Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 ✝ Helga Guðráðs- dóttir fæddist 1. ágúst 1936. Hún lést í Brákarhlíð 11. nóvember 2022. Foreldrar hennar voru Guðráður Ce- sil Davíðsson í Nesi, f. 6. nóv- ember 1904, d. 13. apríl 2003, og Vig- dís Bjarnadóttir, f. 9. maí 1910, d. 18. nóvember 2009. Bræður Helgu voru Bragi, f. 1932, d. 2011, og Bjarni, f. 1935, d. 2021. Helga giftist á Jónsmessu árið 1956 Eyjólfi Sigurjónssyni frá Kópa- reykjum, f. 14. maí 1932. For- eldrar hans voru Sigurjón Jóns- son á Kópareykjum, f. 13. ágúst 1891, d. 9. júní 1972, og Helga Jónsdóttir, f. 5. janúar 1892, d. 27. mars 1985. Reinhard og Eydís Ósk. Dætur Jóns úr fyrra sambandi eru Helga, Hulda og Hrönn. Barna- börnin eru þrjú; 6) Lára, f. 1964, gift Sigurvin Hreiðars- syni, f. 1964. Þeirra börn eru Ástþór, Alma Dögg og Bjarki. Helga fæddist á Skáney og ólst upp í Nesi í Reykholtsdal. Eftir hefðbundna skólagöngu þeirra tíma gekk hún í Hús- mæðraskólann á Varmalandi og útskrifaðist þaðan vorið 1956. Helga flutti að Kópa- reykjum það sumar og bjó þar allan sinn búskap. Þrátt fyrir stórt heimili og annríki var Helga ætíð tilbúin að taka að sér börn til dvalar í lengri og skemmri tíma. Árið 1996 fluttu Helga og Eyjólfur að Árbergi 2 í Reykholtsdal. Hún tók alla tíð þátt í félagsstörfum í sinni sveit og fylgdist vel með í menningu og listum. Hún hafði yndi af lestri góðra bóka, ekki síst ljóðabóka og þjóðlegum fróð- leik. Útför Helgu fer fram frá Reykholtskirkju, í dag, 19. nóv- ember 2022, klukkan 14. Þeirra börn eru: 1) Vigdís Helga, f. 1956, gift Sig- urjóni Kárasyni, f. 1954. Þeirra börn eru: Sigríður Þór- laug, Eyjólfur Bjarni, Kári Þór og Anna Dröfn. Barnabörnin eru átta og eitt barna- barnabarn; 2) Sig- ríður Erla, f. 1958, gift Jóni Halldórssyni, f. 1956. Þeirra börn eru Berglind Helga, Halldór Már og Arna. Barnabörnin eru sjö; 3) Sigur- jón, f. 1959, d. 1961; 4) Kristín, f. 1961 gift Guðmundi Guð- laugssyni, f. 1962. Börn þeirra eru Sindri, Steinunn og Stefnir. Barnabörnin eru þrjú; 5) Jón, f. 1963, giftur Rebeccu Dorn, f. 1975. Börn þeirra eru Atli Fráfall Helgu tengdamóður minnar vekur margar minningar um góðar og glaðar stundir með þessari einstöku konu. Fyrir rúm- um 40 árum kom ég fyrst að Kópareykjum, taldi möguleika mína á að ná þar hylli einnar syst- urinnar næga til að banka upp á. Hlýtt var viðmót húsfreyjunnar þá eins og æ síðan. Af raddstyrkn- um að dæma var reyndar mögu- leiki að eitthvað amaði að, en mér lærðist fljótt að hann var genet- ískur úr föðurætt og gerði heim- ilislífið bara skemmtilegra. Í til- hugalífi okkar Stínu var frítími gjarnan notaður til sveitaferða og alltaf var faðmur Helgu umvefj- andi, hún sá til þess að öllum liði vel, spjallaði við unga fólkið af áhuga um líf þess og langanir og galdraði fram kræsingar milli bú- starfa utanhúss. Hjá Helgu og Eyjólfi var mun oftar tekið í spil en ég var vanur og allt til hinstu stundar áttum við frábærar gleði- stundir við spilaborðið. Við heim- komu okkar unga fólksins af sveitaböllum þessara ára var