði leikja og þá er
enn óljóst hvernig aðsókn verður,
sem hefur auðvitað líka áhrif.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Keppni í H-riðli á HM karla í
knattspyrnu í Katar hefst fimmtu-
daginn 24. nóvember. Mætast þá
annars vegar Portúgal og Gana
og Úrúgvæ og Suður-Kórea hins
vegar. Morgunblaðið fjallar um
hvern riðil fyrir sig á mótinu og
hitar upp fyrir heimsmeistara-
mótið. Hér verður farið yfir H-riðil.
Portúgal
Portúgalska liðið er einstaklega
vel mannað og setur stefnuna á
sigur í riðlinum. Það ætti að vera
vel gerlegt þó andstæðingar Portú-
gals séu allir ansi sterkir.
Sem fyrr er það í höndum
Cristianos Ronaldos, mesta
markaskorara sögunnar, að sjá um
að skora mörkin og unir hann því
hlutverki glaður.
Það er þó ekki á herðar 37 ára
manns leggjandi að sjá einn um
markaskorun og þar mun Bruno
Fernandes eflaust leggja sitt af
mörkum. Bakvörðurinn skemmti-
legi Joao Cancelo, Bernardo Silva,
Joao Félix og Rafael Leao munu
sömuleiðis þurfa að leggja sitt á
vogarskálarnar í sóknarleiknum.
Portúgal komst á HM í gegnum
umspil þar sem liðið lagði Norður-
Makedóníu að velli eftir að Serbía
skákaði liðinu um beint sæti í
A-riðli undankeppni Evrópu.
Portúgal tekur nú þátt á heims-
meistaramóti í áttunda sinn og
náði besta árangri sínum á sínu
fyrsta árið 1966 þegar liðið hafnaði
í þriðja sæti. Síðan þá hefur liðið
þrívegis komist upp úr riðlinum og
þrívegis ekki. Liðið var slegið út
í 16-liða úrslitum HM 2018 og vill
bæta upp fyrir það.
Gana
Gana hefur yfir spennandi liði að
ráða sem er að hluta til óskrifað
blað enda allnokkrir leikmenn ný-
lega búnir að skipta um ríkisfang
og hafa spilað sína fyrstu landsleiki
á undanförnum mánuðum.
Þeirra á meðal eru bakvörð-
urinn eldsnöggi, Tariq Lamptey,
og sóknarmaðurinn knái, Inaki
Williams, en yngri bróðir þess
síðarnefnda er í spænska landsliðs-
hópnum á mótinu. Ayew-bræðurn-
ir, Jordan og André, eru þá tveir
reynslumestu leikmenn liðsins.
Aðrir lykilmenn eru Thomas
Partey, Daniel Amartey, Mo-
hammed Salisu og hinn stór-
skemmtilegi Mohammed Kudus,
sem er vís til þess að blómstra á
mótinu. Breiddin er ekki mikil hjá
Gana en byrjunarliðið afar sterkt
og getur því liðið því hæglega gert
atlögu að því að komast áfram.
Til þess að vinna sér inn sæti
á HM þurfti Gana að ryðja
Suður-Afríku úr vegi í G-riðli
undankeppni Afríku áður en feiki-
lega erfitt verkefni gegn Nígeríu,
sem hafði komist á sex af síðustu
sjö heimsmeistaramótum, beið
liðsins í umspili. Þar hafði Gana
betur á útivallarmarki.
Gana tekur nú þátt á aðeins sínu
fjórða heimsmeistaramóti eftir að
hafa mistekist að komast á HM
2018. Í frumraun sinni árið 2006
komst liðið í 16-liða úrslit og á HM
2010 komst liðið í átta liða úrslit,
en engin Afríkuþjóð hefur komist
lengra á mótinu. Á HM 2014 komst
liðið svo ekki upp úr riðlinum.
Úrúgvæ
Ef lið Gana er spennandi þá
hefur Úrúgvæ yfir einu mest
spennandi liði keppninnar að ráða.
Ný kynslóð leikmanna er komin
upp og munu njóta þess til hins
ítrasta að leika með reynsluboltun-
um Luis Suárez, Edinson Cavani,
Diego Godín, Martín Cáceres og
Fernando Muslera, sem leika nú
eflaust á sínu síðasta heimsmeist-
aramóti.
Federico Valverde, Darwin
Núnez, Rodrigo Bentancur, Ronald
Araújo og Mathías Olivera leiða
þessa næstu kynslóð og eru þeir
allir þegar orðnir lykilmenn hjá
stórliðum í Evrópu.
