Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 56
Í lausasölu 1.410 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2022 MENNING Kammersveit Breiðholts leikur verk eftir Vivaldi klukkan 15.15 Kammersveit Breiðholts heldur tónleika á vegum 15:15 tónleikasyrpunnar í dag í Breiðholtskirkju og hefjast þeir kl. 15.15, eins og nafn syrpunnar ber með sér. Tónleikarnir bera yfirskriftina Meistarinn frá Feneyjum. Flutt verða verk eftir Antonio Vivaldi. Söngkonurnar Júlía Traustadóttir Kondrup og Bergþóra Ægisdóttir koma fram með kammersveitinni og verða tónleikarnir um klukkustund að lengd. Leikið verður á upprunaleg hljóðfæri. ÍÞRÓTTIR Þórir stýrir Noregi í úrslitaleiknum Noregur og Danmörk mætast í Norðurlandaslag í úr- slitum Evrópumóts kvenna í handbolta á morgun, eftir sigra í undanúrslitum í Ljubljana í gær. Noregur vann 28:20-sigur á Frakklandi og leikur því í úrslitum annað mótið í röð og í þrettánda sinn alls. Danmörk vann 27:23-sigur á Svartfjallalandi í fyrri undanúrslitaleikn- um. Danmörk, sem hefur í þrígang orðið Evrópumeist- ari, lék síðast til úrslita í Ungverjalandi 2004. » 48 Nýjasta ljóðabók Ragnheiðar Lárusdóttur, Kona / Spendýr, sem Bjartur gefur út, er um konur í ýmsum hlutverkum og byggist að hluta til á reynslu höfundar. Hún tengist kvenréttindamálum og jafn- réttisbaráttu, metoo og móðurhlut- verkinu, og ánægjunni sem fylgir því að vera kona. „Sem lítil stelpa fann ég fyrir því að ég hafði ekki sömu réttindi og strákar og mér voru ætluð önnur hlutverk,“ segir Ragn- heiður. „Eftir því sem leið á ævina jókst þetta. Þegar ég gekk með börn, eignaðist þau og var með þau á brjósti varð spendýrshlutverkið yfirþyrmandi. Ég var eins og hver annar bústofn í raun og veru.“ Hún bendir á að móðurhlutverkið hafi ekki fengið næga athygli. Það sé gjarnan málað rósrauðum bjarma og það sé vissulega dásamlegt og skemmtilegt, en vinnan sé erfið og íþyngjandi og lengst af hafi konur sinnt henni einar og óstuddar. Þriðja bókin Fyrsta bók Ragnheiðar, 1900 og eitthvað, kom út haustið 2020 og við það tækifæri sagði hún að bókin væri ævisaga sín í stuttu máli. Gler- flísakliður kom út í fyrra. Þá miðlaði hún af reynslu sinni í sambandi við skilnaðarsorg og þeirri sorg sem fylgir því að horfa á móður sína fá elliglöp eða Alzheimer og loks deyja. Nú er það konan í ýmsum myndum. „Ljóðin eru ekki öll um mig heldur ort út frá reynsluheimi mínum og annarra,“ upplýsir hún. Bókin skiptist í fimm kafla. Fyrsti kaflinn nefnist Kona og þar eru flest ljóðin. Síðan koma Spendýr, Úr dag- bók húsmóður, Hversdagur hennar, og lokakaflinn, Og svo, er framtíðar- sýn. „Þetta er ekki félagsfræðileg úttekt á viðkomandi málum heldur er reynsla mín í forgrunni í flestu.“ Ragnheiður er íslenskukennari í Menntaskólanum í Kópavogi og hefur verið kennari í nær aldar- fjórðung. Hún byrjaði að yrkja sex ára gömul og segist hafa lesið og skrifað mikið alla tíð. „Ég fæ hug- myndir hér og þar, jafnt í kennslu sem í göngutúr.“ Hún hafi almennt ekki mikinn tíma til að sitja lengi við skriftir, en hugmyndirnar komi gjarnan skyndilega. „Mér finnst eins og þær glamri í höfðinu á mér þangað til ég skrifa þær niður. Stundum hef ég verið með þær allan daginn og þá getur ljóðið verið nánast tilbúið þegar ég sest niður til að skrifa.“ Hún leggur samt áherslu á að yfirleitt taki lagfær- ingar langan tíma. „Stundum laga ég ljóðið svo mikið að ég er búin að steingelda það og verð að fara til baka til þess að gæða það lífi á ný.“ Ljóðin eru öll mikilvæg, að sögn Ragnheiðar. Hún nefnir sem dæmi ljóðið „Auga“ sem fjallar um hina heilögu þrenningu, föður, son og heilagan anda. Sem barn hafi hún reglulega verið í messu hjá föður sínum, dvalið í sumarbúðum þjóðkirkjunnar og hugsað mikið um þetta. „Hvar á ég að vera, hugsaði ég með mér, hvernig kemst ég inn í þetta? Við mamma erum ekki með í þessu karladæmi.“ Eins segir hún mikilvægt að benda á að á uppvaxt- arárum sínum hafi þótt sjálfsagt að karlar klipu í konur, jafnvel líkamsparta sem konum var annt um, og ekkert átti að segja við því. „Margar jafnöldrur mínar lentu í slæmum málum vegna þessa. Þær voru réttlausar og enginn hlustaði á þær.“ lÞriðja ljóðabókRagnheiðar Lárusdóttur kominút Hugmyndirnar glamra í höfðinu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Skáld Ragnheiður Lárusdóttir hefur gefið út þrjár ljóðabækur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.