Helga iðulega á fótum og spældi egg ofan í mistuskulega nætur- gesti og gerði upp atburði kvölds- ins. Mér fannst hún eiginlega allt- af vera á fótum á þessum árum, var að sinna innanhússverkum og fatasaumi þegar ég fór að sofa og var komin út í fjós þegar ég vakn- aði. Þótt dagarnir væru langir og liðir stirðir kvartaði hún aldrei, hvorki yfir verkum né verkjum, það var ekki hennar stíll. Hún brunaði á þríhjóli og síðar fjórhjóli á milli útihúsa þegar hnjámein ágerðust, gjarnan með eitthvert barnabarna sinna með sér. Laust fyrir sextugt dró hún sig út úr mesta búskaparstússinu og fluttu þau hjónin þá að Árbergi í nýja litla íbúð. Þau áttu saman notaleg 26 ár í þessum hálfgerða Staðar- skála, ærið gestkvæmt var á þess- um vegamótum og kynslóðabilið brúað flesta daga með alltumlykj- andi væntumþykju og áhuga á mannlífinu. Tækifæri nýtti hún ef ferðalög voru í boði, bæði með kvenfélagskonum og eldri borgur- um. Einnig fylgdi hún afkomend- um sínum gjarnan í árlegar innan- landsferðir og virtist víða kunnug staðháttum þótt hún væri að koma þar í fyrsta sinn. Las enda mikið, þjóðlegan fróðleik, ferða- bækur og skáldsögur, og oft gauk- aði hún að mér ljóðabókum sem vakið höfðu áhuga hennar. Mann- gæska og aðrir eðliskostir Helgu hafa efalítið átt þátt í hve afkom- endur hennar eru samlyndir og tryggir upprunanum. Guð blessi minningu Helgu Guðráðsdóttur og gefi Eyjólfi og öðrum ástvinum styrk til að halda hennar kærleiksríku gildum á lofti. Guðmundur Guðlaugsson. Elsku amma Helga. Það er erf- itt að hugsa til þess að geta ekki farið lengur í ömmuhús á öllum tímum dags en þar var alltaf opið og allir velkomnir en við sannar- lega nutum þess. Þú varst alltaf okkar stoð og stytta í sorg og gleði, sama hvað kom upp á hjá okkur þá varstu með lausn á öllu. Þú varst okkar helsta fyrir- mynd og erum við þakklátar fyrir að hafa alltaf getað leitað til þín alveg frá barnæsku og til fullorð- insára. Það er ómetanlegt allt sem þú kenndir okkur og þá sér- staklega kærleika gagnvart öllu og öllum en það einkenndi þig hvað mest. Við eigum margar góðar minn- ingar en það sem er helst í huga okkar er þegar við spiluðum sam- an og þá sérstaklega þegar við spiluðum kana með afa. Við gát- um spilað tímunum saman og hlátrinum og gleðinni sem fylgdi því munum við aldrei gleyma. Spilasjúklingarnir þínir, Helga og Hrönn. Helga Guðráðsdóttir, frænka mín og vinkona, hefur nú fengið hvíldina. Hún vissi vel að hverju stefndi en með sínu einstaka jafn- aðargeði tók hún því sem að höndum bar eins og hverju öðru verkefni. Þegar heilsan leyfði ekki að dvelja lengur heima fékk hún í haust pláss á Brákarhlíð í Borgarnesi hvar hún og Eyjólfur fengu að njóta besta mögulegs aðbúnaðar síðustu ævidagana hennar. Áfram mun Eyfi dvelja þar, sáttur við það hlutskipti sitt úr því sem komið er. Helga hefur ætíð skipað stór- an sess í stórfjölskyldunni sem ætt sína á að rekja að Skáney. Við vorum systkinabörn, þótt hún væri tæpum þremur áratugum eldri en ég. Yngstu börnin henn- ar og ég erum þannig jöfn í aldri. Allt