Blandan ætti því að vera sérlega
góð hjá Úrúgvæjum, sem hefur
gengið vel að undanförnu, ef
undan er skilið 0:1-tap fyrir Íran
í vináttulandsleik í september
síðastliðnum.
Úrúgvæ átti í nokkrum vandræð-
um í undankeppni Suður-Ameríku
en náði vopnum sínum þegar leið á
síðari hluta hennar og hafnaði að
lokum í þriðja sæti á eftir Brasilíu
og Argentínu.
Lengi vel láku inn of mörg mörk
hjá liðinu en það hefur svo sannar-
lega verið bætt úr því undanfarið
ár og Úrúgvæ því til alls líklegt á
mótinu í ár.
Úrúgvæ hefur tvisvar staðið uppi
sem heimsmeistari og tekur nú
þátt á sínu 14. heimsmeistaramóti.
Á HM 2018 féll liðið úr keppni í
8-liða úrslitum og vill í það minnsta
komast jafn langt að þessu sinni.
Suður-Kórea
Suður-kóreska liðið er sígilt
dæmi um sýnda veiði en ekki
gefna. Fyrirfram kann liðið að
vera talið það lakasta í riðlinum en
mikill stöðugleiki hefur einkennt
það undanfarna áratugi.
Suður-Kórea er enda eitt af örfá-
um liðum sem er að fara taka þátt
Portúgal og Úrúgvæ
líklegust til afreka
AFP/Vladimir Simicek
Úrúgvæ Federico Valverde og Rodrigo Bentancur eru feikilega öflugir og spennandi miðjumenn í liði Úrúgvæ.
lEnginn skyldi þó afskrifa Gana og Suður-KóreulVerður Son leikfær?
H-RIÐILL
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
á sínu tíunda heimsmeistaramóti
í röð. Aðeins Brasilía, Argentína,
Þýskaland og Spánn eru með Suð-
ur-Kóreu í þeim hópi.
Sóknarmaðurinn magnaði,
Son Heung-Min, er langsamlega
stærsta stjarna Suður-Kóreu og
mun eðlilega koma til með að
mæða mikið á honum.
Slæmu fréttirnar fyrir Suð-
ur-Kóreubúa eru þær að ekki er
ljóst hvort Son sé leikfær enda
augntóftarbrotnaði hann og þurfti
að gangast undir aðgerð í byrjun
mánaðarins. Á æfingum hefur
hann sést skælbrosandi með for-
láta grímu og því vonandi að Son
sé leikfær.
Liðið fór auðveldlega í gegnum
undankeppnina í Asíu og fékk á
sig örfá mörk. Gegn mun erfiðari
andstæðingum á HM er ekki hægt
að ganga að jafn góðu gengi sem
vísu en með Son og miðvörðinn
Kim Min-Jae upp á sitt besta getur
liðið vissulega gert atlögu að því að
komast upp úr riðlinum, þó flest
verði að ganga upp til þess að það
takist.
Suður-Kórea tekur þátt á sínu
ellefta heimsmeistaramóti og náði
bestum árangri á heimavelli árið
2002, fjórða sæti. Liðið hefur einu
sinni til viðbótar komist upp úr
riðlinum.
1. deild karla
Hrunamenn – Þór Ak. .......................... 101:94
ÍA – Skallagrímur................................... 85:80
Selfoss – Ármann .................................... 87:81
Hamar – Fjölnir ....................................... 90:81
Sindri – Álftanes...................................... 97:88
Staðan:
Álftanes 9 8 1 813:774 16
Sindri 9 7 2 830:733 14
Hamar 8 6 2 744:687 12
Selfoss 9 6 3 844:722 12
Hrunamenn 9 5 4 869:879 10
Ármann 8 4 4 721:709 8
ÍA 9 4 5 731:804 8
Skallagrímur 9 3 6 810:792 6
Fjölnir 9 1 8 763:825 2
Þór Ak. 9 0 9 669:869 0
Belgía/Holland
Aris Leeuwarden – Feyenoord ......... 83:72
Kristinn Pálsson skoraði 16 stig, tók 10
fráköst og gaf 1 stoðsendingu á 30 mínútum
með Aris Leeuwarden.
NBA-deildin
Portland – Brooklyn............................ 107:109
Sacramento – San Antonio ................ 130:112
LA Clippers – Detroit ............................. 96:91