frá því hún var ung að árum í Nesi og síðar húsfreyja á Kópa- reykjum var mikið og kært sam- band á milli hennar og foreldra minna. Þau hjálpuðu hvort öðru og voru í raun eins og bestu vinir. Gagnkvæm virðing og hjálpsemi einkenndi samskiptin á bæjunum sitt hvorum megin í dalnum. Mamma hjálpaði Helgu að klippa börnin eða sauma föt á þau og Helga endurgalt það með ýmsu móti. Þegar móðir mín fór að missa heilsu var Helga tíður gestur á okkar heimili og síðar átti hún eftir að verða föst heimilishjálp. Það voru sannkallaðir hátíðisdag- ar hjá foreldrum mínum þegar von var á Helgu. Meðan mamma gat því við komið eldaði hún góð- an mat á meðan Helga þreif hús- ið. Svo var sest við eldhúsborðið og spjallað um heima og geima. Þessu hlutverki sínu hélt hún áfram að gegna eftir að mamma féll frá og átti hún stærstan þátt í að pabbi gat áfram búið í húsinu sínu fram undir það síðasta. Helga og Eyjólfur eignuðust sex börn. Misstu Sigurjón son sinn í barnæsku, en Jón og stelp- urnar fjórar komust á legg og eiga nú stóran hóp glæsilegra af- komenda. Þessi mikli vinskapur foreldra okkar hefur leitt áfram til næstu kynslóðar, barna Helgu og Eyjólfs, og okkar systkinanna frá Birkihlíð. Fyrir það er ég afar þakklátur. Það bætir okkur því glaðsinna, jákvæð og skemmtileg eru þau vissulega Kópareykja- systkinin. Eftir að Jón tók við búi á Kópareykjum settust Helga og Eyjólfur að í hlýlegri og góðri þjónustuíbúð sveitarfélagsins á Árbergi. Þar áttu þau eftir að eiga mörg góð ár. Eyfi fór ætíð minnst daglega heim að Kópa og hélt áfram að hlúa að kindunum sínum því þar leið honum best. Á Árberg komu síðan afkomendur þeirra reglulega því öll hafa þau sótt í hlýjan faðm foreldra sinna, ömmu og afa. Samheldnari fjöl- skyldu er vart hægt að hugsa sér. Á sama hátt leituðust sveitungar, vinir og frændfólk við að líta inn hjá þessum heiðurshjónum í kaffi eða þiggja annan viðurgjörning. Oft var tekið í spil, ætíð leitað fregna og hlegið alveg lifandis býsn. Að leiðarlokum vil ég þakka Helgu fyrir allar góðar stundir og ræktarsemi. Ég er þess fullviss að vel verður tekið á móti henni í Sumarlandinu góða. Eyfa, Dísu, Erlu, Stínu, Jónsa, Láru og fólk- inu þeirra öllu færi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Magnús Magnússon. Það var fallegur sumardagur um miðjan júlí árið 1972 sem ég kom í Reykholtsdalinn til lengri dvalar en ég hafði hugsað mér það árið. Ég var aðeins tvítug að aldri og var að fara að búa á Kjal- vararstöðum með kýr og kindur og öllu sem því fylgir að búa í sveit. Ég þekkti ekki marga í dalnum, en ekki leið á löngu þar til ég kynntist fólkinu á næsta bæ sem var fjölskyldan á Kópareykj- um. Kópareykjaheimilið var mann- margt á þessum tíma og mikill gestagangur einkenndi heimilið. Þar bjuggu Helga og Eyjólfur ásamt 5 börnum og þar var einnig til heimilis Helga Jónsdóttir, móðir Eyjólfs. Á sumrin bættust svo við sumarbörn og vinnufólk. Á Kópareykjum var á þessum tíma hefðbundinn búskapur og gekk Helga í öll verk, bæði úti sem inni. Ég dáðist oft að dugn- aðinum í Helgu og ég man þegar hún fór á traktornum með allan þvottinn í þvottahúsið á Klepp- járnsreykjum og þvoði af öllu fólkinu og svo var komið heim um kvöldið með hreinan og ilmandi þvott. Það var alltaf gott að koma upp á Kópareyki og þar ein- kenndi gleði og hressileiki heim- ilisbraginn. Oft þegar ég kíkti í heimsókn þá tók Helga hressi- lega á móti mér með glaðlegu brosi og sagði: „Blessuð komdu í bæinn“. Svo var sest inn með kaffibolla og spjallað. Helga var líka virk í Kvenfélagi Reykdæla og ungmennafélaginu og taldi ekkert eftir sér ef það þurfti verk að vinna. Það þótti alltaf fengur í að fá Helgu í áhorfendasalinn á leiksýningar því hún var mjög hláturmild og hafði svo smitandi hlátur. Það er svo margt sem ég get þakkað henni Helgu á Kópa fyrir. Ég gat alltaf leitað til hennar ef ég þurfti á hjálp að halda. Hún kenndi mér að prjóna hæl á sokka, baka sírópstertu, stoppa í sokka og ótalmargt fleira. Ekki má gleyma hversu oft stelpurnar okkar fengu að vera hjá þeim þegar ég fór í skóla til Reykjavík- ur og að þeirra mati bakaði eng- inn betri pönnukökur, kleinur og ástarpunga en Helga. Fyrir það er ég ævinlega þakklát. Betri nágranna var ekki hægt að fá. Nú er komið að leiðarlokum og við kveðjum Helgu Guðráðsdótt- ur með söknuði en ríkari eftir að hafa átt samleið með henni und- anfarin 50 ár. Með þessum ljóðlínum kveð ég yndislega konu og þakka fyrir ár- in öll. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Magnea Kristleifsdóttir, Kjalvararstöðum. Þegar ég rifja upp æsku mína þá skipar nágrannakona mín, hún Helga á Kópareykjum, þar stór- an sess. Það voru ansi mörg skipti sem ég rölti upp brekkuna á milli bæjanna og heimsótti Helgu og Eyjólf. Alltaf var gott að koma til þeirra í stóra gula steinhúsið, byrja á að kíkja á gluggann í eldhúsinu sem var nið- urgrafið í kjallaranum og heilsa Helgu. Dillandi hláturinn, dugn- aðurinn, vaggandi göngulagið og hlýjan var svo einkennandi fyrir hana. Helga var ekta sveitakona, með fjöllin í augunum, roða í kinnunum og alltaf með fullt af fólki í kringum sig, að brasa eitt- hvað. Á Kópareykjum var oft fjöldi fólks, svolítið eins í sveit- arómans eftir Guðrúnu frá Lundi. Margar kynslóðir bjuggu saman og svo voru krakkar í sveit og vinnufólk, stanslaust líf og fjör. Ég hafði mikla matarást á Helgu og sjónvarpskaka og ást- arpungar voru þar í uppáhaldi. Einnig voru margar matarhefðir viðhafðar á Kópareykjum sem ég þekkti ekki heiman að. Ég fylgd- ist spennt með þegar Helga sauð sviðna kýrhausa í stórum sér- standandi þvottapotti úti í skúr og útbjó svo stórgerða sviðasultu. Súrar sviðalappir tengi ég líka við Kópareyki. Ég man svo eftir að hafa skriðið inn á bekkinn til Eyj- ólfs og Helga skenkti okkur fjallagrasamjólk með vel af púð- ursykri. Barnabörnin hennar Helgu voru mikið uppi á Kópareykjum og voru þau mér kærir leikfélag- ar í æsku og sótti ég mikið þang- að þegar þau voru í heimsókn. Það eru mikil og góð tengsl á milli bæjanna og hafa alltaf verið. Þeg- ar ég var unglingur fluttu þau Helga og Eyjólfur sig smáspöl niður að Árbergi, enda orðin þröng á þingi á Kópareykjum. Þangað var jafngott að koma í heimsókn, sama hlýjan og um- hyggjan, en rólegra andrúmsloft þar sem Helga fékk að njóta sín og sinna efri ára. Ég kveð Helgu með söknuði og hlýju. Ásdís Ármannsdóttir frá Kjalvararstöðum. Elsku Helga, er fallin frá. Ég var það ungur þegar ég var fyrst í sveit hjá Helgu á Kópa- reykjum að ég man ekki eftir þeim tíma en þar sem ég var í sveit þar á hverju sumri fram að unglingsárum þá er margs að minnast. Þær minningar eru mér ljúfar. Ég man t.d. vel eftir því að fara með Helgu að þrífa á Logalandi. Fyrir forvitinn dreng var þar margt áhugavert að skoða. Helga sá alltaf um að mann vantaði ekki neitt. Þarna í sveitinni hafði mað- ur frelsi til að gera nokkurn vegin það sem manni datt í hug. Þegar maður var að hjálpa til þá var það aldrei leiðinlegt eða erfitt, alla vega ekki í minningunni. Þegar ég kom í heimsókn til Helgu og Eyfa þá var aldrei kom- ið að kofanum tómum. Helga var þá fljótlega búin að bera fram veitingar þó enginn væri fyrir- varinn. Maður fann að maður var alltaf velkominn. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Helgu. Það er öruggt að hún á stóran þátt í að móta þann mann sem ég er í dag. Stefnir Skúlason. Helga Guðráðsdóttir Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, mágkonu og frænku, LÍNEYJAR BJÖRGVINSDÓTTUR, Lautarvegi 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Lautarvegi 18, Reykjavík, heimahjúkrun og Heru fyrir einstaka umönnun og hlýju. Árni Björgvinsson Jenný B. Sigmundsdóttir Ragnhildur Björgvinsdóttir Lára Magnúsdóttir Guðný Björgvinsdóttir Anton Örn Guðmundsson Páll Björgvinsson Áslaug Þormóðsdóttir Björn Thomsen og frændsystkini Sonur okkar, bróðir og frændi, ÓLAFUR VALDIMARS, er látinn. Útför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Bestu þakkir til þeirra sem réttu honum vinarhönd og gerðu lífið bærilegra. Guð blessi ykkur öll. Soffía og Böðvar Guðrún Hlíf Árný Rós og börn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐBRANDSSON bifvélavirki frá Siglufirði, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 10. nóvember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 25. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin. Aðstandendur þakka starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir góða umönnun. Jónína Gunnlaug Ásgeirsdóttir Guðbrandur Magnússon Katrín Bryndís Sigurðardóttir Anna Júlía Magnúsdóttir Sigurður Albertsson Ásgeir Rúnar Magnússon Kristinn Magnússon barnabörn og barnabarnabörn GUÐFINNA STEINUNN BJARNEY SIGURÐARDÓTTIR lést 12. nóvember. Útför verður gerð frá Árbæjarkirkju í Reykjavík föstudaginn 25. nóvember klukkan 13. Bænastund og moldun verður í Bjarnaneskirkju í Nesjum laugardaginn 26. nóvember klukkan 11. Þorleifur Jónsson Halldóra Andrésdóttir Ómar Arnarson Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Anna Lilja Jónsdóttir Brynjólfur Garðarsson Þorbergur Hjalti Jónsson Helga Skúladóttir og fjölskyldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.